Körfubolti

Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik
Stjarnan vann virkilega sterkan 14 stiga sigur er liðið tók á móti Íslandsmeisturum Vals í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld, 95-81.

Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins
Caitlin Clark var valinn nýliði ársins í WNBA deildinni í körfubolta með miklum yfirburðum. Aðeins einum blaðamanni fannst hún ekki vera besti nýliðinn í deildinni.

Uppgjörið: Þór Þ. - Njarðvík 93-90 | Þór vann græna slaginn
Þór Þorlákshöfn lagði Njarðvík á heimavelli, 93-90, í fyrstu umferð Bónus deildar karla.

„Ennisbandið var slegið af honum“
Kjartan Atli Kjartansson þjálfari Álftaness var töluvert í sviðsljósinu undir lok leiksins gegn Keflavík. Bekkur Álftnesinga fékk tvær tæknivillur dæmdar á sig í framlengingunni fyrir mótmæli en Álftnesingar þurftu að lúta í gras eftir spennuleik gegn Keflavík.

Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum
Þjálfari Hauka, Maté Dalmay, var sjáanlega svekktur með það hvernig lið hans mætti til leiks gegn Hetti fyrr í kvöld. Gólfið á Ásvöllum var skúrað með Haukaliðinu og héldu strákarnir hans Viðars á moppunni. Leiknum lauk með 80-108 sigri gestanna og byrjun tímabilsins gæti varla verið verri.

Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni
Keflavík vann góðan sigur á Álftanesi í framlengdum leik þegar liðin mættust í 1. umferð Bónus-deildarinnar á Álftanesi í kvöld. Dramatíkin var allsráðandi undir lokin og tilfinningarnar miklar á vellinum sem og í stúkunni.

Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur
KR bar sigur orð af liði Tindastóls í Bónus Deildinni í dag á Sauðárkróki, lokatölur í leiknum voru 85-94, þægilegur sigur KRinga.

Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði
Höttur mætti til leiks í fyrstu umferð Bónus deildar karla og tóku gestgjafa sína í Haukum í bakaríið. Haukar voru eiginlega engin fyrirstaða fyrir fullorðna Hattarmenn sem unnu 80-108 sigur í leik sem var lítið spennandi í seinni hálfleik.

Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague
Martin Hermannsson var í byrjunarliði Alba Berlin, sem tapaði 77-87 fyrir Panathinaikos, í fyrsta leik evrópukeppni félagsliða í körfubolta, EuroLeague.

Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, hefur verið dæmdur í eins leiks bann vegna framkomu hans í leik liðs hans við Keflavík í Meistarakeppni KKÍ síðustu helgi. Hann missir af leik Vals við Stjörnuna annað kvöld.

Teitur í Ljónagryfjunni: „Eitthvað við húsið og söguna sem náði því besta úr mönnum“
Ljónagryfjan. Íþróttahúsið sem hefur reynst Njarðvíkingum svo vel. Hefur verið formlega kvatt með síðasta keppnisleiknum í húsinu. Körfuboltagoðsögnin Teitur Örlygsson er einn þeirra sem hefur alist upp í húsinu. Upplifað þar stórar gleðistundir. En einnig þung töp. Við fengum hann til þess að leiða okkur í gegnum Ljónagryfjuna og segja frá sögu hennar.

Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi
Pavel Ermolinskij ætlar ásamt félögum sínum að taka einn leik fyrir í hverri umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í vetur. Þeir Helgi Már Magnússon hituðu með hressilegum hætti upp fyrir leik Álftaness og Keflavíkur. Pavel mun svo lýsa honum með Jóni Arnóri Stefánssyni á Stöð 2 BD í kvöld.

„Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“
Ólafur Jónas Sigurðsson, nýr þjálfari Stjörnunnar, gat sennilega ekki beðið um betri byrjun en að leggja Íslandsmeistara Keflavíkur í fyrsta leik haustsins en Stjarnan lagði Keflavík í kvöld 71-64.

Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum
Nýliðar Bónus deildar kvenna, Aþena og Tindastóll, mættust í fyrstu umferð. Þar fór heimaliðið Aþena með öruggan tuttugu stiga sigur, 86-66.

Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 71-64 | Baráttuglaðar Stjörnustúlkur lögðu Íslandsmeistarana
Íslandsmeistarar Keflavíkur mættu i heimsókn í Garðabæinn í kvöld með nokkuð laskað lið, en Birna Benónýsdóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Emilia Ósk Gunnarsdóttir eru allar meiddar og munar þar heldur betur um minna.

Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“
Komið er að tímamótum í sögu körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. Ljónagryfjan sem hefur reynst gjöful í gegnum árin var formlega kvödd í gær og við tekur nýr kafli í nýju íþróttahúsi í Stapaskóla. Teitur Örlygsson, einn sigursælasti körfuboltamaður Íslands, hefur alist upp í Ljónagryfjunni. Upplifað þar stundir sem hann heldur nærri hjarta sínu.

GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“
Í öðrum þættinum af GAZinu ræðir Pavel Ermolinskij við Helga Má Magnússon, fyrrverandi leikmann og þjálfara KR. Fara þeir yfir víðan völl en GAZið er hlaðvarpsþáttur í umsjón Pavels.

Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum
Haukar og Valur unnu bæði sína leiki í 1. umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Valur vann Þór Akureyri með fimm stiga mun, 82-77. Haukar lögðu Hamar/Þór með níu stiga mun, 93-84.

„Okkur fannst það skylda að klára með sigri“
Njaðvík tóku á móti Grindavík í kveðjuleik Ljónagryfjunnar þegar 1. umferð Bónus deildar kvenna hóf göngu sína. Það var ekki mikið sem benti til þess framan af að þetta yrði spennu leikur en annað kom á daginn þegar Njarðvík sigraði Grindavík 60-54.

Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 60-54 | Kvöddu Ljónagryfjuna með sigri
Njarðvíkingar kvöddu í kvöld heimavöll sinn til margra ára, Ljónagryfjuna, með stæl þegar Grindavík kom í heimsókn í 1. umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Unnu heimakonur sex stiga sigur en Grindvíkingar hleyptu mikilli spennu í leikin í 4. leikhluta.

Ljónagryfjan kvödd í kvöld
Njarðvíkingar ætla að kveðja sinn fornfræga heimavöll, Ljónagryfjuna, í kvöld þegar keppni í Bónus-deild kvenna í körfubolta hefst.

Sævar og Stefán misstu andlitið í beinni: „Það leið næstum yfir mig“
Menn voru léttir í upphitunarþætti Bónusdeildar karla í körfubolta. Keflvíkingurinn knái Sævar Sævarsson mátti hafa sig allan við þegar hann var tekinn í hraðaspurningar undir lok þáttar.

Dikembe Mutombo látinn
NBA goðsögnin Dikembe Mutombo er látinn 58 ára að aldri eftir baráttu við heilaæxli. NBA deildin greinir frá þessu í yfirlýsingu.

Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari
Keflavík er eitt þeirra liða í Bónus deild karla í körfubolta sem gerir hvað mest tilkall til Íslandsmeistaratitilsins á komandi tímabili. X-factorinn í liðinu frá því á síðasta tímabili, Remy Martin, er farinn en fólkið í kringum Keflavík ætlast til þess og býst við því að liðið verði meistari. Sævar Sævarsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds og fyrrverandi leikmaður Keflavíkur, segir það hins vegar engan heimsendi standi Keflavík ekki uppi sem Íslandsmeistari.

Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni
Í upphitunarþætti Bónus Körfuboltakvölds var tekin umræða um það hver væri besti Íslendingurinn í deildinni.

Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn
Franski bakvörðurinn Franck Kamgain stoppaði stutt við í Þorlákshöfn eftir að hafa samið þar við lið Þórs fyrr í mánuðinum fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla í körfubolta. Hann hefur verið látinn fara en Þórsarar hafa nú þegar tekið inn nýjan mann fyrir hann.

Tryggvi með tíu í fyrsta leik
Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason átti sinn þátt í 90-72 sigri Bilbao Basket á Breogán í fyrstu umferð efstu deild Spánar í körfubolta í dag.

Valsmenn neituðu að veita viðtöl
Íslandsmeistarar Vals veittu engin viðtöl eftir tapið gegn Keflavík í kvöld, í Meistarakeppni karla í körfubolta.

„Mátti þetta ekki í Þýskalandi“
Bikarmeistarar Keflavíkur tóku á móti Íslandsmeisturum Vals í Blue höllinni í kvöld þar sem Meistari Meistaranna í körfubolta karla fór fram. Það voru Keflvíkingar sem höfðu betur með tíu stiga mun 88-98.

Martin magnaður í fyrsta sigrinum
Martin Hermannsson virðist vera kominn á fulla ferð í þýska körfuboltanum með Alba Berlín en hann átti stórleik í 105-70 sigri gegn Oldenburg í dag.