Viðskipti innlent

Segir réttara að tíu prósent hagkerfisins séu í lagi
Konráð Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, segir fullyrðingar Gylfa Zoëga hagfræðiprófessors um að níutíu prósent hagkerfisins séu í lagi vera fjarri lagi. Þrátt fyrir að stærstur hluti landsmanna finni lítið fyrir kreppunni hafi hagkerfið átt magurra ár í fyrra samanborið við 2019.

Matvöruverð lækkað síðustu mánuði
Vörukarfa ASÍ hefur lækkað í sex verslunum af átta frá því í byrjun nóvember á síðasta ári. Mest lækkaði hún í Heimkaup um 11,2% en hækkaði mest í Nettó um 0,8%.

Býður sig aftur fram í formannsstólinn
Eyjólfur Árni Rafnsson gefur áfram kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) en hann tók við formannsstólnum árið 2017.

Kaupir bréf í Arion banka fyrir um milljarð króna
Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, er kominn í hóp um þrjátíu stærstu hluthafa Arion banka eftir að hafa keypt bréf í bankanum fyrir um milljarð króna.

Ráðin í starf markaðsstjóra Flugakademíunnar
Alexandra Tómasdóttir hefur verið ráðin í starf markaðsstjóra Flugakademíu Íslands. Alexandra starfaði áður sem markaðsstjóri Private Travel þar sem hún hóf störf árið 2016.

Edda nýr framkvæmdastjóri hjá BYKO
Edda Blumenstein hefur verið ráðin framkvæmdastjóri framþróunar verslunar og viðskiptavina hjá BYKO.

Velja seðlabankastjóra Hagfræðing ársins
Ásgeir Jónsson hefur verið valinn hagfræðingur ársins 2021 af Félagi viðskipta- og hagfræðinga. Verðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 2000, og verða að þessu sinni afhent á Þekkingardaginn 2021 sem verður streymt beint á Vísi þann 13. apríl.

Skammaðist sín fyrir að hafa unnið í íslenskum banka
Þegar hagfræðingurinn Kristrún Tinna Gunnarsdóttir hætti að vinna í íslenska bankakerfinu árið 2009 lofaði hún sjálfri sér að vinna aldrei framar í fjármálageiranum. Hún starfaði í greiningardeild Landsbankans á árunum 2007 til 2009 og segir það hafa verið mikinn skóla að upplifa þar hátind góðærisins, fjármálahrunið og eftirmála þess.

300 milljóna gjaldþrot Orange Project
Gjaldþrot skrifstofuhótelsins Orange Project ehf. sem var með starfsemi í Reykjavík, Kópavogi og á Akureyri nam 329 milljónum króna. Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur í þrotabúið. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag.

Opna Geysi á ný og hefja þróun snyrtivörulínu
Hótel Geysir hefur fest kaup á öllum vörubirgðum úr þrotabúi Geysis verslananna og hyggst endurvekja verslunina í Haukadal. Er stefnt að því að opna hana aftur með vorinu og um leið færa vöruþróun merkisins á nýjar slóðir.

Margrét tekur við formennsku af Grétu Maríu
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Margréti Hólm Valsdóttur, útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík, nýjan formann Matvælasjóðs. Margrét tekur við formennsku af Grétu Maríu Grétarsdóttur sem réð sig nýverið til starfa hjá Brimi.

Farinn til RB eftir nítján ár hjá Valitor
Stefán Ari Stefánsson hefur verið ráðinn í starf mannauðsstjóra RB.

Kauphöllin tútnar út í einhverri mestu efnahagskreppu sem sést hefur
Hlutabréf í Kauphöllinni hækkað um 50 milljarða króna í dymbliviku.

Greiddu 2,4 milljarða króna fyrir Domino's á Íslandi
Íslenski fjárfestahópurinn sem hefur fest kaup á rekstri Domino’s á Íslandi greiddi hinu breska Domino‘s Group 2,4 milljarða króna fyrir skyndibitakeðjuna.

Skorar á Alvogen að birta öll gögn: Segir Björgólf umsvifalaust hafa rekið Róbert fyrir ósæmilega hegðun
Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech, skorar á fyrirtækin að deila öllum gögnum sem tengjast yfirheyrslum vegna athugunar á ásökunum í garð Róberts Wessman með fjölmiðlum.

Tekur við og heldur Fjällräven í Geysisfjölskyldunni
Athafnakonan Rakel Þórhallsdóttir stefnir nú á opnun fataverslunarinnar Mt. Heklu við Skólavörðustíg 16 og Hafnarstræti á Akureyri. Stendur til að hefja reksturinn á næstu vikum en bæði rýmin hýstu áður verslanir Geysis.

Halldór sagður hafa átt fund með Björgólfi Thor Björgólfssyni
Halldór Kristmannsson, fyrrverandi yfirmaður samskiptamála hjá Alvogen og náinn samstarfsmaður Róberts Wessman til margra ára, átti fund með Björgólfi Thor Björgólfssyni, aðaleiganda Novator, í nóvember í fyrra.

