Tónlist

Blunt samdi plötu á Ibiza

Popparinn James Blunt gefur út nýja plötu á næstunni.
Popparinn James Blunt gefur út nýja plötu á næstunni.

Næsta plata breska popparans James Blunt, All the Lost Souls, kemur út 18. september. Fyrsta smáskífulagið af plötunni, 1973, er væntanlegt á öldur ljósvakans. Fékk Blunt innblásturinn að laginu þegar hann dvaldi á Ibiza við Spán þar sem hann samdi plötuna.



„Ég hafði ekki verið einn í þrjú ár. Ég hafði sofið í tónleikarútu með tólf manns. Þetta var því gott tækifæri fyrir mig til að stoppa og líta í kringum mig og sjá hvað hafði gengið á í lífi mínu og finna ró í leiðinni,“ segir Blunt. Dvaldi hann megnið af síðasta ári á Ibiza þar sem hann jafnaði sig eftir skilnaðinn við tékknesku fyrirsætuna Petru Nemcovu.



Fyrsta plata Blunt, Back to Bedlam, kom út árið 2004 í Bretlandi og ári síðar í Bandaríkjunum. Hefur hún selst í ellefu milljónum eintaka og sló lagið You"re Beautiful rækilega í gegn. „Ég á örugglega ekki eftir að selja ellefu milljón eintök af nýju plötunni,“ sagði Blunt. „Ég á góðar minningar frá síðustu plötu en ég ætla ekki að reyna að herma eftir henni á neinn hátt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×