
Viðskipti erlent

Svíar og Danir setja um 180 milljarða í SAS
Stjórnvöld í Svíþjóð og Danmörku hafa aukið eignarhlut sinn í norræna flugfélaginu SAS eftir að þau settu samtals um 180 milljarða króna inn í félagið til að bjarga frá þroti.

Tilraunaflug 737 MAX hófst í dag
Boeing 737 MAX flugvél hóf sig að loft að nýju í Bandaríkjunum í dag eftir að tilraunaflug Boeing og Flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum vegna MAX-vélanna hófst í dag.

Vogue Scandinavia hefur göngu sína næsta vor
Ný útgáfa tískutímaritsins Vogue er væntanleg næsta vor en tímaritið sem mun bera titilinn Vogue Scandinavia mun vera gefið út á ensku og einblína á norræna hönnun.

Framleiðslu Olympus-myndavéla hætt
Japanska fyrirtækið Olympus hefur hætt framleiðslu myndavéla eftir 84 ár á markaðnum.

Færeyingar yngja upp með nýrri Airbus A320 beint úr verksmiðju
Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur fengið afhenta nýja þotu af gerðinni Airbus A320neo. Þotan kom beint frá Airbus-verksmiðjunum í Toulouse í Frakklandi á föstudag.

Framleiðslu Segway PT hætt
Segway hefur ákveðið að hætta framleiðslu samnefndra tveggja hjóla farartækja.

Eigandi TikTok hagnaðist um þrjá milljarða Bandaríkjadala á síðasta ári
ByteDance, móðurfyrirtæki samfélagsmiðilsins TikTok hagnaðist um þrjá milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar um 416 milljörðum íslenskra króna, og fékk meira en 17 milljarða Bandaríkjadala, sem eru um 2.360 milljarðar íslenskra króna, í tekjur á síðasta ári.

Ninja og Shroud leika lausum hala eftir lokun Mixer
Microsoft hefur tekið þá ákvörðun að loka leikjastreymisþjónustunni Mixer í júlí og stefnir á að flytja samstarfsaðila sína yfir til Facebook Gaming. Microsoft hafði gert samninga við tvo af stærstu „streymurum“ heimsins, þá Ninja og Shroud.

Umfangsmiklar breytingar á heimaskjám síma Apple
Apple kynnti í gær ýmsar nýjungar á árlegri þróunarráðstefnu fyrirtækisins.

Innleysa útistandandi hluti í Heimavöllum
Hið norska félag Fredensborg ICE ehf hefur eignast 99,45 prósent hlutafjár í Heimavöllum eftir uppgjör á yfirtökutilboði félagsins til hluthafa félagsins fór fram.

Stofnandi Hello Kitty dregur sig í hlé eftir sextíu ár við stjórn
Shintaro Tsuji, stofnandi japanska fyrirtæksins sem á vörumerkið Hello Kitty, hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri eftir um sextíu ár við stjórnvölin.

Stærstu flugfélög Norðurlanda skulda milljarða
Tvö stærstu flugfélög Norðurlandanna, SAS og Norwegian, eru sögð skulda viðskiptavinum um sjö milljarða danskra króna.

Breska hagkerfið dróst saman um rúm 20 prósent í apríl
Breska hagkerfið dróst saman um 20,4 prósent í aprílmánuði miðað við mánuðinn á undan og er það mesti samdráttur í breskri sögu.

PlayStation 5 kemur á markað í ár
Sony birti í dag útlit nýrrar leikjatölvu, PlayStation 5, sem verður komin á markað síðla þessa árs. Útlit tölvunnar var afhjúpað í kynningu sem Sony streymdi í beinni útsendingu þar sem nýir leikir voru kynntir sem gerðir eru sérstaklega fyrir tölvuna.

Hrun á Wall Steet eftir svartar kórónuveirutölur
Verð á hlutabréfum á Wall Street hrundi meira en það hefur gert frá upphafsdögum kórónuveirufaraldursins um miðjan mars eftir að nýjum smitum fjölgaði á nýjan leik vestanhafs í dag. Seðlabanki Bandaríkjanna varaði við því í gær að efnahagsbati eftir dýpstu niðursveiflu í áratugi yrði hægur.

