Handbolti

Noregur tapaði í undanúrslitum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir Hergeirsson.
Þórir Hergeirsson. Nordic Photos / AFP

Rússar unnu Noreg í síðari undanúrslitaviðureigninni á heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Kína, 28-20.

Norðmenn byrjuðu ágætlega í leiknum og voru með yfirhöndina um miðjan hálfleikinn. En þá sneru Rússar leiknum sér í hag og náðu fimm marka forystu þegar fyrri hálfleik lauk, 17-12.

Rússar unnu svo nokkuð öruggan sigur að lokum sem fyrr segir. Þórir Hergeirsson er landsliðsþjálfari Noregs.

Rússar mæta því Frökkum í úrslitum á sunnudaginn en Noregur mætir Spáni í leik um þriðja sætið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×