Lögbannskröfu NOVIS gegn Seðlabankanum hafnað
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í kröfu slóvakíska vátryggingafélagsins NOVIS um að lögbann yrði lagt á að Seðlabanki Íslands birti grein um sölubann á fyrirtækið á vefsíðu sinni. Seðlabankinn var ekki talinn hafa farið út fyrir heimildir sínar sem eftirlitsaðili á vátryggingamarkaði.

Baulan til leigu
Skeljungur hf. hefur auglýst Bauluna í Borgarfirði til leigu eftir að síðustu rekstraraðilar hættu þar veitingarekstri fyrr á árinu. Það er lítið um ferðamenn á svæðinu eins og er en talsmaður Skeljungs segir að félagið stefni á að koma húsnæðinu í leigu fyrir sumarið.

Íslenskur snjallhringur vekur athygli erlendra fjölmiðla
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Genki hefur sett á markað snjallhringinn Wave for Work sem gerir fólki kleift að stýra forritum á borð við Zoom, Microsoft Teams, PowerPoint og Spotify með einföldum handahreyfingum.

Jón Viðar gætir fasteigna Róberts Wessman
Jón Viðar Guðjónsson byggingartæknifræðingur hefur verið ráðinn verkefnastjóri fasteigna Aztiq.

Fjórir börðust um hverja íbúð í Þorpinu
Þorpið vistfélag hefur lokið úthlutun síðustu fimmtíu íbúða félagsins í Gufunesi í samstarfsverkefni félagsins og Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. Tæplega fjórir umsækjendur voru um hverja íbúð sem úthlutað var en dregið var á milli þeirra.

Origo kaupir allt hlutafé í Syndis
Origo hefur keypt 100 prósent hlut í netöryggisfyrirtækinu Syndis en með kaupunum munu öryggislausnir Origo og Syndis sameinast undir merki þess síðarnefnda. Í sameinuðu fyrirtæki munu starfa tuttugu öryggissérfræðingar og flytjast níu starfsmenn frá Origo til Syndis.

Gera tímabundið hlé á prentútgáfu DV
Ákveðið hefur verið að gera tímabundið hlé á prentútgáfu DV. Ástæðan er sögð vera áhrif heimsfaraldursins á auglýsingasölu og hvernig hann hafi hamlað útgáfu með ýmsum hætti.

Sakar stjórnir Alvogen og Alvotech um aðgerðarleysi og hvítþvott
Halldór Kristmannsson hefur sent stjórnum Alvogen og Alvotech nýja sáttartillögu, „þrátt fyrir að fyrirtækin hafi á einum og sama deginum rift ráðningarsamningi fyrirvaralaust, höfðað mál, lekið nafni hans í fjölmiðla og birt fréttatilkynningar, þar sem fram kom að enginn fótur væri fyrir ásökunum.“

Segist hafa fengið uppsagnarbréf og stefnu fyrir utan World Class
„Ég hef talsverðar áhyggjur af því að aðgerðarleysi Alvogen og Alvotech gagnvart Róbert Wessman kunni að skaða orðspor fyrirtækjanna.“ Þetta hefur Morgunblaðið eftir Halldóri Kristmannssyni, sem segist enn vilja útkljá umkvartanir sínar vegna stjórnarhátta og hegðunar Róberts í sátt utan dómstóla.

Netagerðarmeistari lifir á loðnuvertíð fram eftir ári
Nýafstaðin loðnuvertíð færir netaverkstæðum kærkomna búbót sem endist þeim langt fram eftir ári. Dæmi um slíkt fundum við austur í Neskaupstað.

Splunkunýtt skip Samherja komið til Eyjafjarðar
Nýtt uppsjávarskip, Vilhelm Þorsteinsson EA, sigldi í fyrsta sinn inn Eyjafjörð í gær en skipið var sérsmíðað í Danmörku fyrir Samherja. Skipið er 89 metrar á lengd, 16,6 metrar á breidd og burðargeta þess vel yfir þrjú þúsund tonn í þrettán lestartönkum þar sem afli verður kældur. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja.

Viðraði hugmyndir um sérstakan „pott“ fyrir fjárfestingar hins opinbera
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir fjárfestingu hins opinbera ekki hafa vaxið og að rekja megi það til samdráttar hjá sveitarfélögum. Hann sér fyrir sér að hægt væri að breyta fjárfestingarfyrirkomulagi hjá hinu opinbera, til að mynda með opinberum potti fyrir fjárfestingar.

Iðnaðarmenn lögðu milljónamæring í deilu um innréttingar á Fjölnisvegi
Athafnamanninum Ingólfi Abrahim Shain, eiganda bókunarfyrirtækisins Guide to Iceland, hefur verið gert að greiða trésmíðaverkstæðinu Sérsmíði tæplega 700 þúsund krónur í kjölfar ágreinings um innréttingar á heimili hans við Fjölnisveg 11 í Reykjavík.