Aukna þjónustu til sveitarfélaga 10. nóvember 2005 14:43
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra lýsti yfir vonbrigðum sínum með nýafstaðnar sameiningarkosningar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í morgun. Hann sagði ríkisvaldið hafa staðið við sitt með því að leggja fram tvo og hálfan milljarð en sú hvatning hafi greinilega ekki skilað sér. Hann segir jafnframt afkomu flestra sveitarfélaga ásættanlega og nefnir þá sérstaklga þau stærri. Í ræðunn lagði hann áherslu á aðstöðumun sveitarfélaga varðandi tekjur og tekjustofnsframlag ríkis. Þar sem sameiningarkosningar skiluðu ekki tilætluðum árangri segir hann erfiðara að færa þá auknu þjónustu sem ríkisvaldið vill sjá veitta hjá sveitarfélögum. Sú aukna þjónusta eru velferðarmál og þjónusta við aldraða og fatlaða sem og rekstur félagslegra íbúða. Hann sagði rekstrargrundvöll sveitarfélaga afar misjafnan og því einsýnt að yfirfærsla þjónustu taki lengri tíma en ef sameiningar hefðu gengið í gegn. Halldór nefndi einnig að sérstakt átak í eflingu sveitarstjórnarstyrkja ætti að leiða til þess sveitarfélög geti beitt sér betur í velferðarmálum. Um leið og Halldór nefndi aukna velferðar þjónustu sveitarfélaga minntist hann ekki á hvernig þeim framkvæmdum skyldi háttað en nefndi að sjö hundruð milljónir rynnu til sveitarfélaganna á næstu þremur árum. Aukinn tekjustofn sveitarfélaga ætti því að skila sér í betri þjónustu. Hvernig aukningu tekjustofns skyldi háttað var Halldór ekki tilbúinn að svara. Einnig hvatti Halldór ríki og sveitarfélög til aukinnar samvinnu og að vinnuaðferðum beggja yrði breytt á þann hátt að stjórnsýslsan yrði einfaldari og skilvirkari. Hann hvatti til aukinnar hagkvæmni í átt að Einfaldara Íslandi. Hann nefndi að margar stofnanir ríkisvaldsins væru nú þegar of þungar í vöfum. Hann lagði einnig áherslu á formlegri samskipti ríkis og sveitarfélaga og áherslu á aukið efnahagslegt samráð. Í ræðunni lagði hann áherslu á aðstöðumun sveitarfélaga varðandi tekjur og tekjustofnsframlag ríkisins. Þar sem sameiningarkosningar skiluðu ekki tilætluðum árangri segir hann erfiðara að færa þá auknu þjónustu sem ríkisvaldið vill sjá veitta hjá sveitarfélögum til sveitarfélaganna. Sú aukna þjónusta ervelferðarmál og þjónusta við aldraða og fatlaða sem og rekstur félagslegra íbúða. Hann sagði rekstrargrundvöll sveitarfélaga afar misjafnan og því einsýnt að yfirfærsla þjónustu taki lengri tíma en ef sameiningar hefðu gengið í gegn. Halldór nefndi einnig að sérstakt átak í eflingu sveitarstjórnarstyrkja ætti að leiða til þess sveitarfélög geti beitt sér betur í velferðarmálum. Um leið og Halldór nefndi aukna velferðar þjónustu sveitarfélaga minntist hann ekki á hvernig þeim framkvæmdum skyldi háttað en nefndi að sjö hundruð milljónir rynnu til sveitarfélaganna á næstu þremur árum. Aukinn tekjustofn sveitarfélaga ætti því að skila sér í betri þjónustu. Hvernig aukningu tekjustofns skyldi háttað var Halldór ekki tilbúinn að svara. Einnig hvatti Halldór ríki og sveitarfélög til aukinnar samvinnu og að vinnuaðferðum beggja yrði breytt á þann hátt að stjórnsýslsan yrði einfaldari og skilvirkari. Hann hvatti til aukinnar hagkvæmni í átt að Einfaldara Íslandi. Hann nefndi að margar stofnanir ríkisvaldsins væru nú þegar of þungar í vöfum. Hann lagði einnig áherslu á formlegri samskipti ríkis og sveitarfélaga og áherslu á aukið efnahagslegt samráð.
Fréttir Innlent Sveitarstjórnarmál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira