
Viðskipti

Örfáum án Covid-prófs vísað frá hjá Play í dag
Örfáum hefur verið vísað frá flugi á vegum flugfélagsins Play í dag, þar sem þeir gátu hvorki sýnt fram á PCR-próf né antigen hraðpróf við Covid við innritun.

Svarta ekkjan í hart við Disney
Leikkonan Scarlett Johansson hefur höfðað mál gegn Disney vegna dreifingar kvikmyndarinnar um Svörtu ekkjuna. Hún segir ákvörðun Disney að hafa birt myndina einnig á streymisveitunni Disney+ vera brot á samningi hennar við Marvel.

580 milljóna króna viðsnúningur hjá Valitor
Hagnaður greiðslumiðlunarfyrirtækisins Valitor nam 19,9 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2021. Um er að ræða tæplega 580 milljóna króna viðsnúning milli ára en félagið skilaði 560 milljóna króna tapi á sama tíma í fyrra.

Íslandsbanki hagnast um 5,4 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi
Birna Einarsdóttir, bankastjóri lýsir yfir mikilli ánægju með rekstrarniðurstöðuna sem samsvarar 11,6% arðsemi á ársgrundvelli.

Arion hagnaðist um tæpa átta milljarða
Hagnaður Arion banka nam 7,8 miljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Afkoman er betri á öllum sviðum bankans sé miðað við sama ársfjórðung á síðasta ári.

Björn Ingi hlýtur ekki náð fyrir augum Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur hafnað því að taka fyrir mál fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar gegn þrótabúi Pressunnar ehf. Björn Ingi hafði óskað eftir málskotsleyfi eftir að Landsréttur dæmdi hann til að greiða 80 milljóna skuld til þrotabúsins.

Kvikmyndaframleiðandi ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins
Kvikmyndaframleiðandinn Skúli Malmquist hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins. Skúli tekur við keflinu af Hlyni Páli Pálssyni þann 1. september næstkomandi.

„Við erum ekki landamæraeftirlit“
Þeir sem ekki geta framvísað neikvæðu kórónuveiruprófi við byrðingu í flug með flugfélaginu Play, verður ekki hleypt um borð á leið til Íslands. Forstjóri félagsins segir ákvörðunina innan lagalegs ramma enda sinni flugfélagið ekki landamæraeftirliti.

Kostnaður við snjallmælavæðingu Veitna áætlaður 5,7 milljarða króna
Áætlaður kostnaður Veitna við snjallvæðingu mæla er 5,7 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari Veitna við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, áheyrnafulltrúa Miðflokksins í borgarráði.

Fjórða bylgjan og óttinn við að missa vinnuna
Nú þegar fjórða bylgjan er hafin er ekki laust við að gamalkunnur Covid-hnútur geri vart við sig hjá sumum: Mun ég missa starfið mitt? Hvernig mun vinnustaðnum mínum reiða af? Verður mér sagt upp um næstu mánaðamót? Eða í haust eða vetur?

Apple hagnaðist um 2,7 billjónir króna
Nýtt ársjórðungsuppgjör tæknirisans Apple, verðmætasta fyrirtækis heims, fór töluvert fram úr væntingum fjárfesta. Tekjur voru mun hærri en talið var og jukust um meira en þriðjung á milli ára. Þá jókst sala iPhone-síma um nærri því helming.

Að forðast baktalið í vinnunni
Við tökum öll þátt í kjaftagangi einstaka sinnum. Heyrum einhverja djúsí kjaftasögu og berum hana á milli. Eða veltum okkur upp úr henni. Þetta er mannlegt og í raun þarf enginn að skammast sín því rannsóknir hafa sýnt að smá kjaftagangur er flestum eðlislægur. Þó ekki nema stundum í góðra vina hópi.

Afturkalla kyrrsetningarbeiðnir vegna uppbyggingar á Kirkjusandi
Íslenskir aðalverktakar hf. (ÍAV) og 105 Miðborg slhf. hafa náð samkomulagi um að afturkalla kyrrsetningarbeiðnir gagnvart hvort öðru og að uppgjöri vegna ágreiningsmála þeirra verði lokið með hefðbundnum hætti fyrir dómstólum.

Hyggst sniðganga Play eftir erfiða reynslu sona sinna
Leikstjórinn og handritshöfundurinn Ragnar Bragason ber flugfélaginu Play ekki vel söguna og hyggst sniðganga félagið eftir að ungum sonum hans var meinað að fara um borð í vél þess til Kaupmannahafnar í dag. Að sögn Play var um mannleg mistök að ræða.

Ben & Jerry's hættir sölu á landtökusvæðum Ísraela
Ísframleiðandinn Ben & Jerry's hyggst hætta sölu á landtökusvæðum Ísraela á Vesturbakkanum og í austurhluta Jerúsalem. Forsætisráðherra Ísraels segist ætla bregðast við sölubanninu með hörðum aðgerðum.

