Innlent

Tveir listar í framboði

Tveir listar verða í framboði við sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Bólstaðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps laugardaginn 10. desember næstkomandi. Listarnir eru Listi framtíðar og Nýtt afl.

Íbúar í hreppunum fjórum samþykktu sameiningu í kosningum í síðasta mánuði. Samhliða sveitarstjórnarkosningum verður kosið um nafn á nýju sveitarfélagi. Þrjú nöfn koma til greina: Húnavallabyggð, Húnavallahreppur og Húnavatnshreppur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×