Áframhaldandi slagur í Keri 22. mars 2005 00:01
Slagur Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, við sameigendur sína í félaginu heldur áfram. Stjórn Festingar sem á og rekur meðal annars fasteignir félaga í eigu Kers ákvað á fundi sínum að auka hlutafé og var nýja hlutaféð selt einkahlutafélagi í eigu framkvæmdastjóra félagsins. Sjóvík sem áður var í samstarfi við Ólaf í Keri átti meirihluta í þriggja manna stjórn Festingar sem gat ráðið þessari ákvörðun, en að óbreyttu hefðu þeir fallið úr stjórn Festingar á næsta aðalfundi, þar sem Ólafur réð meirihluta eignarhalds félagsins fyrir hlutafjáraukninguna. Hlutafjáraukningin var gegn vilja meirihlutaeigenda í Keri sem nú eru í minnihluta í félagi sem á og rekur fasteignir þar sem rekstur félaga eins og Samskipa og Olíufélagsins fer fram. Ólafur og fylgismenn vildu fresta ákvörðun um hlutafjárhækkunina til hluthafafundar félagsins og hafa krafist lögbanns á gjörninginn. " Við teljum um ólöglegan gjörning að ræða og viljum vinda ofan af honum," segir Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers. Lögbannskrafan snýst um að atkvæðisréttur fylgi ekki auknu hlutafé og þá getur hluthafafundur afturkallað heimildina. Félögin sem hafa rekstur í fasteignum Festingar eiga endurkauparétt á fasteignunum, en nýting hans hefur í för með sér kostnað sem menn vilja forðast.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira