Viðskipti

Getur tekið heilt ár að fá „hillupláss“ í Vínbúðinni
Ríkisvaldið þarf að rífa sig upp úr skotgröfum og laga regluverkið til að liðka fyrir innlendum bjórframleiðendum og brugghúsum. Þetta segir Ásmundur Sveinsson, eigandi KORS-heildsölu og Session Craft bar. Hann segir það geta tekið bjórframleiðendur allt upp í eitt ár að koma vörum sínum að hjá Vínbúðinni.

Rekstrarniðurstaðan neikvæð um nærri þrjá milljarða
Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta Reykjavíkurborgar árið 2020 var neikvæð um tæpa 2,8 milljarða króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á tæpa tólf milljarða króna.

Innkalla kjúklingabaunir vegna skordýra
Matvælastofnun hefur varað við neyslu á einni framleiðslulotu af Sólgæti kjúklingabaunum með uppruna frá Tyrkland sem Heilsa flytur inn. Skordýr, eða bjöllur, hafa fundist í pokanum.

Litlar líkur á íbúðaskorti en óvíst hvort byggt sé í takt við eftirspurn
Litlar líkur eru á því að skortur verði á íbúðum miðað við það magn sem er nú í byggingu og þann fjölda íbúða sem þarf til að mæta þörf.

Íbúðaverð ekki hækkað eins mikið milli mánaða frá 2016
Auknar líkur eru á því að Seðlabankinn muni grípa til vaxtahækkana á næstunni að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Samkvæmt nýrri mælingu Hagstofunnar hefur íbúðaverð ekki hækkað eins mikið á milli mánaða frá árinu 2016.

Verðbólga ekki verið hærri í átta ár
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,6%.

„Við þurfum að vinna gegn útundanóttanum“
„Ég vinn meðal annars við að aðstoða og styðja fólk í að reyna að ná utan um þær óvelkomnu breytingar sem hafa orðið í Covid faraldrinum,“ segir Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur hjá Líf og sál og bendir á að vinnustaðir þurfi að huga vel að þeim áhrifum sem Covid er að hafa á fólk, því þeim áhrifum muni ekki ljúka með bólusetningum.

Sala Elko jókst um 25 prósent milli ára
Festi hagnaðist um 289 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 53 milljónir á sama tíma í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 1,5 milljarður króna samanborið við 1,0 milljarð á fyrsta ársfjórðungi 2020 sem jafngildir 47,5% hækkun milli ára.

Bein útsending: Ársfundur Íslandsstofu 2021
Ársfundur Íslandsstofu verður sýndur í beinni útsendingu frá Hörpu milli klukkan 14 og 15 í dag. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilaranum að neðan.

Síminn hagnaðist um 2,8 milljarða króna
Hagnaður Símans nam 2,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 762 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Hagnaður Símans af sölu upplýsingatæknifyrirtækisins Sensa til hins norska Crayon Group AS nam 2,1 milljarði króna á ársfjórðungnum og skýrir því stærstan hluta hagnaðarins.

Gerðu lengsta samning í sögu Bundesligunnar
Nordic Entertainment Group (NENT Group) hefur framlengt sýningarrétt sinn á þýsku Bundesligunni og verður sýnt frá þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á streymisveitunni Viaplay til ársins 2029.

Bein útsending: Nýsköpunardagur Haga
Hagar hafa stofnað styrktarsjóðinn Uppsprettu sem verður kynntur á Nýsköpunardegi Haga sem fram fer í dag. Er nýja sjóðnum ætlað að stuðla að nýsköpun í matvælaiðnaði hér á landi. Markmið og tilgangur Nýsköpunardagsins er að hvetja til nýsköpunar og aukinnar sjálfbærni í matvælaiðnaði.

Verðlaunuðu ríkislögreglustjóra, framkvæmdastjóra og mannauðsstjóra
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi voru veitt á mánudag við hátíðlega athöfn á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands. Veitt voru verðlaun í þremur flokkum auk þess sem heiðursfélagi Stjórnvísi 2021 var útnefndur.

Sautján þúsund án atvinnu í mars
17 þúsund einstaklingar voru atvinnulausir í mars síðastliðnum samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Jafngildir það 8,3% atvinnuleysi.

Samdi við lánadrottna bróður síns sem vildi hætta í neyslu
Gísli Magnússon komst ungur í kynni við vímuefni og lenti í kjölfarið í miklum fjárhagserfiðleikum. Auk þess að takast á við fíknina þurfti hann að glíma við skuldirnar sem hann hafði safnað á meðan hann var í neyslu en þær voru að stórum hluta í formi smálána.

Síldarvinnslan verðlögð á allt að 99 milljarða fyrir hlutafjárútboð
Síldarvinnslan, eitt eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, er verður verðlögð á allt að 99 milljarða króna í komandi hlutafjárútboði félagsins sem fram fer 10. til 12. maí.

