Kaflaskil Steingrímur J. Sigfússon skrifar 31. desember 2009 06:00 Árið sem nú rennur sitt skeið á enda hefur verið okkur Íslendingum erfitt vegna ástæðna sem öllum eru kunnar. Um leið eru þó sem betur fer góðar líkur á að ársins verði minnst fyrir þá þrautseigju sem þjóðin sýndi við erfiðar aðstæður og þess árs þar sem grunnur var lagður að endurreisn íslensks efnahagslífs. Í upphafi árs ríki mikil reiði, svartsýni og ótti í samfélaginu en almenningur sýndi með fjölmennum mótmælum að enn bjó von um betri tíð í brjósti fólks. Mótmælin leiddu á endanum til stjórnarskipta og Alþingiskosninga þar minnishlutastjórnin sem sat fram að þeim sat fékk fullt umboð kjósenda og varð að meirihlutastjórn. Ríkisstjórnin hefur síðan reynt að svara kallinu um endurbætur og siðbót þó vissulega megi alltaf gera betur. Meðal annars hefur hún leitast við að aðstoða einstaklinga og heimili sem glíma við fjárhagsörðugleika í kjölfar hrunsins. Má þar nefna hækkun vaxtabóta, heimild til útrgreiðslu séreignasparnaðar, frestun allra nauðungaruppboða auk fjölbreyttra úrræða vegna fyrir þá sem glíma við greiðsluerfiðleika. Þá hefur verið lögð áhersla á að efla og auka trúverðugleika eftirlitsstofnanna, t.d. með nýrri og faglegri yfirstjórn í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu auk þess að stórefla embætti sérstaks saksóknara. Ríkisstjórnin hefur þannig með verkum sínum áorkað miklu þó aðstæður til björgunar- og endurreisnaraðgerða hafi verið erfiðar. Á árinu hefur einnig tekist að endurreisa bankakerfið á mun hagstæðari hátt fyrir ríkissjóð en nokkurn hafði órað fyrir 250 milljörðum króna minni bein fjárútlát og 46 milljörðum króna lægri vaxtagjöld á þeim árum sem nú mætast. Þá er mikilvægt að þetta tókst í samráði við helstu kröfuhafa bankanna, sem bætir samskiptin við þá og dregur úr líkum á málaferlum. Einnig tókst að koma böndum á ríkisfjármálin þannig að afkoma ríkissjóðs er mun betri en á horfðist um tíma og í samræmi við fjárlög sem samþykkt voru í lok síðasta árs. Auk þessa hefur tekist að tryggja þau lán sem þurfti til að styrkja gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans. Þá betri horfur á þróun verðbólgu, atvinnuleysis og um minni samdrátt í landsframleiðslu auk þess sem vextir hafa lækkað hratt síðustu mánuði. Ekki má heldur gleyma að ýmiss framfaramál hafa náð fram að ganga á árinu þrátt fyrir erfiðleikana og sýnir það að stundum er viljinn allt sem þarf. Skal þar fyrst nefna nýtt tekjuskattskerfi sem mun verja hina tekjulægstu fyrir skattahækkunum og dreifa byrðunum á allt annan og réttlátari hátt en áður. Þá má einnig nefna hærri grunframfærslu námslána, skýra og metnaðarfulla stefnu í loftslagsmálum, kaup á vændi hafa verið bönnuð, lög sem bæta stöðu sprotafyrirtækja hafa verið samþykkt, Varnarmálastofnun verður lögð niður á nýju ári og svona mætti lengi telja. Nauðsynlegt er að við þessi áramót verði gerð skýr kaflaskil við fortíðina. Nú skal hefjast kaflinn þar sem hið nýja Ísland rís úr öskustó frumbernsku síns fullveldis og þroskast sem stolt, sjálfstæð, friðelskandi smáþjóð sem axlar sínar ábyrgð og skuldbindingar jafnhliða því að standa fast á rétti sínum. Sú þrautarganga sem við erum að ganga í gegnum mun aðeins verða til þess að styrkja okkur svo fremi við ýtum allri vanmáttarkennd til hliðar, stöndum saman og styðjum við þá sem höllustum fæti standa. Árið 2015 eða 2025 munum við líta til baka og hugsa stolt til þess hvernig við gengum í gegn um kreppuna, lögðum okkar af mörkum og gleðjumst yfir því að það hafi tekist. Aðalatriðið er að þegar til baka verður litið þá gengu þessi „móðuharðindi" yfir, þó af mannavöldum væru, rétt eins og önnur og þjóðin sigraðist á þeim með þolgæði sínu og þrautseigju. Þar sem ég stend og svipast um í lok árs sé ég að mikið hefur áunnist og að enn meiri bati er í sjónmáli, en hann mun ekki verða af sjálfu sér. Örlög Íslands eru í höndum okkar Íslendinga, engra annarra. Ísland hefur allt sem þarf og óendanlega mikið af því sem svo marga aðra vantar. Gleymum því ekki að við erum ein af ríkustu þjóðum heims sem er í efnahagslegum hremmingum sem vissulega eru miklar en þó fjarri því að vera okkur ofviða. Höfundur er fjármálaráðherra og formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steingrímur J. Sigfússon Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar