Handbolti

Slæmt tap Viggó og félaga

Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska handknattleiksliðinu Flensborg reið ekki feitum hesti frá heimsókn sinni til Celje Lasko í Meistaradeildinni í kvöld og tapaði stórt, 41-31.

Um var að ræða fyrri viðureign liðana í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en síðari leikurinn fer fram í Þýskalandi nk. föstudag. Flensborg átti aldrei möguleika í leiknum en staðan í hálfleik var 21-14, heimamönnum í vil. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×