Viðskipti erlent

Faðirinn gleðst yfir heilmynd af Amy Winehouse
Enska tónlistarkonan Amy Winehouse, sem lést árið 2011 úr áfengiseitrun, fer í tónleikaferðalag seint á næsta ári. Heilmynd af söngkonunni mun stíga á svið og flytja hennar þekktustu lög, til að mynda Rehab, Valerie og Back to Black.

Miklar lækkanir á mörkuðum
Miklar lækkanir hafa orðið á mörkuðum um allan heim eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stýrivaxtahækkanir Seðlabanka Bandaríkjanna væru brjálaðar.

Lengsta áætlunarflug heims ekki fyrir hvern sem er
Singapore Airlines hefur í dag áætlunarflug milli Singapúr og New York á ný en fimm ár eru síðan flugfélagið flaug síðast milli borganna.

Þarf að útskýra hvernig hún gat eytt 600 þúsund á dag í Harrods
Konu að nafni Zamira Hajiyeva hefur verið gert að greina frá því hvernig hún hafði efni á því að kaupa rándýra íbúð í Lundúnum, golfvöll í Berkskíri og eyða háum fjárhæðum í lúxusverslunarmiðstöðinni Harrods.

Ólíklegt að Bandaríkjadalur gefi eftir á næstunni
Styrking Bandaríkjadals gagnvart íslensku krónunni á síðustu mánuðum hefur jákvæð áhrif á ferðaþjónustu hér á landi að mati aðalhagfræðings Kviku banka sem telur ólíklegt að styrkingin gangi til baka á næstunni.

Facebook treður nýjar slóðir
Samfélagsmiðlarisinn Facebook, sem rekur meðal annars Facebook, Instagram og WhatsApp, kynnti í gær tvo nýja snjallskjái úr smiðju fyrirtækisins.

Fóru leynt með gríðarmikinn gagnaleka og reka nú síðasta naglann í kistu Google+
Í minnisblaði, sem yfirmenn hjá Google sendu starfsfólki sínu og Wall Street Journal hefur undir höndum, segir að fyrirtækið hafi fyrst frétt af gagnalekanum í mars síðastliðnum.

Telja alþjóðlega kreppu ósennilega í bráð
Sérfræðingar hjá stærstu hugveitum Bandaríkjanna á sviði efnahagsmála telja aðra alþjóðlega kreppu ósennilega í bráð. Adam Tooze prófessor í sagnfræði við Columbia-háskóla og höfundur nýrrar bókar um kreppuna tekur undir þetta.

Hlutabréf í Juventus taka dýfu í kjölfar ásakana á hendur Ronaldo
Hlutabréf í ítalska knattspyrnuliðinu Juventus hafa lækkað hratt í verði síðan ásakanir á hendur knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo um nauðgun komust í hámæli á þriðjudag. Ronaldo er leikmaður félagsins.

Flunkuný Nintendo Switch á leiðinni
Japanski tölvuleikjarisinn Nintendo áformar að setja á markað uppfærða útgáfu af leikjatölvunni Nintendo Switch á næsta ári.

Starfsmenn ósáttir við launahækkun
Þótt Amazon hafi hækkað lágmarkslaun starfsmanna í Bandaríkjunum í fimmtán Bandaríkjadali, andvirði um 1.700 króna, sem og laun starfsmanna á Bretlandi til að bregðast við gagnrýni þingmanna eru margir starfsmenn ósáttir.

Microsoft í samkeppni við Bose
Microsoft kynnti á þriðjudaginn nýjar tölvur og tól en að mestu snerist kynningin um nýjar Surface tölvur og ný heyrnartól.

Viskíflaska seld á metfé
Mjög sjaldgæf flaska af viskíi seldist á uppboði í Edinborg í Skotlandi fyrir metfé fyrr í dag.

Amazon hækkar lægstu laun
Bandaríski netverslunarrisinn Amazon hefur ákveðið hækka laun hundruð þúsunda starfsmanna sinna á Bretlandseyjum og í Bandaríkjunum.

