Tónlist

Latir blaðamenn

Annar helmingur The White Stripes er ósáttur við blaðamenn.
Annar helmingur The White Stripes er ósáttur við blaðamenn.

Jack White, annar helmingur rokkdúettsins The White Stripes, segir að blaðamenn séu latir og nenni ekki að hafa staðreyndirnar á hreinu áður en þeir taki við sig viðtöl.



„Blaðamenn eru örugglega latasta fólkið á jarðríki. Þrátt fyrir að Google sé til þá nenna þeir ekkert að undirbúa það sem þeir ætla að skrifa um,“ sagði White. „90 prósent af þeim upplýsingum sem þeir nota koma úr fréttatilkynningum. Við leikum okkur oft með þær eins og þegar við gáfum út Elephant. Þá setti einhver inn brandara um að við notuðum ekki hljóðversgræjur nema þær væru búnar til eftir 1963. Áður en maður vissi af hélt fólk að við notuðum ekkert nema það væri sextíu ára!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×