Gestur Jónsson lögmaður segir sakfellingu yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í Baugsmálinu mikil vonbrigði. Hann sagði við fréttamenn eftir dómsuppkvaðningu í hádeginu að afstaða dómara til málatilbúnaðarins endurspeglaðist í því að ríkið væri látið bera mestan hluta málskostnaðar. Hann segir að dómurinn verði skoðaður, en ekki sé búið að ákveða hvort málinu verði áfrýjað.
Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari segir ákæruvaldið hafa trúað því að um saknæmar athafnir hafi verið að ræða af hálfu sakborninganna. Ekki sé þó hægt að segja að um létti sé að ræða vegna sakfellingarinnar. Ákæruvaldið hafi ekki farið yfir dóminn.
Í niðurlagi dóms Héraðsdóms segir um ákærurnar og sakfellingu þeirra Jóns Ásgeirs og Tryggva:
"Ákæran var upphaflega í 19 liðum, en 1. lið hennar var vísað frá dómi eins og rakið var í II. kafla. Með þessum dómi hefur 10 liðum til viðbótar verið vísað frá dómi, auk þess sem ákæru á hendur ákærða, Jóni Gerald, hefur verið vísað frá dómi. Ákærði, Jón Ásgeir, hefur verið sakfelldur fyrir brot samkvæmt einum ákærulið og ákærði, Tryggvi, samkvæmt fjórum liðum.
Ákærði, Jón Ásgeir, er fundinn sekur um brot gegn 1. mgr., sbr. 3. mgr. 158. gr. almennra hegningarlaga og ákærði, Tryggvi, um brot gegn 2. mgr. 262. gr. sömu laga, sbr. 3. tl. 1. mgr. 37. gr. bókhaldslaga nr. 145/1994. Sakavottorð ákærðu skipta ekki máli við ákvörðun refsingar. Refsing ákærða, Jóns Ásgeirs, er hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði og refsing ákærða, Tryggva, fangelsi í 9 mánuði og hefur verið höfð hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar hans. Skilyrði eru til að skilorðsbinda refsingarnar og skulu þær falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins fyrir þeim, haldi þeir almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Við ákvörðun málsvarnarlauna er tekið mið af vinnuskýrslum verjenda og viðmiðunarreglum dómstólaráðs. Þá er virðisaukaskattur innifalinn í málsvarnarlaununum.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Jóns Ásgeirs, Gests Jónssonar hrl. ákveðast 15.300.000 krónur og skal ákærði greiða 1/10 hluta þeirra en að 9/10 hlutum skulu þau greidd úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Tryggva, Jakobs R. Möller hrl. ákveðast 11.900.000 krónur og skal ákærði greiða 1/5 hluta þeirra en að 4/5 hlutum skulu þau greidd úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Jóns Geralds, Brynjars Níelssonar hrl. ákveðast 7.900.000 krónur og skulu þau greidd úr ríkissjóði.
Sakarkostnaður samkvæmt yfirliti setts ríkissaksóknara nemur 55.802.221 krónu. Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 verða ákærðu, Jón Ásgeir og Tryggvi, dæmdir til að greiða hluta þess kostnaðar. Þegar litið er til þess að aðeins er sakfellt fyrir hluta ákæruatriða, lengdar aðalmeðferðar, sem var ekki að öllu leyti í samræmi við umfang málsins og þess að lagt var í kostnað vegna vitna sem ekki verður séð að þörf hafi verið á að leiða, verður ákærðu gert að greiða óskipt 5.000.000 króna í sakarkostnað til ríkissjóðs.
Af hálfu ákærða, Jón Ásgeirs, hefur verið krafist greiðslu kostnaðar vegna vinnu aðstoðarmanna verjanda hans. Þá hefur verið krafist greiðslu kostnaðar vegna vinnu PriceWaterhouseCoopers, en það endurskoðunarfyrirtæki vann álitsgerðir um ákæruliði 10 til 19. Loks er krafist greiðslu 685.192 króna vegna útlagðs skrifstofu- og ritfangakostnaðar og fylgja reikningar til stuðnings þeirri kröfu. Þegar litið er til umfangs málsins verður ekki hjá því komist að ákvarða kostnað vegna aðstoðarmannanna 25.000.000 króna og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Þá verður fallist á að skrifstofu- og ritfangakostnaður ákærða teljist til sakarkostnaðar. Hins vegar er ekki fallist á að vinna PriceWaterhouseCoopers hafi, nema að litlu leyti, verið óhjákvæmileg vegna rannsóknar og meðferðar málsins, sbr. 1. mgr. 164. gr. laga nr. 19/1991 og verður þessi kostnaður því ekki talinn til sakarkostnaðar. Samkvæmt þessu ákveðst kostnaður ákærða, Jóns Ásgeirs, 25.685.192 krónur og skal ákærði greiða 1/10 hluta hans, en 9/10 skulu greiddir úr ríkissjóði.
Dóminn kváðu upp Arngrímur Ísberg, héraðsdómari, dómsformaður, Jón Finnbjörnsson, héraðsdómari, og Garðar Valdimarsson, hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi.
Dómsuppsaga hefur dregist fram yfir lögmæltan tíma vegna umfangs málsins.
Dóminn má nálgast í heild sinni hér, en dómsorð er eftirfarandi:
Ákæruliðum 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 og 19 er vísað frá dómi.
Ákæru á hendur ákærða, Jóni Gerald Sullenberger, er vísað frá dómi.
Ákærði, Jón Ásgeir Jóhannesson, sæti fangelsi í 3 mánuði.
Ákærði, Tryggvi Jónsson, sæti fangelsi í 9 mánuði.
Fresta skal fullnustu refsinga ákærðu og falli þær niður að liðnum 2 árum frá birtingu dómsins fyrir þeim, haldi þeir almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Jóns Ásgeirs, Gests Jónssonar hrl., 15.300.000 krónur, skal ákærði greiða að 1/10 hluta, en að 9/10 hlutum skulu þau greidd úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Tryggva, Jakobs R. Möller hrl., 11.900.000 krónur, skal ákærði greiða að 1/5 hluta, en að 4/5 hlutum skulu þau greidd úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Jóns Geralds, Brynjars Níelssonar hrl., 7.900.000 krónur skulu greidd úr ríkissjóði.
Ákærðu, Jóns Ásgeir og Tryggvi, greiði óskipt 5.000.000 króna í sakarkostnað til ríkissjóðs.
Kostnaður ákærða, Jóns Ásgeirs, 25.685.192 krónur, skal að 1/10 hluta greiddur af ákærða, en að 9/10 hlutum skal hann greiddir úr ríkissjóði.
Arngrímur Ísberg
Jón Finnbjörnsson
Garðar Valdimarsson