Stóðust próf FME 2. nóvember 2006 06:30
Regluvarsla hjá bæði Marel og Atlantic Petroleum er almennt í lagi samkvæmt reglubundinni úttekt Fjármálaeftirlitsins á framkvæmd reglna um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipta innherhja. Þó er í úttektunum bent á einhver atriði sem betur mættu fara, svo sem vöntun á að listar með yfirliti yfir tímabundna innherja hafi verið sendir eftirlitinu eða að ekki hafi verið staðið að slíkum sendingum með fullnægjandi hætti. Hjá fyrirtækjunum er þó sagður bæði metnaður og vilji til að framkvæmd reglna sé eins og best verði á kosið. Fjármálaeftirlitið segir megintilgang úttekta sem þessara fyrirbyggjandi eftirlit og aukinn trúverðugleika félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Um leið er lögð áhersla á að fræða félögin um hvernig haga beri innherjaviðskiptum og meðferð innherjaupplýsinga og koma þannig í veg fyrir misnotkun þeirra, en hlutverk regluvarða er að hafa umsjón með því að þessum reglum sé framfylgt af hálfu félagsins. Birting á niðurstöðum úttektanna er hluti af gagnsæisstefnu Fjármálaeftirlitsins sem meðal annars kveður á um að FME birti upplýsingar einstakra athugana á heimasíðu sinni.
Héðan og þaðan Viðskipti Mest lesið Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Viðskipti innlent Kristjana til Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Verðbólguþróunin áhyggjuefni Viðskipti innlent Ístak bauð best í frágang á nýja Landspítalanum Viðskipti innlent Hagnaður bankans 8,2 milljarðar á þriðja ársfjórðungi Viðskipti innlent Bein útsending: Listi Framúrskarandi fyrirtækja birtur Viðskipti innlent Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Viðskipti innlent 80 ára fyrirtæki í örum breytingum og vexti Framúrskarandi kynning Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Kristjana til Samtaka atvinnulífsins Verðbólguþróunin áhyggjuefni Bein útsending: Listi Framúrskarandi fyrirtækja birtur Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Hagnaður bankans 8,2 milljarðar á þriðja ársfjórðungi Ístak bauð best í frágang á nýja Landspítalanum Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Segja þingmann draga upp skakka mynd af stöðu nýsköpunar Eigandi skrifstofu í Kringlunni þarf að borga fyrir auglýsingar Stjórnendur Íslandsbanka enn undir feldi Fyrrverandi starfsmenn endurvekja Lagningu Reikna með 1,5 milljarði króna í sjóböðin í Önundarfirði Enn meiri veikleikar í samkeppnishæfni Íslands en ESB Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Mun leiða svið markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Advania Finna meira gull á Grænlandi Jónas Már til Réttar „Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Hætt við að vextir hækki „Niðursveifla í byggingariðnaði er hafin“ Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Ráðin framkvæmdastjóri Sólar ehf. Tilkynntu Terra og Kubb eftir fundi með sveitarfélögum Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Síldarvinnslan birtir jákvæða afkomuviðvörun Sjá meira