Excel Airways, sem er dótturfélag Avion Group, er orðin fimmta stærsta ferðaskrifstofa Bretlands, samkvæmt samantekt breskra flugmálayfirvalda. Tölurnar taka til seldra ferða 2005-6.
Félagið hækkar um þrjú sæti á milli ára en seldum ferðum þess fjölgaði úr 800 þúsund í eina milljón. Stjórnendur Excel búast við áframhaldandi aukningu vegna aukinna umsvifa dótturfélaga og kaupa á nýjum ferðaskrifstofum.
TUI Group er stærsta ferðasamsteypa Bretlands en Thomas Cook kemur næst.