Neytendur

Meðalheildarlaun 935 þúsund og hæst hjá ríkinu
Grunnlaun á vinnumarkaði hækkuðu um rúm ellefu prósent í síðustu kjarasamningslotu. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur grunntímakaups um 2,6 prósent.

Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi
Meðlimur í Facebook-hópnum Vertu á verði - eftirlit með verðlagi vekur athygli á að samlokur á stærð við rúnstykki á matsölustaðnum við Geysi kosti tæpar 2500 krónur. Eigandi staðarins segir samlokurnar matarmiklar og nýsmurðar með áleggi beint frá býli.

Festi fær að kaupa Lyfju
Festi og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt vegna kaupa Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. Með sáttinni samþykkir Samkeppniseftirlitið samrunann með skilyrðum sem sett eru til að efla og vernda virka samkeppni á þeim mörkuðum sem samruninn hefur áhrif á.

Blár Opal seldist á fimmtán þúsund
Í gær varð uppi fótur og fit á Feisbúkksíðunni Braskogbrall.is, þegar auglýstur var til sölu pakki af Bláum Opal frá árinu 2002. Auglýst verð var fimmtán þúsund krónur.

Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum
„Mér finnst þetta merkilegt að við séum komin í svona mikla steinefnaneyslu. Það getur líka verið hættulegt að nota of mikið af steinefnum. Það ruglar í vökvajafnvægi í líkamanum og myndar bjúg og annað.“

MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni
Matvælastofnun (MAST) varar við neyslu á fæðubótarefninu, Fermented mushroom blend, sem ProHerb ehf. flytur inn til landsins. Varan er framleidd í Bandaríkjunum.

„Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum
Dyggur viðskiptavinur nytjamarkaða rak upp stór augu í dag þegar hún sá að IKEA blómavasi til sölu í Góða hirðinum kostaði meira en sami blómavasi nýr úr IKEA. Hún hefur áhyggjur af hækkandi verðum í versluninni. Forsvarsmaður Góða hirðisins segir tilfelli þegar vara er dýrari en ný teljast til algerra undantekninga. Verslunin sé fyrst og fremst óhagnaðardrifið umhverfisverkefni.

„Rétturinn til viðgerðar“ væntanlegur til landsins
„Rétturinn til viðgerðar“ er væntanlegur til landsins en það mun gera neytendum auðveldara að óska viðgerða í stað þess að skipta út vörum. Viðgerðarþjónusta mun verða aðgengilegri og gegnsærri.

Borgar 760 þúsund fyrir flísalögn sem átti að kosta þrjár milljónir
Ófaglærðum verktaka sem rukkaði viðskiptavin sinn um þrjár milljónir fyrir flísalögn hefur verið gert að gjörlækka greiðslukröfu sína til viðskiptavinarins, niður í 760 þúsund krónur.

Pepsíunnandi til margra ára kveður drykkinn eftir breytinguna
Pepsíunnandi til margra ára segist hættur að drekka drykkinn eftir að sykurmagnið var minnkað og sætuefni settí staðinn. Næringarfræðingur segir sætuefni ekki skárri en sykur.

„Það sem þú greiðir niður, það kemur aldrei aftur“
Vaxtastuðningur upp að tvö hundruð þúsund krónum á mann stendur fólki nú til boða, til að bregðast við hækkandi vaxtabyrðum húsnæðislána. Fjármálaráðgjafi segir almennt best að ráðstafa fjármunum beint inn á höfðustól lána. Það sé þó ekki algilt.

Vísar ásökunum um „vopnaðan frið“ um verðlag á bug
Verkefnastjóri hjá ASÍ segir samkeppni á raftækjamarkaði hafa verið slegið á frest og að vopnaður friður ríki mili ELKO og Heimilistækja, þar sem verðmunur sé oft lítill sem enginn. Framkvæmdastjóri ELKO vísar því á bug.

Lítil samkeppni milli raftækjarisa
Lítillar samkeppni gætir milli Elko og Heimilistækja-samstæðunnar, sem innifelur Tölvulistann, Rafland og Byggt og búið, samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Í samanburðinum voru 61% af verðum þau sömu, upp á krónu.

Aldrei verið minna af sykri í íslensku Pepsí
Íslenskir neytendur hafa fundið fyrir því nýverið að minni sykur er í venjulegu Pepsí en áður. Þess í stað hafa verið sett sætuefni í staðinn, neytendum til mismikillar gleði. Ölgerðin segir ákall hafa verið eftir minna sykurmagni í drykknum.

Landsnet skuldar Landsvirkjun 2,4 milljarða
Landsnet skuldar Landsvirkjun 2,4 milljarða króna sem greiddar voru í svokallað aflgjald af framleiðendum raforku. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að innheimta Landsnets á téðu gjaldi væri ólögmæt.

Keypti gallaðan kveikjara og fær 50 þúsund krónur
Sölumaður sem seldi konu kveikjara á fimmtíu þúsund krónur ber að endurgreiða henni upphæð kveikjarans á þeim grundvelli að kveikjarinn reyndist gallaður eftir að hann hafði verið seldur.

Landsvirkjun vann og neytendur borga brúsann
Hæstiréttur hefur dæmt innheimtu Landsnets á svokölluðu aflgjaldi af framleiðendum raforku ólögmæta. Sama niðurstaða á neðri dómstigum gerði það að verkum að Landsnet færði aflgjaldið yfir á notendur raforku, neytendur.

Reykjavík Marketing sektað vegna fullyrðinga um vörur frá Lifewave
Neytendastofa hefur sektað fyrirtækið Reykjavík Marketing fyrir ósannaðar fullyrðingar um vörur seldar undir merkinu Lifewave, að því er fram kemur á vefsíðu stofnunarinnar.

Lét bóna bílinn, lenti illa í því og fær 1,6 milljónir í bætur
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur úrskurðað fyrirtæki sem annast þrif á bílum til þess að greiða einstaklingi rétttæpar 1,6 milljónir króna í skaðabætur vegna bíls sem fór illa úr þrifum hjá fyrirtækinu.

Vara við hættulegum og hræódýrum vörum hjá netverslunum
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vill hvetja neytendur til að gæta varúðar við kaup á vörum frá netverslunum utan Evrópu sem auglýsa vörur á samfélagsmiðlum sem eru töluvert undir markaðsverði.

Hægir á verðhækkunum matvöru
Verðbólga í matvöruverslunum fer minnkandi það sem af er ári. Til marks um það hækkaði verðlag matvöru um 1,2 prósent milli mánaða, samanborið við 12,3 prósent árshækkun matvöruverð í maí á síðasta ári.

„Gátum ekki setið og beðið endalaust“
Hagkaup áformar að hefja netverslun með áfengi í næsta mánuði. Forstjórinn viðurkennir að um grátt svæði sé að ræða lagalega séð, en segir fyrirtækið ekki hafa getað beðið „endalaust“ eftir því að verslun með áfengi verði leyfð alfarið.

Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga
Fjölmiðlanefnd hefur sektað Árvakur, fjölmiðlaveitu mbl.is, um 1,5 milljónir króna vegna ítrekaðra brota á lögum sem banna duldar auglýsingar. Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa fengið fréttir skrifaðar um vörur sínar á mbl.is, án þess að tekið væri fram að um auglýsingu væri að ræða, eru Nói siríus, Hagkaup, MS og Te og kaffi.

Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað
Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða Landsbankanum 300 þúsund króna kortareikning, sem var til kominn vegna úttekta í brasilísku ríal. Þá þarf hann að greiða bankanum 400 þúsund krónur í málskostnað.

Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vonast til þess að hlutir úr dánarbúi foreldra sinna komi öðrum að góðum notum. Neikvæð þróun sé í grænni orku hér á landi og fyrirtæki þurfi að notast við olíu á ný vegna skorts á raforku.

Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar
Tæplega helmingi Íslendinga finnst stundum í lagi að kaupa falsaðar vörur og eftirlíkingar. Þetta er niðurstaða könnunar Maskínu fyrir Hugverkastofu. Níu prósent landsmanna hafa keypt falsanir eða eftirlíkingar síðastliðna 12 mánuði, mest á erlendum vefsíðum. Karlar kaupa mest falsaða merkjavöru og íþróttaföt en konur gleraugu og skartgripi.

Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun
Á morgun verður hinn alþjóðlegi dagur jarðar haldinn og að því tilefni hefur Krónan ákveðið að bjóða öllum sem mæta með fjölnota innkaupapoka í strætó á höfuðborgarsvæðiu ókeypis far.

Stöð 2+ lækkar verð
Frá og með 1. maí næstkomandi mun streymisveitan Stöð 2+ vera aðgengileg viðskiptavinum á lægra verði.

Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á
Seðlabanki Íslands hefur vakið athygli á því að slitastjóri hefur ekki enn verið skipaður yfir slóvakíska vátryggingafélaginu Novis, sem var svipt starfsleyfi fyrir tíu mánuðum. Sex til sjö þúsund Íslendingar hafa keypt tryggingarafurðir Novis og mikil óvissa ríkir um stöðu þeirra.

Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða
Neytendastofa hefur ákveðið að rannsaka gjaldtöku á bílstæðum eftir að FIB benti á ófremdarástand á markaðnum. Framkvæmdastjóri félagsins segir neytendur verða fyrir barðinu á græðgisvæðingu og frumskógi innheimtuleiða.