Lífið

Myndaveisla: Líf og fjör á golfmóti FM957
Frábær þátttaka og mikil gleði var á partý golfmóti FM957 sem var haldið í níunda sinn síðastliðinn fimmtudag. Sjötíu og tveir keppendur mættu til leiks á mótinu sem fór fram á golfvelli Öndverðarness í Grímsnesi.

Jökull í Kaleo í Glæstar vonir
Jökull Júlíusson söngvari Kaleo mun verða í gestahlutverki í einum frægustu sápuóperuþáttum veraldar, Glæstum vonum. Hann mun flytja eitt af frægustu lögum sveitarinnar í þættinum, Way Down We Go.

Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar
Fimmtudaginn 15. ágúst hélt Tónlistarmiðstöð athöfn til að heiðra styrkhafa seinni úthlutunar Tónlistarsjóðs 2024 en þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr öllum deildum nýs Tónlistarsjóðs. Margt var um manninn og ýmis þekkt andlit létu sjá sig.

Spjótin hætta ekki að beinast að Blake Lively
Spjótin beinast enn og aftur að Hollywood leikkonunni Blake Lively á samfélagsmiðlum. Í þetta skiptið fyrir ummæli sem hún lét falla um trans fólk árið 2012. Leikkonan hefur undanfarna daga og vikur verið undir smásjá netverja vegna einkennilegrar markaðssetningar hennar á bíómyndinni It Ends With Us sem nú er í kvikmyndahúsum.

Stórstjörnur og lúðrasveit í brúðkaupi Fanneyjar og Teits
Fanney Ingvarsdóttir, stafrænn markaðssérfræðingur hjá Bioeffect, og Teitur Páll Reynisson, viðskiptastjóri hjá Landsbankanum, gengu í hjónaband í Dómkirkjunni í Reykjavík síðastliðinn laugardag.

Harðfiskís, laxaís og beikonís í stærsta ísteiti ársins
Kjörísdagurinn stóri var haldinn hátíðlegur í Hveragerði síðastliðinn laugardag í fimmtánda skipti en hátíðin er liður í blómstrandi dögum í Hveragerði. Gefnir voru um 200 þúsund skammtar af ís og er áætlað að um 22 þúsund manns hafi látið sjá sig.

Vala Grand gengin út
Vala Grand er gengin út. Sá heppni heitir Brynjólfur Gunnarsson en er þekktur af vinum og vandamönnum sínum sem Bryns.

Fjögur börn og trúlofun hjá Evu Dögg
Jógagyðjan og annar eigandi vellíðurnarfyrirtækisins Rvk Ritual Eva Dögg Rúnarsdóttir á von barni með kærasta sínum, handboltamanninum, Stefáni Darra Þórssyni. Eva deildi tíðindunum með fallegri mynd á samfélagsmiðlum.

Segist standa með Helga Magnúsi gegn hótunum
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist ekki taka það persónulega þegar fólk hafi uppi stór orð eða neikvæða umræðu um hann. Bjarni, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segist hafa horft upp á þingmenn brenna upp af því að þeir hafi tekið neikvæða gagnrýni inn á sig.

Stjörnulífið: Stjörnubrúðkaup og Áslaug Arna í golfi
Síðastliðin vika var afar viðburðarrík hjá stjörnum landins. Ungfrú Ísland var krýnd í Gamla bíói síðastliðið miðvikudagskvöld, ástin umvafði helgina með stjörnubrúðkaupum og sólin lét sjá sig í höfuðborginni.

15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust
Haustdagskrá Stöðvar 2 lítur brátt dagsins ljós þar sem 15 innlendar þáttaraðir verða frumsýndar, ýmist vinsælar þáttaraðir sem snúa aftur eða glænýtt efni af ýmsum toga.

Lil Curly og Brynja ekki lengur bara vinir
Áhrifavaldarnir Brynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti, betur þekktur sem Lil Curly, eru byrjuð saman. Þetta staðfestir Arnar við blaðamann en parið byrjaði sem mjög góðir vinir og hafa sést saman víða, bæði hér heima og í ferðalögum erlendis.

Allt fyrir hlaupið á einum stað
Þegar kemur að hreyfingu eru margir sem velja að hlaupa en það hefur líka lengi verið tengt við marga heilsueflandi ávinninga. Sumir hlaupa því fyrir heilsuna, aðrir sér til skemmtunar, einhverjir til þess að svala keppnisþörf og eflaust nokkrir sem gera það fyrir allt þrennt.

Hleypur hálfmaraþon fyrir Sindra: „Það sem skiptir máli er að klára þetta fyrir Sindra“
Anna María Pálsdóttir ætlar næstu helgi að hlaupa sitt fyrsta hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu. Hún hleypur fyrir Hjálpartækjasjóð Sindra en hún hefur síðustu fimm ár sinnt liðveislu fyrir Sindra Pálsson. Fjölskylda Sindra safnar nú fyrir sérstakri útvistarkerru fyrir Sindra.

Frægir kynnar á ráðstefnu Demókrata
Kerry Washington, Tony Goldwyn, Mindy Kaling og Ana Navarro verða kynnar á ráðstefnu Demókrataflokksins sem hefst í Chicago í Illinois á morgun. Ráðstefnan stendur alla vikuna og mun hvert þeirra vera kynnir eina kvöldstund.