Strembið að hlaða nýja iPhone
Svo virðist sem erfitt sé að hlaða rafhlöðuna í nýjum snjallsímum Apple, iPhone XS og XS Max.

Skipaður bankastjóri Danske Bank til bráðabirgða
Jesper Nielsen tekur stöðunni við af Thomas Borgen sem tilkynnti um afsögn sína í síðasta mánuði.

Elon Musk stígur til hliðar sem stjórnarformaður Tesla
Elon Musk mun stíga til hliðar sem stjórnarformaður Tesla fyrirtækisins. Hann verður þó forstjóri fyrirtækisins áfram. Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur sektað Tesla fyrirtækið um 20 milljónir Bandaríkjadala og Elon Musk um sömu upphæð.

Tíu ár frá komu Android-síma á markað
Stýrikerfi Google fyrir farsíma er orðið það vinsælasta í heiminum en fyrsti síminn með stýrikerfinu fékk dræmar viðtökur gagnrýnenda. Microsoft reyndi að taka slaginn við Google en mistókst. Margt hefur breyst á undanförnum áratug og framtíðin virðist björt.

Elon Musk kærður fyrir svik
Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur kært Elon Musk, forstjóra bílaframleiðandans Tesla, fyrir svik í tengslum við tíst hans um að taka fyrirtækið af markaði.

Kærastinn með hýra augað úrskurðaður karlrembulegur í Svíþjóð
Umrætt fyrirbrigði hefur náð mikilli útbreiðslu í meðförum netverja undanfarin ár og er yfirleitt notað til að túlka glímu við ýmiss konar freistingar.

Oculus gefur út ný sýndarveruleikagleraugu
Fyrirtækið Oculus, sem er í eigu Facebook, ætlar að gefa út sýndarveruleikagleraugun Oculus Quest næsta vor.

Michael Kors kaupir Versace
Bandaríska hönnunarrisinn Michael Kors hefur keypt ítalska merkið Gianni Versace fyrir um 240 milljarða króna.

Stofnendur Instagram hætta
Stofnendur samfélagsmiðilsins Instagram, Kevin Systrom og Mike Krieger, hafa hætt störfum hjá fyrirtækinu.

Michael Kors talinn ætla að kaupa Versace
Bandaríski fatarisinn Michael Kors er sagður vera í viðræðum um kaup á tískuvöruframleiðandanum Versace.

Primera Air efst á svörtum lista í Svíþjóð
Af þeim 23 flugfélögum sem rötuðu á "svartan lista“ sænsku neytendasamtakanna Råd & Rön og tímaritsins Vagabond trónir Primera Air á toppnum.

Comcast yfirbauð Fox í baráttunni hatrömmu um Sky
Bandaríski fjölvarpsrisinn Comcast mun kaupa 61 prósenta hlut í breska sjónvarpsfyrirtækinu Sky eftir að Comcast yfirbauð 21 Century Fox á uppboði breskra samkeppnisyfirvalda á hlutunum. Félögin hafa barist um hlutina sem nú voru á uppboði það sem af er ári.


Amazon stefnir á stórsókn í kassalausum verslunum
Amazon.com Inc. stefnir á að opna þúsundir nýrra matvöruverslana á allra næstu árum.

Engar olíulækkanir í spákortunum
Greinendur búast við því að heimsmarkaðsverð á olíu haldist yfir 80 dölum á fatið á næstu mánuðum. Viðskiptaþvinganir Bandaríkjastjórnar gegn Írönum munu minnka verulega framboð á olíu frá Íran. OPEC-ríkjunum ekki tekist að vega á móti framboðsskortinum

Forstjóri Danske Bank hættir: Telja að 200 milljarðar evra hafi flætt í gegnum lítið útibú í Eistlandi
Tomas Borgen, forstjóri Danske Bank, hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem forstjóri bankans. Útlit er fyrir að 200 milljarðar evra, því sem nemur 25 þúsund milljörðum íslenskra króna, hafi flætt í gegnum lítið útibú bankans í Eistlandi.