Þrátt fyrir að hámarka ekki árangur sinn í Bahrein í gær, þá er Ferrari ekki búið að gefast upp á titilslagnum. Kimi Raikkönen varð sjötti, en Felipe Massa fékk engin stig í mótinu eftir brösótt gengi.
"Fyrstu stigin í fjórum mótum voru lágmarkið, en við hefðum þurft að fá stig fyrir báða bílanna. Ég hugsaði bara Mamma mia, þegar Raikkönen og Massa snertust í fyrstu beygju! Massa þurfti að skipta um framvæng og eftir það var hann fastur fyrir aftan keppinauta sína", sagði Domenicali.
Ferrari fékk engin stig út úr fyrstu þremur mótum ársins, á meðan Brawn hefur leikið á alls oddi og Jenson Button hefur unnið þrjú fyrstu mót ársins. Forseti Ferrari, Luca Montezemolo mætti til Bahrein til að sýna liðinu stuðning
"Við erum á leiði í rétta átt með bíla okkar, eftir erfiða byrjun og Lewis Hamilton gekk líka betur í Bahrein en áður. Raikkönen ók mjög vel, en bílinn skortir meira niðurtog frá yfirbyggingunni senn sem komið er. Við verðum að gæta þess að hafa fæturna á jörðinni þrátt fyrir slakara gengi en síðustu ár", sagði Domenicali.
"Massa var í vandræðum með KERS kerfið og svo var tölvubúnaður bílsins bilaður, þannig að við vissum aldrei ástand bílsins. Þá lentum við í vandræðum að festa framdekk hjá Raikkönen í þjónustuhléi og Rubens Barrichello slapp framhjá ookur. Næsta mót er mikilvægt, í Barcelona á Spáni. Það er ekki síðasti sjéns okkar í titilslagnum. Sígandi lukka er best."
