Viðskipti innlent

Íslenski markaðurinn hóflegur í júní en sá kínverski í stórsókn
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn lækkaði um 2,1 prósent í júní samanborið við 9,9 prósent lækkun í maí þegar öll félög markaðarins lækkuðu í verði. Sjö af tuttugu þeirra félaga sem skráð voru í byrjun mánaðar hækkuðu í verði, eitt stendur í stað og tólf lækka. Þrjú félög voru skráð í Kauphöllina í júní; Ölgerðin, Nova og Alvotech sem var tekið á markað í New York.

Hluthafar greiða atkvæði um að nafni Festi verði breytt í Sundrung
Hluthafafundur félagsins Festi fer fram þann 14. júlí næstkomandi. Upphaflega var einungis eitt mál á dagskrá fundarins en nú hafa tvö bæst við, þar á meðal tillaga um að nafni félagsins verði breytt í Sundrung.

Arnar nýr framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu
Arnar Már Snorrason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu með aðsetur á Dalvík, en Arnar tekur við starfinu af Daða Valdimarssyni sem mun færa sig í starf forstjóra Rotovia, nýstofnaðs móðurfélags Sæplasts. Undir Sæplasti í Evrópu tilheyrir starfsemi félagsins á Íslandi, Spáni og Noregi ásamt söluskrifstofum félagsins í Evrópu, Afríku og Asíu.

Fleiri mótfallin en fylgjandi innflutningi á landbúnaðarvörum
Fleiri eru mótfallin frjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum en fylgjandi samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir Fréttablaðið.

Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði
Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna.

Tilkynnt um eina hópuppsögn í júní
Tilkynnt var um eina hópuppsögn til Vinnumálastofnunar í júní þar sem 39 starfsmönnum var sagt upp störfum í opinberri stjórnsýslu vegna flutninga á starfsemi milli stofnana.

Margrét ráðin aðstoðardagskrárstjóri RÚV
Margrét Jónasdóttir hefur verið ráðin aðstoðardagskrárstjóri RÚV. Hún mun hafa faglega umsjón með innkaupum og framleiðslu á heimildaefni. Jafnframt mun hún leiða, í samstarfi við dagskrárstjóra,hugmyndavinnu, þróun, framleiðslu, kaup, stefnumótun, gæðamat og gæðeftirlit með öllu heimildaefni fyrir sjónvarp.

Allir stjórnarmenn Festi tilnefndir til áframhaldandi setu
Tilnefningarnefnd Festi hefur skilað inn skýrslu sinni til stjórnar félagsins. 21 bauð sig fram í stjórn og tilnefningarnefnd tilnefnir níu frambjóðendur til stjórnar sem fimm skipa, þar af alla núverandi stjórnarmenn.

SAS óskar eftir gjaldþrotavernd í Bandaríkjunum
Norræna flugfélagið SAS hefur leitað til dómstóla í New York í Bandaríkjunnum og óskað eftir gjaldþrotavernd þar vestra.

Taka varfærin skref í átt að stækkun eftir faraldurinn
Icelandair tekur á leigu BOEING 767 breiðþotu næstu tvær vikurnar til að bregðast við ástandinu sem nú ríkir á flugvöllum í Evrópu. Truflanir á aðfangakeðju og mannekla á flugvöllum hefur leitt til þess að flugfélög hafa neyðst til að fella niður flug eða seinka ferðum. Bogi Nils Bogason, forstjóri stjóri Icelandair, segir vélina auka sveigjanleika og þjónustu við viðskiptavini.

Fjórfalda flotann og hlakka til að láta Hopp „svitna aðeins“
Rafhlaupahjólaleigan ZOLO færir nú út kvíarnar og fer heildarfjöldi hjóla hjá fyrirtækinu úr 250 í þúsund. Þá hefur fyrirtækið stækkað umsvifasvæði sitt, sem nær nú í Kópavog, Breiðholt, Árbæ og Grafarvog, en áður hafi félagið haldið sig miðsvæðis í Reykjavík. Framkvæmdastjórinn segist hlakka til að láta keppinautana „svitna aðeins.“

Ógreiddar kröfur rúmlega 120 milljónir
Ógreiddar kröfur í þrotabú bakarís Jóa Fel námu rúmlega 120 milljónum króna. Lýstar kröfur í búið námu 333 milljónum króna en samþykktar kröfur voru 140 milljónir. Tæpar tuttugu milljónir fengust upp í samþykktar kröfur.

Fjögur ráðin til Orkustofnunar
Orkustofnun hefur gengið frá frá ráðningum í fjórar stöður til að efla miðlun og vinnslu gagna, en um er að ræða tvær stöður sérfræðinga í greiningum og gögnum, auk ráðningu nýs þróunarstjóra gagna og verkefnastjóra Orkuseturs.

Tveggja ára sögu Spaðans lokið
Veitingastaðurinn Spaðinn, sem bauð upp á pitsur á matseðli, hefur lokað eftir ríflega tveggja ára starfsemi.

