Leitartól ógnar gagnaöryggi 30. nóvember 2004 00:01
Leitartól sem vefleitarvélin Google býður fólki að nota við gagnaleit á tölvum sínum er talin draga úr gagnaöryggi. Hægt er að hlaða niður litlu forriti á vef Google sem leitar að skjölum á tölvum notenda og heldur skrá yfir skjölin og innihald þeirra á vísum stað á harða drifinu. Meðal skjala sem forritið skráir eru svokallaðar "öruggar vefsíður" sem byrja á https, en þær kunna meðal annars að innihalda upplýsingar um aðgangsorð, bankareikninga og greiðslukortanúmer. Á vef tímaritsins PC World í Bandaríkjunum varar Stephen Green, einn yfirmanna Advanced Search Technologies Group hjá Sun Microsystems, við notkun leitarforritsins. "Það er bara tímaspursmál þar til búið verður til njósnaforrit eða tölvuormur sem laumast í yfirlitsskrá Google á tölvum fólks og sendir áfram á vef einhvers staðar," segir hann. Undir þetta sjónarmið taka fleiri sérfræðingar á sviði gagnaöryggis, en yfirlitsskráin er ekki dulkóðuð á nokkurn hátt. Fram kemur í fréttinni að Google hefur ekki svarað fyrirspurnum blaðsins um málið.
Erlent Fréttir Tækni Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira