Viðskipti innlent

Marel eitt á hreyfingu í Kauphöllinni

Úr framleiðslusal Marel Food Systems.
Úr framleiðslusal Marel Food Systems.

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems lækkaði um 2,96 prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Fjögur viðskipti upp á 24,7 milljónir króna standa á bak við lækkunina.

Önnur hreyfing er ekki á hlutabréfamarkaðnum.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15)hefur lækkað um 0,23 prósent og stendur hún í 222 stigum. Nýja vísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,38 prósent og stendur hún í 650,7 stigum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×