Eimskip á nú sjötíu prósenta hlut í skipafélaginu Kurisu Linija, eftir að gengið var frá kaupum tuttugu prósenta hlutar til viðbótar við þau fimmtíu prósent sem Eimskip átti fyrir. Heildarkaupverð sjötíu prósenta hlutar í fyrirtækinu er um 460 milljónir íslenskra króna.
Eimskip tryggði sér einnig kauprétt á þrjátíu prósenta hlut til viðbótar eftir fjögur ár og yrði Kursiu Linija þá alfarið í eigu félagsins. Eimskip fjármagnar kaupin með eigin fé.
Auka hlut sinn í Kursua Linija
