
Barnleysi getur verið sársaukafullt vandamál
Þeir einstaklingar/pör sem eiga við ófrjósemi að stríða eru meðal þeirra sem þiggja þjónustu frá heilbrigðiskerfinu. Skilgreining á ófrjósemi er þegar par hefur reynt að eignast barn í eitt ár án árangurs. Talið er að 15-20% para á barneignaraldri glími við ófrjósemi einhvern tímann á lífsleiðinni. Ófrjósemi er fyrst og fremst líffræðilegt vandamál enda þótt sálrænir þættir hafi svo sannarlega áhrif.
Tilvera, samtök gegn ófrjósemi, voru stofnuð 1989. Hlutverk Tilveru er m.a. að standa við bakið á sjúklingum sem þarfnast tæknifrjóvgunarmeðferðar. Aðeins þeir sem hafa verið og eru í þeirri stöðu að eiga við ófrjósemi að stríða og reynt hafa að eignast barn með aðstoð tæknifrjóvgunar vita hversu mikið álag og áhrif það hefur á tilfinninga- og líkamlega líðan. Ef meðferðin skilar ekki árangri eykst álagið oft enn frekar þegar tilfinningar eins og sorg, vonleysi og kvíði gera vart við sig. Hversu mikið erum við sem samfélag tilbúin til að hjálpa þessum hópi og í hverju gæti hjálpin einna helst falist?
Fyrir rúmum tveimur árum var tæknifrjóvgunardeildinni á LSH lokað og gerður var samningur við ART Medica um að annast þessa þjónustu. Enda þótt aðilar hafi vafalaust viljað gera góðan samning koma oft veikleikar slíks samkomulags ekki í ljós fyrr en á reynir. Sem dæmi sýndi það sig að í fyrsta samningnum sem gerður var milli ART Medica, LSH og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis var samið um færri glasa/smásjárfrjóvganir en eftirspurn var eftir. Sú hjálp sem mun helst nýtast þeim sem eiga við ófrjósemi að stríða hlýtur fyrst og fremst að lúta að þjónustunni sem þeim stendur til boða eða á að standa til boða. Tæknifrjóvganir eru dýrar og oft er fleiri en einnar meðferðar þörf. Þeir sem eiga rétt á niðurgreiðslu greiða fyrir glasafrjóvgun á bilinu 137.000 til 256.000 krónur eftir því hversu margar meðferðir parið hefur farið í. Kostnaður miðast einnig við hvort parið á eitt eða fleiri börn saman. Heildarkostnaður án niðurgreiðslu er 307.000 krónur. Í lögum um tæknifrjóvgun, 1996 nr. 55, 29. maí, kemur fram í 2. málsgrein 2. greinar að "Heilbrigðisstofnun sem fær leyfi skv. 1. mgr. er skylt að bjóða pörum sem sækja um tæknifrjóvgunarmeðferð faglega ráðgjöf sérfræðinga, svo sem félagsráðgjafa eða sálfræðinga". Þessu er ekki sinnt í dag sem skyldi.
Ófrjósemi virðist vera vaxandi vandamál. Ástæða þess að um er að ræða vaxandi vandamál er varla hvorki einhlít né einföld. Mörgum finnst auðvelt að setja sig í spor þeirra sem eiga við þennan vanda að stríða jafnvel þótt þeir hafi ekki sjálfir persónulega reynslu af honum. Ég er þeirrar skoðunar að hlúa þurfi betur að þessum einstaklingum. Málefni þeirra eru mér hugleikin og myndi ég gjarnan vilja fá tækifæri til að taka þátt í að finna leiðir sem gætu komið til góða. Hér myndu margir vilja spyrja hvar taka eigi fjármagn til að styðja við bakið á þessum hópi. Í ljósi þess fjárhagsvanda sem heilbrigðiskerfið hefur átt við að glíma má flestum vera ljóst að engin einföld svör blasa við. Áframhaldandi vinna í átt að enn frekari hagræðingar bíður sem fyrr svo þessir sem og aðrir áþekkir munu geta notið góðs af.
Höfundur er varaþingmaður og gefur kost á sér í 6. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík
Skoðun

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar