Á alveg eins von á að vera bara á Íslandi 10. september 2007 16:40 Helgi Már er kominn á kunnuglegar slóðir Mynd/E.Ól "
Ég fékk dálítið af fyrirspurnum frá öðrum félögum en ég gaf það alltaf til kynna að KR væri fyrsti kostur hjá mér," sagði landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon í samtali við Vísi.is í dag - skömmu eftir að hann handsalaði samning um að leika með Íslandsmeisturum KR í körfubolta í vetur. Helga verður frjálst að fara frá félaginu ef hann fær gott tilboð um að fara utan í atvinnumennsku, en hann segist alveg eins eiga von á þvi að vera í vesturbænum til vors. "Ég er að byrja í námi í HÍ, þannig að ég stekk ekki á hvað sem er. Ég mun bara setjast niður með Benna þjálfara ef eitthvað slíkt kemur upp," sagði Helgi, sem lék síðast með svissneska liðinu Boncourt. Hann stóð sig auk þess mjög vel með landsliðinu í síðustu leikjum. "Mér líst þrælvel á þetta KR-lið í dag og mér finnst við vera með sterkari hóp núna en í fyrra. Þetta er mjög þéttur hópur og ég held að menn geri tilkall til þess að vinna titilinn aftur. Það eru mjög spennandi tímar framundan hjá KR þar sem við erum á leiðinni í Evrópukeppni og svona, þannig að ég er mjög spenntur yfir þessu," sagði Helgi. Þjálfarinn hans er mjög kátur yfir liðsstyrknum. "Við vitum ekkert hvað Helgi verður lengi hjá okkur en við fögnum því innilega að geta haft hann í okkar liði. Helgi er ekki bara frábær leikmaður heldur er þetta toppdrengur og mikill liðsmaður sem vælir aldrei. Ég er nú búinn að þjálfa þá marga í gegn um tíðina og Helgi er einn af mínum uppáhaldsleikmönnum," sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR þegar Vísir náði tali af honum síðdegis. "Maður vonar auðvitað að Helgi komist að hjá góðu liði í atvinnumennsku, en persónulega myndi ég ekkert gráta mig í svefn ef hann yrði hjá okkur til vorsins," sagði þjálfarinn geðþekki.
Dominos-deild karla Mest lesið Sjáðu mörkin úr einum ótrúlegasta hálfleik í sögu Meistaradeildarinnar Fótbolti Linsan datt út en varði samt tvö víti Enski boltinn Sonur Rickys Hatton tjáir sig: „Elska þig, pabbi“ Sport Brot af því besta úr DocZone: „Er þetta ekki hættulegt?“ Enski boltinn Ragnar við toppinn í Fantasy: „Er þetta ekki rólegasti tíminn fyrir rithöfunda?“ Enski boltinn Hákon reyndist hetja Brentford Enski boltinn Segja áruna yfir röflandi Blikum slæma Íslenski boltinn Rekinn eftir tapið fyrir Qarabag og Mourinho gæti tekið við Fótbolti Dagskráin í dag: Boltinn rúllar í Meistaradeildinni Sport Ronaldinho og Usain Bolt reyna fyrir sér í þjálfun Sport Fleiri fréttir NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Caitlin Clark ekki meira með á tímabilinu Sjá meira