Tap Spalar 81 milljón 19. maí 2006 13:47 Mynd/Pjetur
Spölur ehf., sem rekur Hvalfjarðargöng, tapaði 81 milljón króna á sex mánaða tímabili frá 1. október í fyrra til 31. mars á þessu ári. Tapið á sama tíma í fyrra og hitteðfyrra nam 188 milljónum króna. Í sex mánaða uppgjör fyrirtækisins kemur fram að tap á öðrum ársfjórðungi fyrirtækisins, frá 1. janúar á þessu ári til 31. mars síðastliðins, nam 63 milljónum króna. Á sama tíma í fyrra nam það 326 milljónum króna. 730 þúsund ökutæki fóru í gegnum Hvalfjarðargöng á tímabilinu. Reikningsár Spalar ehf. er frá 1. október til 30. september ár hvert. Í sex mánaða uppgjörinu kemur fram að veggjald í Hvalfjarðargöng hafi numið 382 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins en til samanburðar nam það 407 milljónum króna. Er því um 6 prósenta lækkun að ræða á milli ára. Rekstrarkostnaður án afskrifta nam 97 milljónum króna. Hann var 92 milljónir króna á sama tímabili í fyrra og nemur hækkunin 5,4 prósentum. Þá jukust skuldir Spalar ehf. úr 4,8 milljörðum króna þann 30. september 2005 í rúma 5 milljarða þann 31. mars á þessu ári og nemur hækkunin 5,5 prósentum. Haft er eftir Gylfa Þórðarsyni, framkvæmdastjóra félagsins, í tilkynningu, að heildarafkoman hafi verið í takt við áætlanir félagsins og séu umferðarmestu mánuðir ársins framundan sem að alla jöfnu muni skila mestum tekjum. Á þessu sex mánaða tímabili fóru 730.000 ökutæki um Hvalfjarðargöng. Það er 18 prósenta aukning frá fyrra ári og jafngildir því að 4.000 ökutæki hafi farið um göngin á hverjum degi.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Viðskipti innlent Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Viðskipti erlent Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Viðskipti erlent Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Fleiri fréttir Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert Sjá meira