
Menning

Leitin að heilaga fjallinu rannsökuð
Sýningin Fjall með verkum eftir listakonuna Auði Ómarsdóttur verður opnuð í galleríi Ekkisens í kvöld.

Með myndadellu frá því ég var krakki
Listmálarinn Tryggvi Ólafsson er upprunanum trúr og velur verkalýðsdaginn til þess að opna sýningu. Sú er í Galleríi Fold við Rauðarárstíg og nefnist Ný grafík.

Ljóðin reyndust betur en strákarnir
Í dag kemur út ljóðasafn Ingunnar Snædal af tuttugu ára ferli skáldsins af Jökuldalnum. Skáldinu finnst dálítið skrítið að sjá þetta allt komið saman í eina bók en svo ætlar hún að flytja til Dyflinnar ásamt hálfírskri unglingsdóttur sinni með haustinu.

Hjarta sýningarinnar er í söngljóðum Jónasar Árnasonar
Leitin að Jörundi verður á fjölum Þjóðleikhúskjallarans þrjá sunnudaga í maí.

Ólga um ráðningu óperustjóra
Stjórn Íslensku óperunnar sendi í gær frá sér greinargerð um ráðningu nýs óperustjóra. Gunnar Guðbjörnsson er ósáttur við hvernig staðið var að ráðningunni.

Hádegisspjall um hersetuna
Stefán Pálsson sagnfræðingur verður með hádegisfyrirlestur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á 6. hæð að Tryggvagötu 15 í dag á sýningunni Varnarliðið.

„Stærsta og flottasta sýning okkar í vetur“
Stikla úr sýningu Íslenska dansflokksins sem sýnd verður á Listahátíð í Reykjavík.

Hildur Yeoman sér um Svartar fjaðrir Davíðs
Dansverkið Svartar fjaðrir eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur verður opnunarsviðsverk 29. Listahátíðar í Reykjavík.

Síendurtekin krossfesting
Söluhæsta bókin um þessar mundir fjallar um Megas og dauðasyndirnar. Óttar Guðmundsson höfundur segir Megas einkennast af tvíhyggju.

Hrói höttur í Þjóðleikhúsinu: „Öðruvísi Hrói en fólk á að venjast“
Fyrsti samlestur sýningarinnar Í hjarta Hróa hattar fór fram í dag.

Fall – það er gott orð
Krabbaveislan er fyrsta bók læknisins Hlyns Níelsar Grímssonar. Hún fjallar um lækni sem lendir í ógöngum með líf sitt og fjármálahrun kemur líka við sögu.

Megasarafmæli á menningarkvöldi
Bókakaffi á Selfossi efnir til menningardagskrár í kvöld í tilefni af hátíðinni Vor í Árborg.

Eitthvað aðdáunarvert í fari allra kvennanna
Á sýningunni Gleym þeim ei sem opnuð verður í Safnahúsi Borgarfjarðar í dag er sögð saga fimmtán kvenna sem voru uppi þegar íslenskar konur fengu kosningarétt árið 1915.

Vilja vekja vorhug og gleði gestanna
Kórarnir í Hamrahlíð fagna sumarkomu í hátíðarsal MH í dag. Ókeypis er inn.

Verkin bera með sér andblæ vorsins
Hanna Dóra Sturludóttir og félagar úr Camerarctica halda tónleika í kvöld í Hafnarborg í Hafnarfirði.

Það gengur á ýmsu í orgelhúsinu
Guðný Einarsdóttir flytur ævintýrið Lítil saga í orgelhúsi í Fella- og Hólakirkju í dag.

Sigurður Pálsson gerður að heiðursfélaga Rithöfundasambandsins
Hann er þrítugasti og þriðji heiðursfélagi sambandsins frá upphafi.

AmabAdamA tryllti fjórðu bekkinga Reykjavíkurborgar - Myndband
Barnamenningarhátíð í Reykjavík var sett í dag með pompi og prakt.

Að lifa með en ekki af náttúrunni
Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet eru höfundar Black Marrow sem verður ásamt tveimur öðrum verkum sýnt á danskvöldinu BLÆÐI í Borgarleikhúsinu á Listahátíðinni í Reykjavík í vor. Þau hafa nú unnið saman af og til í ein tíu ár.

Andi ástar og drauma svífur yfir
Kvennakór Kópavogs syngur annað kvöld í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6.

Ánægja með Arnald í The New York Times
Bókin Reykjavíkurnætur eftir rithöfundinn Arnald Indriðason fékk prýðisgóða dóma í The New York Times og Chicago Tribune í síðustu viku.

Ævintýri um alla borg
Fjölbreytt atriði sem höfða til mismunandi aldurs eru á dagskrá Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur sem hefst á morgun og stendur fram á sunnudag.

Tveir + einn í Salnum
Sif Margrét Tulinius fiðluleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari verða með tónleika í Salnum annað kvöld.

Martha aftur á svið á Íslandi eftir hálfrar aldar hlé
Óperan Martha verður frumsýnd í kvöld í Iðnó í uppfærslu Söngskóla Sigurðar Demetz. Önnur sýning verður í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli 22. apríl

Þrennir hádegistónleikar
Kirkjulistavika stendur yfir í Akureyrarkirkju.

Þetta er heilmikil áskorun og spennandi.
Steinunn Birna ráðinn nýr óperustjóri Íslensku óperunnar.

Steinunn Birna nýr óperustjóri
Tónlistarstjóri Hörpu tekur við af Stefáni Baldurssyni í Íslensku óperunni.

Helgir staðir þriggja landa
Sérstök sýning verður opnuð í Gerðubergi í dag. Þar er leitast við að gefa fólki færi á að upplifa ólíka helgistaði í Póllandi, Noregi og á Íslandi.

Skoðaðu samhengið
Safnahúsið opnar sýningu á sjónrænum menningararfi þjóðarinnar og áherslan er lögð á að ólíkar kynslóðir geti notið þess að skoða sýninguna saman.

Portrett af Snorra
Verk eftir Snorra Sigfús Birgisson verða í aðalhlutverki á 15:15 tónleikum í Norræna húsinu á morgun, sunnudag, klukkan 15.15.