Við þurfum ekki Ronaldinho 8. mars 2006 17:51 Þeir Eiður Smári, Lampard og Terry verða að bíða að minnsta kosti eitt ár í viðbót eftir tækifæri til að vinna Meistaradeildina NordicPhotos/GettyImages
John Terry og Frank Lampard hjá Chelsea segja að Chelsea þurfi ekki leikmenn eins og Ronaldinho til að vinna Meistaradeildina og benda á að Chelsea hafi í sínum röðum leikmenn sem geta breytt gangi leiksins upp á eigin spýtur með einstaklingsframtaki. "Munurinn á þessum liðum er lítill og kannski er það oft snilli leikmanna eins og Ronaldinho sem gerir gæfumuninn eins og í gær. Hann er hinsvegar leikmaður sem getur gert svona hluti í hvaða leik sem er og við höfum nú sjálfir leikmenn sem geta þetta líka. Viðureign okkar í ár var mjög jöfn og spennandi rétt eins og í fyrra og ég held að Chelsea og Barcelona séu klárlega tvö af betri liðum Evrópu," sagði Frank Lampard. "Mér finnst ósanngjarnt að segja að við þurfum að kaupa leikmenn eins og Ronaldinho sem geta gert gæfumuninn í hvaða leik sem er, því við höfum þegar slíka leikmenn í hópnum. Menn eins og Arjen Robben, Damien Duff og Joe Cole eru allir svona leikmenn," sagði John Terry og viðurkenndi að tapið hefði fengið þungt á sig. "Það er viðbúið að maður geti tapað þegar maður er að keppa við bestu lið heimsins í keppni eins og Meistaradeildinni, en við tökum því eins og hverju öðru hundsbiti. Við tækjum því alveg að mæta Barcelona aftur á næsta ári - hvort sem það er í 16-liða úrslitum eða úrslitaleik. Það er þetta sem fótboltinn snýst um," sagði Terry.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Sjá meira