Sport

Vill ljúka ferlinum í Bandaríkjunum

David Beckham er hrifinn af Bandaríkjunum og vill ljúka ferlinum sem knattspyrnumaður þar í landi
David Beckham er hrifinn af Bandaríkjunum og vill ljúka ferlinum sem knattspyrnumaður þar í landi NordicPhotos/GettyImages

David Beckham segist vilja ljúka knattspyrnuferlinum í Bandaríkjunum þegar hann hættir að spila með spænska liðinu Real Madrid. Hann segist hafa heillast mikið af ástríðu Bandaríkjamanna og langar því að spila í bandarísku úrvalsdeildinni áður en hann leggur skóna á hilluna.

"Ég væri vel til í að spila í Bandaríkjunum þegar ég hætti að spila með Real eftir nokkur ár," sagði Beckham, sem nýverið opnaði knattspyrnuskóla í London og Los Angeles. "Bandaríkjamennirnir eru rosalega ástríðufullir og ég væri til í að taka þátt í að byggja knattspyrnuna upp þar í landi þegar ég hætti að spila með Real," sagði Beckham.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×