Hlutabréf seldust fyrir nær fjórum sinnum hærri upphæð í Kauphöll Íslands fyrstu þrjá mánuði þessa árs en á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Alls jókst veltan í Kauphöllinni um nær 160 prósent.
Fjárfestar keyptu hlutabréf og skuldabréf fyrir tuttugu milljarða króna á dag fyrstu þrjá mánuði ársins en það er tvöfalt meira en meðalkaup fjárfesta allt síðasta ár.