Innlent

Reynir: Vorum grátbeðnir um að birta fréttina ekki

Reynir Traustason, annar af ritstjórum DV.
Reynir Traustason, annar af ritstjórum DV.

Reynir Traustason, einn af ritstjórum DV, segir að ritstjórn blaðsins hafi verið grátbeðinn um að birta ekki frétt um Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóra Landsbankans í byrjun nóvember. Ákveðin öfl hafi viljað „stúta“ blaðinu. Maðurinn sem stóð að baki hótunum var Björgólfur Guðmundsson, fyrrum stjórnarformaður Landsbankans.

Þetta kemur fram í upptöku af samtali Reynis og Jóns Bjarka Magnússonar, fyrrum blaðamanns á DV, sem sá síðarnefndi tók upp í nóvember og var birt í Kastljósi fyrr í kvöld.

Jón Bjarki greindi frá því á vefritinu NEI í dag að Reynir hafi stöðvað birtingu greinar sem hann skrifaði um Sigurjón í byrjun nóvember. Fréttin snérist um að Sigurjón væri að koma á fót ráðgjafarfyrirtæki í húsnæði Landsbankans og að hann vonaðist eftir verkefnum frá Landsbankanum.

„Þarna eru bara öfl sem munu stúta okkur,“ sagði Reynir samkvæmt upptökunni. Alvaran hafi verið gríðarlega. Hann sagði að ritstjórn blaðsins hafi þurft að vega og meta hvort þetta mál væri þess eðlis að taka slaginn. Stórir aðildar úti í bæ hafi í krafi fjármagns komið í veg fyrir að fréttin yrði birt.

Ritstjórar DV, feðgarnir Reynir og Jón Trausti Reynisson, sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem þeir segja Jón misskilja hlutverk sitt sem blaðamanns. Rangt sé að stórir aðilir hafi komið í veg fyrir að fréttin yrði birt. Jafnframt sögðu þeir að Jón væri í herferð gegn DV. Feðgarnir fullyrtu að áður hafi þurft að stoppa fréttir frá blaðamanninum.

„Þú ert einn af okkar bestu mönnum,“ sagði Reynir í samtali sínu við Jón.


Tengdar fréttir

Yfirlýsing blaðamanna DV

Blaðamenn DV senda frá sér yfirlýsingu í tilefni skrifa Jóns Bjarka Magnússonar fyrrverandi blaðamanns DV. Þar segjast þeir vera ósérhlífnir og þjóni eingöngu sannleikanum og almenningi í heiðarlegri viðleitni til að upplýsa um málefni sem oftar en ekki brenna á þjóðinni.

Stöðvaði ekki fréttina

Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Birtings, sem gefur út DV segist ekki hafa gert neina kröfu um að birting fréttar um Sigurjón Árnason, fyrrveranda Landsbankastjóra, yrði stöðvuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×