Brynjar Níelsson verjandi Jóns Geralds Sullenberger hélt lokaræðu sína nú rétt í þessu í Héraðsdómi. Hann sagði upphæð kreditreiknings frá Nordica upp á 62 milljónir króna fáránlega. Hún jafngilti nánast öllum viðskiptum Baugs og Nordica á árinu 2001.
Jón Gerald er ákærður fyrir að hafa aðstoðað Jón Ásgeir og Tryggva við að rangfæra bókhald Baugs með því að útbúa tilhæfulausan reikning. Tvímenningarnir hafa haldið því fram að reikningurinn hafi verið gefinn út vegna vandræðalagers hjá Baugi af vörum Nordica.
Brynjar sagði ekki rétt að Jón Gerald hefði viðurkennt sök. Hann hefði hins vegar viðurkennt að reikningurinn var tilhæfulaus. Ekki væri refsivert að útbúa tilhæfulausan reikning.
Brynjar benti á að reikningurinn hefði verið útbúinn í Miami í Bandaríkjunum og frumritið aldrei farið þaðan. Hann hafi verið sendur í faxi til Tryggva en aldrei farið í bókhald Baugs. Upphæð reikningsins hefði verið færð í lokafærslu bókhaldsins, en reikningurinn sjálfur hafi ekki verið fylgiskjal með henni. Texti lokafærslunnar bendi til þess.
Brynjar benti á að Jón Gerald hefði ekki gert ráð fyrir að hægt væri að færa reikninginn í bókhald. Hann hafi ekki sett hann í bókhald hjá sér.
Þá benti Brynjar á að ekki væri refsiheimild til staðar. Kveðið væru á um í íslenskum lögum að verknaður sem íslenskir ríkisborgarar fremdu erlendis skyldi refsa samkvæmt íslenskum lögum ef sambærileg lög væru í landinu þar sem brotið var framið. Saksóknari hefði ekki lagt fram nein gögn um að sambærileg lög giltu í Bandaríkjunum um útgáfu svona reikninga. Því ætti að sýkna á þeim grundvelli.
Brynjar taldi ekki hægt að útiloka frávísun. Hann vísaði í nýlegan hæstaréttardóm yfir forstjórum olíufélagnna. Ákæra setts saksóknara yrði ekki reist á þeirri lögreglurannsókn sem fram hefði farið eftir aðsaksóknari tók við málinu.
Rannsóknin hefði verið þannig að Jón Gerald hefði verið kvaddur til lögreglu og honum sagt að hann hefði réttarstöðu sakbornings. Hann hefði verið spurður hvort hann hefði borið rétt sem vitni í fyrra málinu. Hann jánkaði því. Í kjölfarið hafi ákæran verið gefin út. Ekki væri hægt að segja með nokkurri sanngirni að þessi málsmeðferð væri sanngjörn.
Þá sagði Brynjar til háborinnar skammar hvað skjólstæðingur hans hefði þurft að þola. Það fengi hann næstum til að gráta.
Hann gerði einnig athugasemdir við orð Gests Jónssonar um trúverðugleika Jóns Geralds. Þegar verið væri að meta trúverðugleika manns skipti ekki máli hvaða hug hann bæri til annarra eins og verjandi Jóns Ásgeirs hefði haldið fram. Meta ætti trúverðugleika manna út frá samræmi framburðar, gögnum og hvort framburðurinn hefði verið stöðugur. Engin ástæða væri til annars en að taka orð Jóns Geralds sem rétt og sönn.
Nú taka við seinni ræður saksóknara og verjenda og reiknað er með að ljúka málinu klukkan sex.