Bakkavör tapaði 3,8 milljörðum á síðasta fjórðungi 30. október 2008 09:56 Ágúst og Lýður Guðmundssynir, stofnendur Bakkavarar. Mynd/GVA
Bakkavör tapaði 19,5 milljónum punda, jafnvirði tæpra 3,8 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 11,3 milljóna punda hagnað á sama tíma í fyrra. Þetta er 273 prósenta samdráttur á milli ára. Rekstrarhagnaður Bakkavarar nam 29,4 milljónum punda, jafnvirði 5,4 milljarða íslenskra, á fjórðungnum. Það er 26 prósenta lækkun frá sama tíma í fyrra. Sé litið til fyrstu níu mánaða ársins nam rekstrarhagnaðurinn 16,1 milljón punda sem er næstum fjórðungslækkun á milli ára. Velta nam 402,8 milljónum punda á síðasta fjórðungi, sem er sjö prósenta aukning á milli ára. Veltan jókst um tíu prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Bakkavör lokaði skiptasamningi sínum í írska samlokuframleiðandanum Greencore Group í október þar sem fjármögnun samnings vegna 10,9 prósenta hlutar í fyrirtækinu var dregin til baka. Tap fyrirtækisins af samningnum nam 58,5 milljónum punda, jafnvirði 10,7 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Fyrirtækið boðar hagræðingu í framleiðslu félagsins á tilbúnum réttum á yfirstandandi ársfjórðungi. Haft er eftir Ágúst Guðmundssyni, forstjóra, í tilkynningu að félaginu hafi orðið ágengt í mjög krefjandi rekstrarumhverfi en helstu áherslur sé að lágmarka áhrif verðhækkana á hráefni, ná fram meiri hagkvæmni í rekstri, auka markaðshlutdeild og sjóðstreymi félagsins enn frekar. Uppgjör Bakkavarar
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Atvinnulíf Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Viðskipti innlent Icewear Garn opnar í Kringlunni Samstarf Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Sjá meira