Litla Melabúðin slær í gegn hjá Vesturbæingum
Fjórar stelpur sem staðið hafa í verslunarrekstri um helgina segja framtakinu hafa verið vel tekið. Þær hafa selt heimagerða hafraklatta og sultur fyrir utan Melabúðina, til styrktar börnum á Gasa.

Brad Pitt stoppaði í hamborgara í Dalakofanum
Leikarinn Brad Pitt er á landinu og fékk sér hamborgara í Dalakofanum í Laugum í Reykjadal í gær. Ingibjörg Arna Friðgeirsdóttir starfar í Dalakofanum og er ein þeirra sem afgreiddi leikarann í gær. Hún segir hann hafa verið afar kurteisan og að honum hafi þótt hamborgarinn góður.

„Þjóðarmorðið í Palestínu hefur sameinað þær“
Mæður gegn morðum er bók um hundrað baráttukonur sem Alda Lóa Leifsdóttir hefur bæði myndað og tekið viðtöl við. Konurnar eru af ólíkum stéttum og úr ólíkum kimum samfélagsins en eiga það sameiginlegt að hafa síðustu mánuði tekið þátt í mótmælum, samstöðufundum og öðrum aðgerðum til stuðnings íbúum í Palestínu.

Hrútaþukl á Íslandsmeistaramóti í hrútadómum
Það verður mikið um að vera á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum í dag því þar fer fram Íslandsmeistaramót í hrútadómum. Keppt verður í tveimur flokkum, vanra hrútaþuklara og óvanra þuklara.

Alain Delon látinn
Franska kvikmyndastjarnan Alain Delon er látinn, 88 ára að aldri.

Krakkatían: Teiknimyndir, mjólkurvörur og tölvuleikir
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!

Hefur gefið út tvö hundruð lög á fimm mánuðum
Á fimm mánuðum hefur samfélagsmiðlastjarnan Maggi Mix gefið út tæplega tvö hundruð lög með aðstoð gervigreindar. Hann semur textana sjálfur og segir lögin fyrst og fremst fyrir sjálfan sig.

Harðfisk-, laxa- og beikonís á Ísdeginum í Hveragerði
Kjörísdagurinn Stóri var haldinn hátíðlegur í Kjörís í Hveragerði í dag í fimmtánda sinn. Hátíðin er dagskrárliður á bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum sem er haldin árlega í Hveragerði. Í tilkynningu frá Kjörís kemur fram að gefnir hafi verið um 200 þúsund skammtar af ís og að áætlað sé að um 22 þúsund manns hafi látið sjá sig á hátíðinni.

Ekki búið spil
Bandaríska leikkonan Dakota Johnson og breski tónlistarmaðurinn Chris Martin eru enn saman, þvert á það sem slúðurmiðlar greindu frá í gær. Umboðsmenn Dakota þvertaka fyrir sögusagnir um að þau væru á leið hvort í sína áttina.

„Klæddu þig eftir veðri, ekki verði“
Plötusnúðurinn Daníel Ólafsson blandar saman há- og lágtísku á einstakan hátt og hefur gaman að menningunni á bak við tískuna. Hans eftirminnilegasta verslunarferð var með stjörnulögmanninum og tískuunnandanum Villa Vill í Napólí og segir hann að það að versla með Villa sé sambærilegt því að spila fótbolta með Maradonna. Daníel Ólafsson er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Randy er litríkasti gaurinn í hinni geggjuðu Pittsburgh
Randyland er án efa litríkasta kennileiti Pittsburgh, sumir segja í öllum Bandaríkjunum. Það er heimili listamannsins og sérvitringsins Randy Gilson og þykir svo sérstakt að það er orðið eitt vinsælasta aðdráttarafl borgarinnar.

Byrjaði í smábrotum en vatt svo upp á sig
Berglind Fríða Viggósdóttir missti tvo elstu syni sína með sex ára millibili. Þann 5. maí árið 2018 var Viggó Emil bráðkvaddur á Spáni. Ingvi Hrafn féll fyrir eigin hendi í klefa sínum á Litla Hrauni, á dánardegi bróður síns þann 5. maí síðastliðinn. Bræðurnir áttu það sameiginlegt að hafa árum saman barist við eiturlyfjafíkn og voru þeir báðir í afplánun á einhverjum tímapunkti í lífi sínu.

Fréttatía vikunnar: Vindmyllur, tannlæknar og fegurðardrottningar
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Heitustu hinsegin pör landsins
Hinsegin dagar voru haldnir hátíðlega í liðinni viku þar sem ástinni og fjölbreytileikanum var fagnað með glæsibrag. Í tilefni hátíðarinnar setti lífið á Vísi saman lista sem samanstendur af hinsegin pörum sem eiga það sameiginlegt að vera flottar fyrirmyndir.

Dóttir Snæfríðar og Högna komin með nafn
Dóttir listaparsins Högna Egilssonar og Snæfríðar Ingvarsdóttur var skírð við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík 14. ágúst síðastliðinn. Stúlkunni var gefið nafnið Ísey Andrá.