Vafi um hæfi til stjórnarsetu 4. nóvember 2004 00:01
Seta Kristins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, og Einars Benediktssonar, forstjóra Olís, í stjórnum fjármálafyrirtækja kann að brjóta í bága við lög um fjármálafyrirtæki. Þeir áttu í markvissu og skipulögðu samráði í störfum sínum hjá olíufélögunum samkvæmt niðurstöðu Samkeppnisráðs. Taldi ráðið að olíufélögin hefðu hagnast um 6,5 milljarða króna á samráðinu. Í 52. grein laga um fjármálafyrirtæki er fjallað um hæfisskilyrði stjórnarmanna í slíkum fyrirtækjum. Þar segir að þeir megi ekki hafa sýnt af sér háttsemi sem gefur tilefni til að ætla að þeir misnoti aðstöðu sína. Kristinn Björnsson er nú stjórnarformaður fjárfestingarbankans Straums en hann og tengdir aðilar eiga tólf prósent í bankanum. Aðspurður hvort hann ætli að sitja áfram í stjórn Straums segir Kristinn að hann hafi verið kosinn til að sitja í stjórninni og hann fái ekki séð að lögin komi í veg fyrir það. Einar Benediktsson situr í stjórn Landsbankans sem óháður en ekki í krafti eignar í bankanum. Fréttablaðið hefur ekki náð tali af honum en hann mun nú dvelja í útlöndum. Aðalfundur Landsbankans verður haldinn eftir um tvo mánuði. Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með lögum um fjármálafyrirtæki. Stofnunin gefur ekki upp hvort málið sé til athugunar hjá henni.
Fréttir Innlent Samráð olíufélaga Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira