Spánverjar heimsmeistarar 6. febrúar 2005 00:01
Það er óhætt að segja að varnarleikurinn hafi verið víðsfjarri í úrslitaleik Spánverja og Króata á heimsmeistaramótinu í handbolta í Rades í Túnis í gær. Alls voru skoruð sjötíu og fjögur mörk í leiknum og hafa aldrei verið skoruð fleiri mörk í úrslitaleik í sögunni. Gamla metið var sextíu og fimm mörk í úrslitaleik Króata og Þjóðverja á heimsmeistaramótinu í Portúgal fyrir tveimur árum. Spænska liðið fór með sigur af hólmi í gær, 40-34, og vann sinn fyrsta heimsmeistaratitil í boltaíþrótt.Úrslitaleikurinn í ár var hins vegar aldrei spennandi því spænska liðið hafði tögl og haldir frá upphafi leiks. Fyrirfram var búist við því að heims- og Ólympíumeistarar Króatíu væru sigurstranglegri en þegar á hólminn var komið reyndist hungur spænsku leikmannanna mun meira. Spænska liðið var í fluggír í fyrri hálfleik og segja má að liðið hafi gert út um leikinn í fyrri hálfleik. Liðið var með átta marka forystu, 21-13, þegar flautað var til leikshlés. Leikurinn var jafn fyrstu tíu mínútunar en í stöðunni 6-6 tóku Spánverjar kipp og skoruðu níu mörk gegn tveimur á tíu mínútna kafla.Í síðari hálfleik var það sama uppi á teningnum. Spánverjar juku forystuna jafnt og þétt og voru komnir með þrettán marka forystu, 33-20, þegar síðari hálfleikur var hálfnaður. Króatarar náðu að klóra í bakkann á síðustu mínútum leiksins en lokasprettur þeirra kom alltof seint.
Íslenski handboltinn Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira