Lífið

„Píratar hafa lengi verið mikið áhugamál hjá mér“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins mun sitja í þingsal umkringdur Pírötum þennan þingvetur. Píratar hafa lengi verið sérstakt áhugamál Sigmundar sem kveðst spenntur að halda áfram að rannsaka þá og vonandi „koma þeim inn á rétta braut“.

Setur „Hafnarfjarðarhreysið“ á sölu eftir endurbætur
Einbýlishús í miðbæ Hafnarfjarðar sem komst í fréttirnar í mars þegar íbúi þess lýsti hræðilegum aðstæðum í húsinu er komið á sölu. Eigandi þess segir „Hafnarfjarðarhreysið“ eins og hann kallar það hafa verið stórlega endurbætt og bíði nú nýrra eigenda.

Hafdís segir Emmy tilnefninguna „smá súrrealíska“
Förðunarfræðingurinn Hafdís Pálsdóttir skein skært á Emmy verðlaununum um síðustu helgi þar sem hún og teymið hennar fengu tilnefningu. Blaðamaður ræddi við hana um ferilinn, tilnefninguna og stóra kvöldið.

Egill og Íris Freyja nefna dótturina
Íris Freyja Salguero fyrirsæta og Egill Halldórsson, eigandi Górilla vöruhúss og Wake up Reykjavík, opinberuðu nafn dóttur þeirra í færslu á Instagram í gær. Stúlkan fékk nafnið Maya sól.

Endurvekur misheppnuðustu útihátíð heims
Skipuleggjandi misheppnuðustu útihátíðar í heimi, Fyre Festival, skipuleggur nú endurkomu hátíðarinnar sem hann kallar Fyre II. Hann er enn á skilorði eftir að hafa verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir svik eftir þá síðustu. Fjárfestir sem lagði fé í þá fyrri varar hugsanlega fjárfesta við að taka þátt í gjörningnum.

Sturla Atlas og Kolfinna flytja inn saman
Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, tónlistarmaður og leikari, hafa fest kaup á íbúð við Mýrargötu í Reykjavík.

Skvísupartý í skartgripaverslun
„Mig langaði að fagna þessum áfanga með konum sem ég hef kynnst í gegnum tíðina,“ segir gullsmiðurinn Edda Bergsteinsdóttir sem fagnaði nýrri skartgripalínu sinni með pomp og prakt í versluninni Prakt á Laugaveginum á dögunum.

Frestar öllum tónleikum vegna hrakandi heilsu
Tónlistarmaðurinn Donald Glover, einnig þekktur sem Childish Gambino, tilkynnti fyrr í kvöld að hann neyðist til að fresta öllum fyrirhuguðum tónleikum sínum í Norður-Ameríku vegna hrakandi líkamlegrar heilsu.

James Earl Jones er látinn
Bandaríski leikarinn James Earl Jones er látinn, 93. ára að aldri. Jones var hvað þekktastur sem röddin á bakvið illmennið Svarthöfða í Stjörnustríðsmyndunum.

Myndaveisla: Húrrandi fjör í stórafmæli Húrra
„Á stórafmælum er mikilvægt að fagna vel og það gerðum við svo sannarlega,“ segja Jón Davíð Davíðsson og Sindri Jensson eigendur Húrra. Tískuverslunin fagnaði tíu ára afmæli um helgina með pomp og prakt.

Þungun stefni lífi Gomez í hættu
Hin víðfræga Selena Gomez, söng- og leikkona, tilkynnti að hún er ófær um það að eignast barn í forsíðuviðtali við tímaritið Vanity Fair.

Selur tvær íbúðir á sama tíma
Ferðaljósmyndarinn og áhrifavaldurinn Ása Steinarsdóttir er með tvær íbúðir á sölu í miðborg Reykjavíkur ásamt eiginmanni sínum Leo Alsved. Aðra þeirra hafa þau nýtt í útleigu og á Airbnb.

Opnar sig í myndbandi: Hefur lokið lyfjameðferð
Katrín Middleton prinsessa af Wales hefur lokið lyfjameðferð. Hún segist nú ætla að einbeita sér að því að halda sér heilbrigðri.

Keypti ævintýralegt raðhús með sjávarútsýni
Kolbeinn Sigþórsson knattspyrnumaður festi kaup á reisulegu pallaraðhúsi við Bakkastaði í Grafarvogi. Húsið var byggt árið 2001 og er 282 fermetrar. Kolbeinn greiddi 225 milljónir fyrir eignina.

Flugmenn keyptu einbýli Rikka Daða á undirverði
RD 11, félag í eigu Ríkharðs Daðasonar fjárfestis, seldi nýverið glæsilegt einbýlishús við Sunnuveg í Reykjavík þrettán milljónum undir ásettu verði.

Selur íbúð með palli en engum berjarunna
Guðmundur Heiðar Helgason almannatengill hefur sett frægasta pall landsins í Vogahverfi í Reykjavík á sölu. Pallurinn komst í fréttir fyrir þremur árum síðan þegar borgaryfirvöld fóru fram á að þar yrði grasblettur og berjarunni.

Eva Dögg greinir frá kyninu
Jógagyðjan og annar eigandi vellíðurnarfyrirtækisins Rvk Ritual Eva Dögg Rúnarsdóttir og Stefán Darri Þórsson handboltamaður eiga von á dreng. Parið greindi frá kyni barnins í myndskeiði á Instagram um helgina.

„Ég get ekki verið hamingjusamari“
„Mér finnst eins og allt sem ég hef skrifað eða gert áður en ég hitti hann sé skrifað af einhverjum manni sem er að leita að einhverju eða syrgja eitthvað,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson í þætti Auðuns Blöndal, Tónlistarmennirnir okkar á Stöð 2 í gærkvöldi.

„Hvað ef Katrín Jakobsdóttir hefði lent í sama máli?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra segir vandamálabransann orðið sérstakt vandamál á Íslandi. Það sé bransi sem gangi út á að finna sífellt nýtt bakslag til þess að geta beðið um meiri pening frá hinu opinbera. Þetta segir Sigmundur í podcasti Sölva Tryggvasonar. Hann segir stjórnmálamenn upp til hópa ekki standa í lappirnar gagnvart þessu og fleiri málum sem snúi að umbúðum og ímyndarmennsku.

Stjörnulífið: Ásdís Rán í Playboy-höllinni
Síðastliðin vika var heldur betur viðburðarík hjá íslensku stjörnunum. Ástin, utanlandsferðir og Októberfest voru í aðalhlutverki um helgina.

Hundamatur í uppáhaldi hjá æðarfugli á Akranesi
Yndislegt samband hefur skapast á milli unglingsstúlku á Akranesi og fjörutíu og fimm daga æðarfugls, sem stelpan hefur tekið að sér. Fuglinn, sem heitir Dúdú elskar mest af öllu hundamat og mjölorma.

Kendrick sér um hálfleikstónleika Ofurskálarinnar
Bandaríski rapparinn Kendrick Lamar mun mun troða upp í hálfleik Ofurskálar NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta á næsta ári.

Barnastjarna úr Aðþrengdum eiginkonum ólétt
Madison de la Garza, leikkona sem gerði garðinn frægan sem Juanita Solis í sjónvarpsþáttunum Aðþrengdum eiginkonum, á von á sínu fyrsta barni.

Gylfi Sig og Alexandra tilkynna kynið
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson og verslunareigandinn Alexandra Helga Ívarsdóttir eiga von á strák. Þau greindu fyrst frá óléttunni í maí og Alexandra greindi frá því að hún væri með „strákabumbu“ á Instragram.

Óþrjótandi og ríkuleg undraveröld Íslands
Ragnar Axelsson – Raxi – er ljósmyndari á heimsmælikvarða, óþreytandi að að festa mannlíf og landslag á filmu. Til að komast í tæri við áður óséð undur Íslands prílaði Raxi við annan mann upp í flugvél sína og ljósmyndar það sem fyrir augu ber, með augum fuglsins.

Hætt saman en halda áfram samstarfi á OnlyFans
„Ég held að aðal málið sé að utanaðkomandi fólk vill að við upplifum skömm. Fólk vill að ég skammist mín fyrir það sem ég geri. Ég held að það sé meira þvingað yfir á fólk út frá þeirra ímynd af þessu. Þegar ég tala við aðra sem eru í sama bransa og ég þá ég hef aldrei upplifað það að þau finni fyrir skömm,“ segir OnlyFans stjarnan Ingólfur Valur. Hann er viðmælandi í Einkalífinu.

Krakkatía vikunnar: Trúðar, tungumál og landvættir
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!

Hvetja fleiri til að láta mála vegglistaverk
Búið er að kortleggja staðsetningu yfir 160 vegglistaverka í Reykjavík á nýju korti borgar. Listunnendur vilja sjá fleiri verk í úthverfum og utan höfuðborgarsvæðis.

Hart barist á hundruð milljóna jólamarkaði
„IceGuys jólatónleikarnir eru orðnir þeir stærstu í lýðveldissögunni,“ sagði Máni Pétursson skipuleggjandi jólatónleika IceGuys í Laugardalshöll hróðugur fyrr í vikunni eftir að nítján þúsund miðar seldust á tónleikana. Það er stór fullyrðing, enda eru tónleikarnir langt frá því að vera einu jólatónleikar ársins. Hart er barist á hundruð milljóna jólamarkaði þar sem framboðið hefur aldrei verið eins mikið.

„Vináttan sem þú hélst að væri harðari en grjót reyndist byggð á sandi“
Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, opnaði sig í vikunni um skilnaðinn sinn. Eitt það erfiðasta í ferlinu hafi verið að horfa á eftir nákomnum vini sem sleit vinskap þeirra í kjölfar skilnaðarins.