Eimskip kaupir helming í Innovate 27. mars 2006 12:57 Mynd/E.Ól.
Eimskip eignast helming hlutafjár í breska landflutningafyrirtækinu Innovate Holdings fyrir lok apríl. Samkomulag er milli aðila um að Eimskip eignist félagið að fullu síðar en stjórnendur Innovate munu halda áfram störfum. „Innovate Holdings er leiðandi fyrirtæki í frysti- og kæliflutningum í Bretlandi og vill vaxa frekar," segir Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips. „Hluti af okkar stefnu er að vaxa með innri og ytri vexti." Velta Innovate er áætluð 15 milljarðar króna á þessu ári en fyrir stuttu tvöfaldaðist félagið að stærð með kaupum á sambærilegu fyrirtæki. Fyrirtækið rekur 25 vörugeymslur á ellefu stöðum á Bretlandseyjum og er geymslugetan 370 þúsund tonn, eða fimmtíuföld geymslugeta Eimskips á Íslandi. Meðal viðskiptavina Innovate má nefna Tesco, Sainsbury´s, Nestlé og Northern Foods. Kaupverð hlutanna fæst ekki gefið upp en Glitnir annaðist ráðgjöf vegna kaupanna. Jafnframt hafa stjórnendur Eimskips greint frá því að þeir séu að ganga frá kaupum á Framaleiðinni sem hefur verið ríkisrekin starfsemi á landflutningum í Færeyjum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Sjá meira
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki