
Tónlist

Jóhanna Guðrún og dóttir hennar sameina krafta sína
Ástsæla tónlistarkonan Jóhanna Guðrún var að senda frá sér lag og tónlistarmyndband ásamt glænýrri söngkonu sem heitir Margrét, er sjö ára gömul og er jafnframt dóttir Jóhönnu. Lagið ber heitið Best í heimi og er tónlistarmyndbandið frumsýnt í pistlinum hér fyrir neðan. Blaðamaður tók púlsinn á Jóhönnu Guðrúnu og fékk að heyra nánar frá.

Fjallar um þessa löngun til að finna sína leið
Tónlistarkonurnar og vinkonurnar ЯÚN og RAVEN eða Guðrún Ólafsdóttir og Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir sendu frá sér lagið Handan við hafið fyrr í maí mánuði. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag.

The Weeknd fleygir listamannsnafninu
Kanadíska poppstjarnan The Weeknd hefur tekið upp sitt eigið nafn á samfélagsmiðlum, Abel Tesfaye, í stað síns heimsfræga nafns The Weeknd. Hann hefur áður rætt opinskátt um að vilja losna undan listamannsnafninu.

Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision
Íslenska dómnefndin í Eurovision í ár samanstóð af fimm einstaklingum úr ólíkum áttum í íslensku tónlistarlífi.

Loreen kemur til landsins: „Nafnið hans byrjar á Ólafur“
Nýbakaður sigurvegari Eurovision kemur senn til landsins til þess að starfa með íslenskum tónlistarmanni. Til þessa hefur hún ekki viljað gefa upp hver það er en í viðtali á dögunum sagði hún að nafnið hans byrjaði á „Ólafur.“ Ólafur Arnalds tónlistarmaður deildi myndskeiði af viðtalinu á Twitter.

Tónsmíðarnar eins og gullgerðarlist
Gotaskotna og mekaníska síðpönkssveitin virgin orchestra gefur út sína fyrstu breiðskífu í dag.

Ástar-haturs samband við Reykjavík varð að lagi
„Ég komst að því nýlega að ég ætti í ástar-haturs sambandi við Reykjavík, borgina sem ég hef búið í rúmlega 70% af ævinni,“ segir tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Einar Lövdahl, sem var að senda frá sér lagið Reykjavík, ó, Reykjavík.

Afhjúpa fleiri tónlistaratriði á Þjóðhátíð
Þjóðhátíð fer fram með pomp og prakt yfir Verslunarmannahelgina, 3. - 6. ágúst næstkomandi. Emmsjé Gauti er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins sem verður frumflutt í byrjun júní en Þjóðhátíðarnefnd tilkynnti í dag um fleiri tónlistaratriði.

„Náði að forðast ástina þar til ég lenti í rímnaflækju“
Tónlistarkonan Silja Rós sendi frá sér lagið Share U fyrir nokkrum vikum síðan en lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.

Aflýsa tónleikum Bjarkar í sumar
Búið er að aflýsa Cornucopia tónleikum Bjarkar sem áttu að fara fram í Reykjavík í júní. Er það gert vegna vandamála við framleiðslu tónleikanna sem ekki tókst að leysa, samkvæmt tilkynningu.

Bombay Bicycle Club og miklu fleiri bætast í hópinn á Airwaves
Þrjátíu listamenn hafa bæst við hóp þeirra sem fram koma á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni sem fram fer í Reykjavík 2. til 4. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Frumsýning: Fóru á listrænt flug á hárgreiðslustofunni
Þeir Eyþór Ingi, Davíð Sigurgeirsson, Þorsteinn Árnason, Þórður Sigurðsson og Jón Björn Ríkharðsson mynda hljómsveitina Rock Paper Sisters. Systurnar svokallaðar voru að klára sína fyrstu plötu eftir mikla vinnu og frumsýna hér listrænt tónlistarmyndband við fyrsta smellinn sinn With You.

Alltumlykjandi kynorkan veitti innblásturinn
Dularfullur tónlistarmaður sem kallar sig BLOSSI var að senda frá sér lagið Heim með þér. Þetta er fyrsta lag sem kemur út í nafni BLOSSA, sem segist vera heitasti nýi listamaðurinn í dag.

Var fimmtán ára þegar hún skrifaði undir fyrsta erlenda plötusamninginn
„Tónlistin hefur alltaf verið í umhverfinu hjá mér. Ég upplifði aldrei augnablikið þar sem ég ákvað að nú ætlaði ég að byrja, það var engin fyrsta skóflustunga,“ segir tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir, sem hefur gert öfluga hluti í heimi tónlistarinnar og verið með annan fótinn í erlendu senunni frá unglingsaldri. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá tónlistinni og tilverunni.

Birgitta Líf gerist umboðsmaður Prettyboitjokko: „Þetta verður næsta poppstjarna Íslands“
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, sem einnig er þekktur sem Prettyboitjokko, hefur ráðið athafnakonuna og raunveruleikastjörnuna Birgittu Líf Björnsdóttur sem umboðsmann.

Andi Svavars sveif yfir vötnum þegar Íslandsmet var slegið í tónleikahaldi
Sextíu tónlistarmenn, sem voru nánir vinir og kollegar Svavars Péturs Eysteinssonar, eða Prins Póló, stigu á svið í Gamla bíói í gær á styrktartónleikunum Hátíð hirðarinnar. Ekkja Svavars, Berglind Häsler, segir líklegt að Íslandsmet hafi verið slegið í fjölda tónlistarmanna sem kom fram á þessum fjögurra klukkustunda tónleikum.

