Framsókn í sókn 9. maí 2007 12:34 MYND/Stefán Karlsson
Framsóknarflokkurinn er í stórsókn ef marka má nýja könnun Capacent Gallup sem sagt var frá í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Flokkurinn nálgast nú kjörfylgi sitt og mælist með tvöfalt meira fylgi en í Gallup könnun í fyrradag. Framsóknarflokkurinn fengi 14,6 prósent atkvæða samkvæmt könnuninni væri gengið til kosninga í dag. Flokkurinn fékk hins vegar 7,6 prósent í könnun sama fyrirtækis í fyrradag og 9,8 prósent í gær. Samkvæmt könuninni fengi flokkurinn 9 þingmenn, en er með 11 í dag. Sjálfstæðismenn tapa nokkru fylgi og nálgast líka kjörfylgi sitt. Flokkurinn fær 35,9 prósent samkvæmt Gallup en mældist með 42 prósent í fyrradag. Þessi niðurstaða myndi skila flokknum 24 þingmönnum sem er aukning um tvo. Yrðu þetta niðurstöður kosninganna myndi ríkisstjórnin halda velli. Í könnuninni mælist Samfylkingin með 25 prósent, fengi 17 þingmenn og tapaði þremur. Vinstri græn tapa nokkru fylgi og fengju 14,5 prósent en bæta við sig fjórum þingmönnum frá því sem nú er og fengju 9 þingmenn. Frjálslyndi flokkurinn bætir við sig og fær 6,6 prósent sem gæfi 4 þingmenn, sömu tölu þeir hafa í dag. Íslandshreyfingin bætir einnig nokkru við sig og mælist flokkurinn nú með 3,3 prósent og kemur ekki inn manni. Úrtak könuninnar taldi 1048 mannsm, nettósvarhlutfall var 64,1 prósent. 86,6 prósent nefndu tiltekinn flokk, 5 prósent neituðu að svara, 5,8 prósent sögðust óákveðnir og 4,6 prósent ætla að skila auðu.
Kosningar 2007 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira