Viðskipti innlent
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 334 ›
Um helmingi dýrara að leigja hjá hagnaðardrifnum leigufélögum Leiguverð hjá hagnaðardrifnum leigufélögum er ríflega sextíu prósent hærra en hjá þeim óhagnaðardrifnu samkvæmt nýrri leiguvísitölu. Vísitalan byggir á nýrri leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem gefur mun betri mynd af leigumarkaðnum en áður. Viðskipti innlent 18.1.2024 14:03
Fylgir ráðum Sveins Andra og tekur aftur upp nafnið B5 Sverrir Einar Eiríksson, eigandi skemmtistaðarins B og Nýju vínbúðarinnar, upplýsir að skemmtistaðurinn muni notast við nafnið B5 á meðan deilt er um nafnið fyrir dómstólum. Viðskipti innlent 18.1.2024 13:29
Lilja Björk tekur við nýju hlutverki Lilja Björk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 18.1.2024 10:33
Rauðar tölur eftir hikst í kjaraviðræðum Gengi langflestra félaga í Kauphöllinni lækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins. Telja má líklegt að tíðindum af erfiðleikum í kjaraviðræðum sé um að kenna. Viðskipti innlent 18.1.2024 10:27
Ráðinn aðalhagfræðingur Kviku banka Hafsteinn Hauksson hefur tekið við starfi aðalhagfræðings Kviku. Viðskipti innlent 18.1.2024 10:19
Falið að bæta verðlagseftirlit og stafræna þjónustu Albert Þór Kristjánsson hefur tekið við stöðu forstöðumanns í upplýsingatækni og stafrænni þróun á fjármála- og rekstrarsviði og Rakel Másdóttir hefur tekið við stöðu verðstýringar- og verkefnastjóra á verslunar- og mannauðssviði hjá Samkaupum. Þau hafa bæði þegar hafið störf hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 18.1.2024 10:01
Davíð nældi í Karen úr ráðuneyti Katrínar Karen Björk Eyþórsdóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri til Transition Labs, loftlagsfyrirtækis í eigu Davíðs Helgasonar og Kjartans Ólafssonar. Viðskipti innlent 18.1.2024 09:46
Strand í viðræðum um krónutöluhækkun Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins vara við því að krónutölunálgun sé höfð að leiðarljósi við gerð kjarasamninga. Það valdi því að kostnaður sé vanmetinn við upphaf kjaraviðræða. Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði segir Samtök atvinnulífsins hafna nálgun fylkingarinnar um þjóðarsátt. Viðskipti innlent 18.1.2024 09:36
Framlengja úrræði vegna húsnæðislána Grindvíkinga Íslandsbanki mun framlengja það úrræði sem Grindvíkingum hefur staðið til boða um frystingu húsnæðislána og fella niður vextir og verðbætur af húsnæðislánum. Viðskipti innlent 18.1.2024 08:26
Raunverð íbúðaverðs lækkar og kaupkeðjur oftar að rofna Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um þrjú prósent síðastliðna tólf mánuði. Merki eru um að verulega sé farið að ganga á stofn nýrra íbúða í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og þá benda tölur til að kaupkeðjur séu oftar að rofna en einnig fjölgunar íbúða sem teknar eru af sölu án þess að seljast. Viðskipti innlent 18.1.2024 07:18
Berjast um bestu tillöguna Arkítektastofurnar Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio keppast um bestu tillöguna að þróun lóðar Festar við Ægisíðu 102 í Reykjavík sem í dag hýsir þjónustustöð N1. Íbúabyggð kemur á svæðið og lofar Festi góðu samtali í nágrenninu. Viðskipti innlent 17.1.2024 17:25
Vísitala íbúðaverðs mjakast upp á við og kaupsamningum fjölgar Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,5 prósent milli mánaða í desember. Undirrituðum kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði milli ára síðustu þrjá mánuði eftir að hafa fækkað sífellt frá miðju ári 2021. Viðskipti innlent 17.1.2024 13:46
Framlengja frystingu lána Grindvíkinga Arion banki hefur ákveðið að bjóða Grindvíkingum að frysta íbúðalán sín hjá bankanum í þrjá mánuði til viðbótar og fella niður vexti og verðbætur lánanna til aprílloka. Viðskipti innlent 17.1.2024 13:44
Ásdís og Snorri nýir forstöðumenn hjá Icelandair Icelandair hefur ráðið þau Ásdísi Sveinsdóttur og Snorra Tómasson í störf forstöðumanna á Tekju-, þjónustu- og markaðssviði félagsins. Viðskipti innlent 17.1.2024 10:40
Play flýgur til Króatíu Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til strandborgarinnar Split í Króatíu. Fyrsta flug Play til Split verður 28. maí en til stendur að fljúga þangað einu sinni í viku á þriðjudögum yfir sumarmánuðina. Viðskipti innlent 17.1.2024 10:06
Hulda til Klappa Hulda Þórhallsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustuupplifunar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Klöppum grænum lausnum. Viðskipti innlent 17.1.2024 09:01
Linda hættir og staðan lögð niður Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Marel. Staðan verður í kjölfarið lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 16.1.2024 16:55
Augljóst að frumvarpið hafi ekki verið samið af fagfólki Forstjóri útgerðarfélagsins Brims segir ljóst að frumvarp matvælaráðherra til laga um sjávarútveg hafi ekki verið samið af fagfólki eða aðilum með mikla reynslu og yfirsýn á sviði fiskveiðistjórnunar. Hann vill að frumvarpið verði unnið betur, í samvinnu við þá sem best þekki til, áður en lengra verður haldið. Viðskipti innlent 16.1.2024 10:51
Birta nýr framkvæmdastjóri hjá Arctic Adventures Birta Ísólfsdóttir hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra sölu-, markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Arctic Adventures. Hún hefur þegar hafið störf og tekið sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Viðskipti innlent 16.1.2024 10:31
Thelma Björk frá Heimkaupum til Olís Thelma Björk Wilson hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra smásölusviðs Olís. Hún mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Olís. Viðskipti innlent 16.1.2024 09:21
Þórhallur ráðinn til Góðra samskipta Þórhallur Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar og fjölmiðlamaður, er genginn til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti. Viðskipti innlent 16.1.2024 08:16
Össur kaupir þýskt stoðtækjafyrirtæki Össur hefur undirritað samning um kaup á öllum hlutum þýska stoðtækjafyrirtækisins Fior & Gentz. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Össuri en tilkynnt var um kaupin rétt í þessu. Viðskipti innlent 16.1.2024 08:08
Andrés húðskammar Lyfjastofnun Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir Lyfjastofnun fyrir 8,7 prósenta hækkun á gjaldskrá um áramótin. Allir verði að leggja sitt af mörkum í baráttu við verðbólgu og háa vexti, líka Lyfjastofnun. Viðskipti innlent 15.1.2024 15:02
158 milljón króna gjaldþrot félags Ásgeirs Kolbeins Lýstar kröfur í þrotabú félagsins Soho Veitingar ehf. námu 158 milljónum króna. Félagið var í meirihlutaeigu hjónanna Sólveigar Birnu Gísladóttur og Einars Jóhannesar Lárussonar en athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson átti tuttugu prósenta hlut í því. Félagið sá um rekstur veitingastaðarins Pünk á Hverfisgötu en Ásgeir var um tíma framkvæmdastjóri staðarins. Viðskipti innlent 15.1.2024 12:58
Ætla ekki að bjóða upp á útsýnisflug yfir gosið Forsvarsmenn þyrlufyrirtækisins HeliAir Iceland hafa ákveðið að bjóða ekki upp á útsýnisflug á meðan óvissan er mikil varðandi hús og eignir fólks í Grindavík eftir að eldgos hófst í morgun. Hugur fyrirtækisins er hjá Grindvíkingum. Viðskipti innlent 14.1.2024 22:02
Samskip þurfa ekki að greiða sektina meðan málsmeðferð fer fram Útflutningsfyrirtækið Samskip þarf ekki að greiða sekt upp á 4,2 milljarða fyrir ólöglegt samráð með fyrirtækinu Eimskipi meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefnd samkeppnismála. Viðskipti innlent 13.1.2024 19:31
Hækkar vexti verðtryggðra lána Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum inn-og útlána. Breytingarnar taka gildi þriðjudaginn 16. janúar. Viðskipti innlent 12.1.2024 15:49
Segir söluhrun á degi einhleypra eiga sér eðlilegar skýringar Brynja Dan, forsprakki dags einhleypra á Íslandi og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ, segir söluhrun á þessum afsláttadegi á síðasta ári eiga sér eðlilegar skýringar. Sé litið til sölu yfir dagana þrjá í kringum 11. nóvember sé ljóst að salan sé enn gríðarlega mikil. Viðskipti innlent 12.1.2024 07:47
Ölgerðin hættir með Red Bull Vörumerkið Red Bull verður ekki hluti vörumerkja Ölgerðarinnar lengur en fyrirtækið sagði samningi sínum við Ölgerðina upp með sex mánaða fyrirvara. Viðskipti innlent 11.1.2024 19:18
Sólar og Mánar sameinast Sólar ehf. og Mánar ehf. hafa náð samkomulagi um að sameina félögin undir nafni Sólar. Viðskipti innlent 11.1.2024 13:28