Lufthansa segir upp 22 þúsund manns
Þýska flugfélagið hefur greint frá því að til standi að segja upp 22 þúsund manns þar sem félagið reynir að bregðast við breyttu rekstrarumhverfi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Mennskir blaðamenn löguðu til eftir gervigreindina sem kemur í staðinn fyrir þá
Nýtt gervigreindarforrit Microsoft sem sér um að velja og ritstýra efni sem birtist á MSN.com gerði afdrifarík mistök á dögunum.

Dótturfélag Kviku semur um stýringu á tveimur breskum veðlánasjóðum
KKV Investment Management, dótturfélag Kvika Securities sem er jafnframt dótturfélag Kviku banka í Bretlandi, hefur gengið frá samningum um stýringu á tveimur breskum veðlánasjóðum.

Danske bank yfirgefur Eistland
Danske Bank hefur náð samkomulagi um sölu á eftirstandandi eignum sínum í Eistlandi í kjölfar peningaþvættishneykslisins.

SAS hefur flug til Keflavíkur að nýju
Flugfélagið SAS mun frá miðjum júní fram í lok mánaðar fjölga flugleiðum úr fimmtán upp í þrjátíu leiðir. Flogið verður frá Kaupmannahöfn til sextán áfangastaða, þar á meðal til Íslands.

Lufthansa flýgur til Íslands á ný
Þýska flugfélagið Lufthansa mun hefja flug hingað til lands þrisvar í viku í byrjun júní.

LEGO bað auglýsendur um að fjarlægja markaðsefni með lögguþema
Leikfangaframleiðandinn LEGO hefur ákveðið að styrkja Black Lives Matter hreyfinguna um fjórar milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar rúmlega hálfum milljarði íslenskra króna.

Starfsmenn Facebook ósáttir við afskiptaleysi af færslum Trump
Megnrar óánægju gætir hjá sumum starfsmönnum samfélagsmiðlarisans Facebook vegna þess hvernig Mark Zuckerberg forstjóri hefur haldið að sér höndum varðandi umdeildar færslur Donald Trump Bandaríkjaforseta. Zuckerberg og Trump ræddu saman í síma á föstudag.

Forstjóri Southwest býst við að MAX fljúgi á fjórða ársfjórðungi
Forstjóri Southwest Airlines, stærsta lággjaldaflugfélags heims, býst við að Boeing 737 MAX-þoturnar verði aftur komnar í farþegaflug á síðasta fjórðungi þessa árs.

Kylie Jenner ekki lengur á lista Forbes yfir milljarðamæringa
Viðskiptablaðið Forbes hefur fjarlægt Kylie Jenner, raunveruleikastjörnu og frumkvöðul, af lista sínum yfir milljarðamæringa. Blaðið sakar hana og fjölskyldu hennar um að ýkja virði snyrtivörufyrirtækis hennar.

EasyJet boðar miklar uppsagnir
Breska lággjaldafélagið EasyJet áformar að segja upp þúsundum manna í starfsliði sínu, eða allt að þrjátíu prósentum starfsmanna.

Yfirstjórn Lufthansa hafnar skilyrðum Evrópusambandsins
Yfirstjórn þýska flugfélagsins Lufthansa hafnaði í dag skilyrðum sem Evrópusambandið setti við björgunarpakka þýskra stjórnvalda til að forða félaginu frá gjaldþroti. Enn á ný er því alls óvíst um framtíð Lufthansa hvar 138 þúsund manns starfa.

Samdrátturinn 20 prósent í Frakklandi
Franska hagstofan gerir ráð fyrir að samdrátturinn í frönsku efnahagslífi muni nema heilum 20 prósentum á öðrum ársfjórðungi. Er það rakið til lokana og annarra aðgerða yfirvalda vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Stærsta flugfélag Suður-Ameríku sækir um gjaldþrotavernd
Flugfélagið LATAM hefur sótt um gjaldþrotavernd í Bandaríkjunum, en líkt og með önnur flugfélög hefur heimsfaraldur kórónuveirunnar leikið flugfélagið grátt.

Þýska ríkið og Lufthansa ná samkomulagi um níu milljarða evra björgunarpakka
Þýska flugfélagið Lufthansa og þýska ríkið hafa náð samkomulagi um níu milljarða evra björgunarpakka ríkisins til handa flugfélaginu.