„Þessar aðgerðir leggjast bara mjög illa í okkur“
Fjármála- og efnahagsráðherra telur enn ótímabært að segja að efnahagslegt bakslag muni hljótast af nýjum sóttvarnaaðgerðum. Veitingamenn og kráareigendur eru ósáttir að gripið hafi verið til nýrra aðgerða. Það sé mikið högg fyrir reksturinn.

Samþykktu hlutafjáraukningu og fulltrúi Bain komin í stjórn
Hluthafafundur Icelandair Group samþykkti í dag hlutafjáraukningu í tengslum við kaup bandaríska fjárfestingasjóðsins Bain Capital í félaginu. Fulltrúi sjóðsins kemur inn í stjórn og Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður, stígur til hliðar.

Innkalla forsteikt smælki með rósmarín
Hollt og Gott ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafa innkallað forsteikt smælki með rósmarín.

Seðlabankinn í snúinni stöðu
Seðlabankinn er í snúinni stöðu að mati hagfræðings í greiningardeild Íslandsbanka. Verðbólgan er ekki að hjaðna eins hratt og vonast var til en á sama eru hærri vextir, sem væru líklegastir til að vinna almennilega á henni, ekki endilega ákjósanlegir í bágu efnahagsástandinu sem nú ríkir.

Neysla Íslendinga meiri en fyrir Covid-19 faraldurinn
Samanlögð kortavelta Íslendinga innanlands og erlendis var 8% meiri í júní í ár en í fyrra, miðað við fast verðlag og gengi. Þá var hún 9% meiri en í júní árið 2019. Neysla mælist því meiri en hún var fyrir faraldurinn en fer í auknum mæli fram innanlands vegna færri ferðalaga til útlanda.

Verðbólga mælist 4,3 prósent
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,4%. Ársverðbólga mælist því 4,3% í júlí og stendur í stað milli mánaða. Verðbólga mældist 4,4% í maí og 4,6% í apríl en þá hafði hún ekki verið hærri í átta ár.

Alls konar markmið í vinnunni en sömu góðu ráðin
Áskoranirnar í vinnunni okkar eru af öllum toga. Allt frá því að vera stórtæk og snúa að starfsframanum okkar, eða bara lítil og góð þar sem okkur langar sjálfum til að bæta okkur í einhverju. Til dæmis að brosa oftar. Eða mæta alltaf á réttum tíma.

Smeykir við það sem leynist í minnisblaði Þórólfs
Eigendur skemmtistaða og kráa í miðbæ Reykjavíkur eru smeykir við það hvaða tillögur sóttvarnalæknir hyggst leggja til að taki gildi svo stemma megi stigu við þá nýju bylgju sem nú er farin af stað í kórónuveirufaraldrinum.

Icelandair tapaði 6,9 milljörðum en lausafjárstaða styrkist verulega
Icelandair tapaði 6,9 milljörðum á öðrum ársfjórðungi ársins samanborið við 11,4 milljarða tap á sama tíma í fyrra. Forstjóri félagsins segir viðspyrnu félagsins hafna en lausafjárstaða Icelandair styrktist verulega vegna mikillar aukningar í bókunum á flugi á seinni helmingi ársins.

Kylfingar keppa um golfferð til Portúgal
Enn er hægt að taka þátt í Meistaramótinu í Betri bolta og freista þess að vinna sæti á lokamótinu en sigurlið lokamótsins fær ferð til Portúgal.

Hraðhleðslustöðvar settar upp við verslanir Samkaupa
Samkaup hefur opnað fyrstu rafhleðslustöðina við verslun Nettó í Borgarnesi. Fyrirtækið gerði fyrr á árinu samning við Írosku og mun bjóða upp á rafhleðslustöðvar við verslanir sínar um land allt.

Landsbankinn hagnast um 14,1 milljarð króna
Landsbankinn hagnaðist um 6,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2021 og var afkoma bankans jákvæð um 14,1 milljarð króna á fyrri helmingi ársins. Til samanburðar var 3,3 milljarða króna tap á sama tímabili árið 2020.

Metpantanir hjá Marel á öðrum ársfjórðungi
Annan ársfjórðung í röð var slegið met í pöntunum hjá Marel en pantanirnar á fjórðunginum voru upp á 370 milljónir evra. „Annar ársfjórðungur var góður fyrir Marel. Okkar metnaðarfulla teymi tókst á við áskoranir með bjartsýni og þrautseigju í nánu samstarfi við birgja og viðskiptavini.“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, í tilkynningu um ársfjórðungsuppgjör.

Góður ársfjórðungur hjá Össuri
Hagnaður Össurar á öðrum ársfjórðungi nam 2,4 milljörðum króna eða 10 prósent af veltu. Á sama ársfjórðungi í fyrra var 2,3 milljarða króna tap á rekstri fyrirtækisins.

Arnar kærir forstjóra ÁTVR til lögreglu
Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisverslunarinnar Santewines, hefur lagt fram kæru á hendur Ívari J. Arndal, forstjóra ÁTVR, fyrir rangar sakargiftir. ÁTVR hefur kært Arnar og fyrirtæki hans Sante ehf. og Santewines SAS til lögreglu og skattayfirvalda fyrir stórfelld skattaundanskot. Arnar hefur alfarið hafnað ásökununum.