Nærri 40 prósenta arðsemi hjá MP 23. ágúst 2006 07:15 Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri MP Bankinn skilaði methagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins.
MP Fjárfestingarbanki hagnaðist sem nam 615 milljónum króna á fyrri hluta ársins sem er yfir 78 prósenta aukning milli ára. Jafngildir þetta um 39 prósenta arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli. Hreinar rekstrartekjur MP voru 1.077 milljónir króna. Vaxtatekjur voru neikvæðar um 250 milljónir, þóknunartekjur voru 569 milljónir króna og gengishagnaður af fjármálastarfsemi var 725 milljónir króna. Mikill gengishagnaður varð af verðbréfastarfsemi eða 1.693 milljónir króna, hins vegar nam gengistap af gjaldmiðlum um 968 milljónum króna. Heildareignir bankans voru 24,8 milljarðar króna um mitt ár og höfðu dregist saman um eitt prósent frá áramótum. Þar af lækkuðu markaðsverðbréf og eignarhlutur í öðrum félögum um fimmtung frá áramótum og námu 15,6 milljörðum króna. Umsvif bankans voru aukin erlendis en efnahagsreikningur bankans hérlendis dróst saman. Eigið fé bankans hækkaði um einn milljarð króna á tímabilinu og stóð í 4.378 milljónum króna í lok júní. Hækkunin kemur að hluta til vegna aukins hlutafjár en innra virði hlutafjár hefur hækkað um 22 prósent á árinu, úr 3,35 í 4,09. Margeir Pétursson og félög í hans eigu eiga stærstan hlut í MP.
Viðskipti Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira