Skoðun

Öfgalaus stefna í málefnum Palestínu

Árni Páll Árnason skrifar
Þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, kynnti á Alþingi í vor þá fyrirætlan sína að fara til Palestínu til að kynna sér stöðu mála þar frá fyrstu hendi kallaði Staksteinar Morgunblaðsins það barnaskap. Í heimsókninni var áhersla lögð á að íslenski utanríkisráðherrann væri kominn til að hlusta og til að kynnast aðstæðum og veruleika venjulegs fólks. Þess vegna ræddi hún við fjölda fólks beggja þjóða. Þegar þessari vel heppnuðu heimsókn er lokið vænir þingflokksformaður VG utanríkisráðherra um að ganga erinda Bandaríkjastjórnar. Þannig hittast þeir Staksteinar og Ögmundur í ástríku faðmlagi um svarthvíta heimsmynd fortíðarinnar.

Fátt er fjær sanni en að heimsókn þessi hafi verið innan ramma utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar. Íslandi er einmitt tekið vel á svæðinu því Íslendingar hafa ekki stórveldishagmuni að verja. Það er sérkennilegt að sjá Ögmund taka sér stöðu sem blaðafulltrúa Hamas, þegar viðleitni stuðningsríkja Palestínumanna um heim allan er að stuðla að einingu Palestínumanna. Innra stríð milli Palestínumanna á Gaza fyrir þremur vikum var harmleikur á harmleik ofan.

Utanríkisráðherra taldi í vor eðlilegt að Íslendingar fylgdu í fótspor Norðmanna og þróuðu samskipti við þjóðstjórn Palestínu. Það er hryggileg staðreynd að einangrun þjóðstjórnarinnar á Vesturlöndum var líklega afdrifarík mistök. Síðan hafa Hamasliðar tekið stjórn á Gaza með vopnavaldi og gengið úr þjóðstjórninni. Við þessar aðstæður er óhugsandi að utanríkisráðherra viðurkenni í reynd vopnað valdarán með því að funda með Hamas. Það gera Norðmenn heldur ekki. Hamas verða að ákveða hvort samtökin eru stjórnmálasamtök sem vinna á friðsamlegum og lýðræðislegum forsendum eða öfgasamtök íslamista sem stefna að eilífum hernaði gegn Ísraelsríki.

Eitt er þó ljóst. Utanríkisráðherra hefur sýnt frumkvæði að stefnumörkun á sviði utanríkismála sem er máluð í fleiri litum en svörtum og hvítum. Það er svo undir þeim fóstbræðrum Ögmundi og Staksteinari komið hvort þeir ætla að vera með í því verki eða ekki.

Höfundur er varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×