Hatarinn Klemens sýnir á sér mjúkar hliðar
Tónlistar- og gjörningalistamaðurinn Klemens Hannigan var að senda frá sér sitt fyrsta lag undir eigin nafni. Lagið ber heitið Never Loved Someone So Much en því fylgir einnig splunkunýtt tónlistarmyndband sem er frumsýnt hér í pistlinum.

Huggulegt stefnumót með konunni endaði með söng uppi á sviði í Eldborg
Það var margt um manninn í Eldborg síðastliðið laugardagskvöld þegar tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson hélt stórtónleika í tilefni af 60 ára afmæli sínu. Hallgrímur Ólafsson leikari, jafnan þekktur sem Halli Melló, tók lagið með Jóni en var það þó algjörlega óundirbúið og hafði Halli ekki hugmynd um það, fyrr en hann var kallaður upp á svið fyrir framan um 1500 tónleikagesti.

Sjóðheita plötusnúðaparið Karen Grétars og Margeir kvöddu veturinn með stæl
Karen Grétars og DJ Margeir eru nýtt plötusnúða kærustupar en þau héldu sitt fyrsta sameiginlega klúbbakvöld síðastliðinn miðvikudag, kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta, á skemmtistaðnum Auto. Margt var um manninn og þekkt andlit dönsuðu saman inn í sumarið.

Lærði söng hjá Frikka Dór og á nú hittara með honum
Rapparinn Daniil situr í fjórða sæti Íslenska listans á FM með nýtt lag sem ber heitið Aleinn. Með honum á laginu er enginn annar en Friðrik Dór en Daniil var einungis níu ára gamall þegar hann kynntist Frikka, í gegnum söngtíma.

Kostulegur nútímadans Jóa Pé og Viktors í nýju myndbandi Warmland
Warmland tvíeykið gefur í dag út sína aðra plötu, Modular Heart. Tónlistarmyndband sveitarinnar við lagið Juno frumsýnt á Vísi hér að neðan en þar fara þeir Jói Pé og Viktor Breki á kostum í nútímadansi.

Þakklátur að geta valið tónlistina fram yfir herinn
Tónlistarmaðurinn Daniil hefur náð miklum árangri í íslenskum tónlistarheimi en hann var kosinn Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár og var að senda frá sér plötuna 600. Hann verður með stóra útgáfutónleika í Gamla Bíó á morgun, föstudagskvöld, þar sem öllu verður til tjaldað. Blaðamaður tók púlsinn á þessum 21 árs gamla rappara, sem byrjaði að gera tónlist fyrir fjórum árum síðan.

Drukknaði eftir að hafa tekið blöndu af fíkniefnum
Réttarmeinalæknir segir söngvarann og samfélagsmiðlastjörnuna Aaron Carter hafa drukknað í baðkari sínu vegna áhrifa af fíkniefnum sem hann hafði tekið fyrr um daginn. Í líkama hans fundust efni úr Xanax-töflum og efni úr loftúðahreinsiefni.

Hugmynd sem kviknaði eftir pílagrímsferð til New York
„Mig langaði að gera þeirri tónlist sem ég hef samið á undanförnum árum góð skil,“ segir píanóleikarinn og tónskáldið Magnús Jóhann Ragnarsson, sem stendur fyrir fjögurra kvölda tónleikaseríu í Mengi og hefst hún á fimmtudagskvöld. Blaðamaður tók púlsinn á Magnúsi Jóhanni.

Myndband: Björk notaði meira en 800 dróna á Coachella
Tónlistarkonan Björk kom fram á tónlistarhátíðinni Coachella í Kaliforníufylki í gærkvöldi og heillaði fólk eins og hún á að sér. Vakti það mikla athygli að Björk notaði meira en 800 dróna til að lýsa upp himininn fyrir ofan sviðið.

Kristmundur Axel með tvö lög á Íslenska listanum
Rapparinn Kristmundur Axel hefur með sanni átt öfluga endurkomu inn í íslenskt tónlistarlíf að undanförnu og kom meðal annars fram á Hlustendaverðlaununum í ár. Hann er mættur á Íslenska listann á FM með ekki bara eitt heldur tvö lög.

„Veit um tvær stelpur sem eru skírðar í höfuðið á laginu mínu“
„Ég byrjaði í tónlist þegar ég var pínulítill. Pabbi er söngvari og ég var fimm ára þegar ég byrjaði að spila á gítar,“ segir tónlistarmaðurinn Thorsteinn Einarsson, sem skrifaði átján ára gamall undir plötusamning í Austurríki. Hann hefur verið að gera góða hluti þar undanfarin ár, er með milljónir spilanna á streymisveitunni Spotify og hefur spilað víða á tónleikum. Blaðamaður hitti hann í kaffi og tók púlsinn á honum.

Gítarleikari The Script látinn aðeins 46 ára gamall
Mark Sheehan, gítarleikari og einn stofnenda írsku hljómsveitarinnar The Script, lést í dag aðeins 46 ára gamall.

Elín Hall og GDRN sameina krafta sína í nýju lagi
Tónlistarkonurnar Elín Hall og Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, leiða saman hesta sína í laginu Júpíter sem kom út í dag.

Herra Hnetusmjör og Frikki Dór aftur á toppnum
Tónlistarmennirnir Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór sitja á toppi Íslenska listans með lagið Vinn við það. Lagið hefur flakkað upp og niður listann á síðustu vikum.