Icelandair leigir breiðþotu næstu tvær vikurnar
Icelandair hefur gert samning við portúgalska flugrekandann Euro Atlantic um leigu á Boeing 767-300 flugvél sem nýtt verður í millilandaflugi Icelandair næstu vikur.

Embætti landlæknis hagnaðist um tæpar 300 milljónir
Á rekstrarárinu 2021 hagnaðist Embætti landlæknis um 292 milljónir króna. Árið áður hagnaðist embættið um 36 milljónir króna og því er um að ræða rúmlega áttfalda hagnaðaraukningu milli ára.

Hvalárvirkjun aftur á dagskrá og tvö ár gætu verið í framkvæmdir
Framkvæmdir við Hvalárvirkjun á Ströndum gætu hafist eftir tvö ár, að mati forstjóra HS Orku. Það er þó háð því að tilskilin leyfi verði fengin fyrir nauðsynlegum háspennulínum.

Verðbólgan étur upp kaupmáttinn og skapar óvissu fyrir kjarasamningaviðræður í haust
Mikil verðbólga hefur minnkað kaupmátt töluvert og er mjög löngu tímabili aukins kaupmáttar nú lokið að mati hagfræðideildar Landsbankans. Hagfræðingur hjá bankanum segir viðbúið að það taki einhver ár að ná verðbólgunni niður og að erfið staða blasi við í kjarasamningsviðræðum í haust.

Sjötta þota Play komin til landsins
Ný Airbus þota bætist við flota flugfélagsins Play en um er að ræða sjöttu þotu félagsins og kom hún til landsins frá Frakklandi en þotan er af gerðinni A30neo.

Sonur Mick Jagger fjárfestir í Overtune
Miðlunarfyrirtækið Whynow fjárfesti rúmum tuttugu milljónum króna í íslenska sprotafyrirtækið Overtune. Whynow er rekið af Gabriel Jagger sem er sonur Mick Jagger, söngvara Rolling Stones. OverTune er rekið af Sigurði Ásgeiri Árnasyni, Jasoni Daða Guðjónssyni og Pétri Eggerz Péturssyni.

Icelandair fær fleiri MAX-vélar
Icelandair hefur gert samning um leigu á tveimur nýjum Boeing 737 MAX 8 flugvélum.

Sjö ráðin til indó
Íslenski sparisjóðurinn indó hefur ráðið sjö nýja starfsmenn, þau Hjördísi Elsu Ásgeirsdóttur, EInar Björgvin Eiðsson, Stefaníu Sch. Thorsteinsson, Lilju Kristínu Birgisdóttur, Söru Mildred Harðardóttur, Hermann Guðmundsson og Valgerði Kristinsdóttur.

Guðlaug færir sig frá Flugfreyjufélaginu til Icelandair
Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður FFÍ, hefur óskað eftir lausn frá störfum sem formaður félagsins. Hún greindi frá þessu í færslu á lokuðum Facebook-hópi flugfreyja. Ástæðan að baki ákvörðuninni er að hún tekur við störfum sem deildarstjóri launadeildar Icelandair í september.

Margir sagðir vilja í stjórn Festi
Allt að þrjátíu eru sagðir hafa áhuga á því að taka sæti í stjórn Festi. Ný stjórn verður kosin á aukahluthafafundi þann 14. júlí næstkomandi.

Ná þrjátíu megavöttum með betri nýtingu á varma Reykjanesvirkjunar
Mestu virkjanaframkvæmdir landsins um þessar mundir standa yfir á Reykjanesi en þar er verið að stækka jarðgufuvirkjun HS Orku um þrjátíu megavött. Ekki þarf þó að borar nýjar holur á svæðinu til orkuöflunar heldur er ætlunin að nýta betur þann jarðvarma sem þegar er til staðar.

Gróa nýr forstöðumaður þjónustuvers Landsbankans
Gróa Helga Eggertsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustuvers Landsbankans. Fyrir starfaði hún sem forstöðumaður hjá tækniþjónustu Nova.

Kolbrúnu sagt upp störfum á Fréttablaðinu
Kolbrúnu Bergþórsdóttur hefur verið sagt upp störfum á Fréttablaðinu. Hún segir það ekki hafa komið sér sérstaklega á óvart.

Nótt tekur við Grænvangi
Nótt Thorberg hefur verið ráðin forstöðumaður Grænvangs. Hún hefur að undanförnu starfað sem forstöðumaður vara og viðskiptahollustu hjá Icelandair.

Spá því að verðbólgan nálgist tíu prósent í næsta mánuði
Landsbankinn reiknar með að ársverðbólga mælist 9,5 prósent í næsta mánuði, en fari svo hjaðnandi eftir það.

Heimkaup hefja áfengissölu í heimsendingu
Vefverslunin Heimkaup hefur bæst í flóru þeirra fyrirtækja sem selja áfengi yfir netið hér á landi. Verðlagning er svipuð og í ÁTVR.