Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu féll um 09,28 prósent á annars rauðum degi í Kauphöllinni í dag. Á hæla þess fylgdi gengi bréfa Bakkavarar, sem fór niður um 7,75 prósent. Þá lækkaði gengi bréfa Marel Food Systems um 1,69 prósent og Össurar um 0,45 prósent.
Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 1,77 prósent og endaði í 262 stigum.