Spá launaskriði og verðbólgu 24. ágúst 2005 00:01
Atvinnuleysi mældist aðeins tvö prósent í júlímánuði og hefur ekki mælst minna frá því í desember árið 2001. Bankarnir spá launaskriði og verðbólgu. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka, segir spennu á innlendum vinnumarkaði mikla og allt bendi til að verðbólga verði meiri hér á landi en í viðskiptalöndunum í kringum okkur. Ingólfur spáir því að verðbólgan verði umfram það sem telst vera stöðugt verðlag og segir hann að búast megi við að hún muni draga úr auknum kaupmætti sem myndast hefur, en kaupmáttur hefur aukist um rúm 3 prósent síðasta árið, mest á almennum markaði. Þá hafa laun hækkað um 6,6 prósent frá því í júlí í fyrra. Laun hækkuðu meira á almennum markaði en hjá hinu opinbera, eða um rúmlega 6,8 prósent á meðan hækkunin var 6,1 prósent hjá hinu opinbera. Hækkanir stafa að stærstum hluta af samningsbundnum launahækkunum. Á þessu sama 12 mánaða tímabili var verðbólga um 3,5 prósent sem þýðir að hrein kaupmáttaraukning hefur verið 3,1 prósent síðasta árið. Ingólfur segir það vissulega jákvætt að fólk hafi vinnu. Hins vegar fylgi litlu atvinnuleysi ákveðin hætta á að hagkerfið ofhitni með tilheyrandi launaskriði og verðbólgu í kjölfarið og það sjái bankarnir fyrir sér að gerist á næstu árum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Viðskipti erlent Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Viðskipti innlent Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Sjá meira