Fjarvinna vinsæl en fólk þarf líka að hittast í „alvörunni“
„Bretar eru til að mynda mun vanari fjarvinnufyrirkomulaginu en við Íslendingar og margir þar sem hafa unnið í því fyrirkomulagi í mörg ár,“ segir Erla Sylvía Guðjónsdóttir mannauðstjóri Valitor, en Valitor er eitt þeirra fyrirtækja sem hefur innleitt hjá sér fjarvinnustefnu fyrir starfsfólk, en stefnan gildir bæði fyrir starfsfólk Valitors á Íslandi og í Bretlandi. Að sögn Erlu sýndu kannanir á meðal starfsfólks strax í fyrra, að mikill áhugi væri á fjarvinnu til frambúðar.

Fyrsta flug Play áætlað 24. júní?
Stjórnendur Play hafa ákveðið að fyrsta flug félagsins fari í loftið 24. júní næstkomandi, hefur ViðskiptaMogginn eftir heimildarmönnum. Samkvæmt sömu einstaklingum sé áfangastaðurinn „hernaðarleyndarmál“ en tilkynnt verði um hann á næstunni.

Mathöll í Pósthúsið: „Þetta verður veisla og nautn fyrir öll skynfærin“
„Við erum búnir að vera í viðræðum við húseigendur í yfir þrjú ár og núna loksins er þetta að verða að veruleika,“ segir athafnamaðurinn og hönnuðurinn Leifur Welding í viðtali við Vísi.

Úrræði stjórnvalda mest nýtt af rekstraraðilum með færri en fimm starfsmenn
Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru meirihluti þeirra sem nýta sér úrræði stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Þrír af hverjum fjórum rekstraraðilum sem nýtt hafa úrræðin eru lítil fyrirtæki með færri en fimm starfsmenn eða einyrkjar.

387 störfuðu að jafnaði hjá þeim fyrirtækjum sem urðu gjaldþrota
Samtals voru 149 fyrirtæki sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins tekin til gjaldþrotaskipta í mars. Af þeim voru 25 með launþega í fyrra samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 36% fækkun frá mars 2020.

Viðskiptavinir Sorpu klári svörtu ruslapokana fyrir 1. júlí
Viðskiptavinir SORPU eiga nú að koma með allan úrgang og endurvinnsluefni í glærum pokum á endurvinnslustöðvar. Hafa þeir til 1. júlí til að klára svörtu ruslapokana og skipta þeim út fyrir glæra.

„Yfirleitt gert ráð fyrir því að karlmaður standi á bak við þetta“
„Draumurinn er alltaf sá að stækka og gera meira. Pabbi minn, sem var svo mikil fyrirmynd fyrir mig í viðskiptum, sagði mér að svo lengi sem maður er að sprikla þá er maður að gera eitthvað rétt,“ segir Rakel Hlín Bergsdóttir í viðtali við Vísi.

Veitingamenn líta sumarið björtum augum
Sólin lét loks sjá sig víða um land í dag og landsmenn nýttu daginn til hins ítrasta.

Yeezy-skórnir hans Kanye seldust á 225 milljónir króna
Par af Yeezy strigaskóm, sem hannaðir eru af rapparanum Kanye West og hann klæddist á Grammy verðlaunahátíðinni 2008, seldust á dögunum fyrir 1,8 milljónir Bandaríkjadala, eða um 225 milljónir króna. Strigaskór hafa aldrei áður selst á svo háu verði.

Bein útsending: Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi afhent
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi verða veitt í tólfta sinn við hátíðlega athöfn á Grand Hótel klukkan 16 í dag. Árlegu verðlaunin eru veitt stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði og verður hægt að fylgjast með afhendingunni í beinu streymi hér á Vísi.

Opnunin á Íslandi markaði útrás Flying Tiger í Danmörku
Fyrsta Flying Tiger Copenhagen verslunin á Íslandi var opnuð í Kringlunni árð 2001. Í tilefni tímamótanna verða uppákomur og skemmtilegheit í verslunum út árið.

Nýja ofurtölvan liður í að vernda íslenskuna
Gagnaversfyrirtækið atNorth, sem hét áður Advania Data Centers, hefur afhent sprotafyrirtækinu Miðeind eina öflugustu ofurtölvu landsins til afnota. Tölvan verður notuð í verkefnum á sviði máltækni og gervigreindar fyrir íslensku.

Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 2,5 prósent í fyrra
Áætlað er að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila hafi aukist um 2,5% í fyrra samanborið við 2019. Þrátt fyrir samdrátt í launatekjum heimila árið 2020 er áætlað að ráðstöfunartekjur þeirra hafi aukist um 7,1% samanborið við fyrra ár. Gert er ráð fyrir því að ráðstöfunartekjur á mann hafi numið tæplega 4,2 milljónum króna í fyrra og aukist um 5,4%.

Bólusettum Bandaríkjamönnum hleypt í frí til Evrópu á næstunni
Bólusettir Bandaríkjamenn munu geta heimsótt aðildarríki Evrópusambandsins í sumar. Forseti framkvæmdaráðs ESB tilkynnti í gær að sambandið myndi líklega breyta stefnu sinni eftir viðræður við ráðamenn í Washington um fyrirkomulag svokallaðra bólusetningar-vegabréfa.