Hagnaður MP 1.013 milljónir 21. mars 2005 00:01
Hagnaður MP Fjárfestingarbanka hf. á árinu 2004 var 1.013,5 milljónir króna eftir skatt. Eigið fé bankans um síðustu áramót var 1.919 milljónir króna, en var 1.001 milljónir króna áramótin áður. Hluthöfum voru greiddar 109 milljónir króna í arð á árinu. Hlutafé bankans er 285 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall MP Fjárfestingarbanka hf., reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 21,1% en má lægst vera 8,0%. Niðurstöðutala efnhagsreikningsins var 12.262 milljónir króna um síðustu áramót, en var 4.754 milljónir í árslok 2003. Stækkun efnahagsreikningsins má rekja til aukinna útlána til viðskiptavina og aukinnar eignar bankans í ríkistryggðum verðbréfum, samfara viðskiptavakt. Bankinn dró verulega úr eigin áhættu af gengi innlendra hlutabréfa á árinu 2004. Árið 2004 var fyrsta heila starfsár félagsins sem fjárfestingarbanka, en leyfi til þeirrar starfsemi fékkst þann 15. október 2003. Rekstur bankans gekk afar vel á árinu enda ytri skilyrði á fjármagnsmarkaði hagstæð. Langtímavextir í íslenskum krónum fóru lækkandi, innlent hlutabréfaverð hækkaði mikið og þeir erlendu markaðir sem félagið starfar á reyndust einnig mjög arðbærir. Bankinn tók að sér að gerast aðalmiðlari ríkisverðbréfa og varð jafnframt viðskiptavaki íbúðabréfa, sem eru veltuhæstu flokkarnir í Kauphöll Íslands. Jafnframt sá bankinn um nokkur stór skuldabréfaútboð fyrirtækja og sveitarfélaga á árinu. Öll svið bankans gengu vel, en aukin áhersla í rekstrinum á skuldabréfaviðskipti og viðskipti erlendis reyndist honum farsæl. Reksturinn hefur jafnframt gengið vel það sem af er árinu 2005 og eru horfur góðar. Í ljósi afar trausts efnahags er MP Fjárfestingarbanki nú fær um að takast á hendur enn stærri verkefni en á undanförnum árum, bæði innanlands sem erlendis.
Innlent Viðskipti Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira