Af fótboltafári og fyrirtækjum 19. júní 2006 07:00 andlit burger king Þýski landsliðsmarkvörðurinn er andlit Burger King þessa dagana og víða í Þýskalandi má sjá Kahn með hamborgara í munninum. Ekki fer neinum sögum af því hvort þessi auglýsingaherferð hefur stóraukið sölutölurnar hjá hamborgararisanum. MYND/getty images
Á fjögurra ára fresti, eða þegar HM í fótbolta fer fram, fer af stað umræðan um hið svokallaða fótboltafár eða "football fever" eins og það nefnist á ensku. Eftir að hafa dvalist í Köln í einn dag hef ég loksins öðlast skilning á þessu fyrirbæri. Segja má að Íslendingar fái aðeins snert af þessu fári sem nær út um alla heimsbyggð og sameinar knattspyrnuáhugamenn frá hverju heimshorni, eins og gjarnan er talað um í fótboltafræðunum. Upplifunin á fárinu er að sjálfsögðu meiri hjá þátttökuþjóðunum hverju sinni en yfirgnæfandi mest er fárið þó í gestgjafaþjóðinni hverju sinni. Það er ekki fyrr en komist er í stemninguna hjá henni sem vitneskja fæst um hvað fárið snýst í raun og veru. Fárið er nánast ómögulegt að skýra út með orðum, en að stærstu leyti er þetta tilfinning sem maður upplifir í daglegum venjum sem flestar kristallast í yfirgnæfandi markaðsvæðingu sem hertekur öll fyrirtæki, stór sem smá, sem kappkosta við að nýta sér fárið. Þannig stendur fótboltafárið ekki alveg undir sjálfu sér eitt og sér heldur ákvarðast umfang þess að miklu leyti á því hversu margir nýta sér það og verða þar með hluti af því. Flókin útskýring kannski en ég skal reyna betur. Hér í Köln er nánast hvert einasta auglýsingaskilti tengt HM á einn eða annan hátt og þá skiptir í raun engu hvaða eða hvers konar fyrirtæki eru að auglýsa. Íþróttavöruframleiðendurnir fara hamförum í herferðum sínum en símafyrirtækin eru einnig áberandi þátttakendur í fárinu, sem og bjórframleiðendur og þekktustu skyndibitastaðir heims. Þannig er Oliver Kahn, af öllum mönnum, andlit Burger King í Þýskalandi í sumar. Margar fatabúðir eru með svokallaða HM-daga þar sem flíkur eru á mögnuðum tilboðum, Cafu er helsta fyrirsæta H&M-búðanna og í einni þýskri jakkafatabúð sem ég gekk framhjá var mynd í glugganum af Jurgen Klinsmann frá því á blaðamannafundi í síðustu viku. Við hlið hans var spjald með áletruninni: "Svona jakkaföt fást hjá okkur" og síðan benti stór ör á fötin sem Klinsmann klæddist. Steininn tók síðan úr þegar ég sá Bastian Schweinsteiger á einu 15x15 metra stóru auglýsingaskiltinu draga brosandi á eftir sér Samsonite-ferðatösku undir slagorðinu: "Bastian velur Samsonite!" Ensku bullurnar, sem fer fjölgandi í borginni fyrir stórleikinn gegn Svíum á morgun, áttu ekki orð yfir Zoolander-svip Schweinsteigers og hlógu sig máttlausa. Kahn og Sweinsteiger verða seint sagðir með fyrirsætuvænt útlit en það skiptir engu máli. Þeir eru leikmenn á HM og þar af leiðandi selja þeir - svo einfalt er það. En það eru ekki aðeins stóru fyrirtækin sem nýta sér fárið. Minni smásöluverslanir eru allar með fjölmörg HM-tilboð og litlir básar með HM-varningi eru úti um allt. Bakarí bjóða varla upp á brauð sem ekki eru eins og fótbolti í laginu og á vínarbrauðin er skrifað með glassúrnum "Klinsmann der König" eða kóngurinn Klinsmann. Meira að segja ein snyrtivörubúðin bauð upp á eitt af þessum antí-hrukkukremum og fullyrti að Franz Beckenbauer notaði það til að viðhalda ungu og fersku útliti. Á laugardagskvöldið fór ég svo á rótgróinn ónefndan bar hér í Köln. Ég fékk mér HM-tilboð, svokallaðan "Ballack-borgara" og lítinn öl á 3,90 evrur á meðan ég horfði á leik Tékklands og Ghana. Ölið kom í glasi sem á var mynd af Miroslav Klose að fagna marki. Í síðari hálfleik fór ég á salernið og þegar ég var að þvo mér um hendurnar sá ég Sulley Muntari innsigla sigur Ghana á 21 tommu flatskjá sem hafði verið komið fyrir á 10 fermetra stóru salerninu. Sumir spyrja hversu langt sé hægt að ganga en aðrir segja að þetta sé einfaldlega sjálfsögð þjónusta. Eftir einn dag í Þýskalandi set ég mig í síðari hópinn, enda strax orðinn djúpt sokkinn í fótboltafárið sem hefur sett þýska samfélagið á annan endann síðustu vikur og mun gera í að minnsta kosti þrjár vikur til viðbótar. Hér snýst bókstaflega allt um fótbolta …eða ætti ég að segja billjón króna iðnaðinn, sem hann reyndar er orðinn?
Íþróttir Mest lesið Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Keflavík sækir liðsstyrk Körfubolti Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti „Þetta er ekki kallað fótbolti heldur peningabolti“ Fótbolti Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Fótbolti Hermann látinn taka pokann sinn Fótbolti Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Fótbolti Fá góðar móttökur í Dallas Sport Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Enski boltinn Fleiri fréttir Fá góðar móttökur í Dallas Lárus Orri Sigurðsson: ,,Erum ekki í Evrópubaráttu” Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Heldur efsta sæti deildarinnar Öruggur sigur Fram á Skaganum Sinner rétt vann í fyrsta leik Wimbledon-mótsins „Þetta hafa verið erfiðir mánuðir“ Brasilía tryggði sig í 16-liða úrslit á dramatískan hátt Þjálfaraskipti hjá Val og mikilvægir leikir hjá landsliðinu Valenzuela frá Venesúela dæmir hjá Norðmönnum Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Ekki mistök að ráða Hermann en engin skyndiákvörðun að ráða Halldór „Ég hugsaði: ‚Hvað er að þér, Serena?“ Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Þriðja sinn á fjórum árum sem Valsmenn skipta um þjálfara í miðri á Sæti á risamóti í boði hjá Haraldi og Gunnlaugi Hermann látinn taka pokann sinn „Þetta er ekki kallað fótbolti heldur peningabolti“ Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Er „tölvuboltinn“ að trufla markverðina á HM? Óvæntur og „ótrúlega mikill heiður“ Maður dagsins á HM: „Gæti ekki hugsað mér mann sem átti þetta meira skilið“ Mikið þarf að gerast til að fá leik á milli Messi og Ronaldo á HM Forseti FIFA búinn að vera í loftinu í 66 klukkutíma á þessu HM Arnór seldur til Grikklands Tveimur refsað og Bergrós líklegast á leið á heimsleikana Sjá meira