Körfubolti

Haukar áfram í riðlakeppni EuroCup
Haukakonur eru komnar í riðlakeppni EuroCup í körfubolta þrátt fyrir tveggja stiga tap gegn portúgalska liðinu Unaio Sportiva í kvöld, 81-79. Haukar unnu fyrri leikinn með fimm stigum á heimavelli og fara því áfram á samanlögðum árangri.

Sóllilja og félagar úr leik í Evrópubikarnum
Sóllilja Bjarndóttir og liðsfélagar hennar í sænska liðinu A3 Basket Umeå töpuðu í dag gegn ungverska liðinu FCSM Csata í undankeppni Evrópubikarkeppni kvenna í körfubolta, 81-79. Csata vann fyrri leik liðanna með 15 stiga mun og Sóllilja og Umeå sitja því eftir með sárt ennið.

Risaleikur í fyrstu umferð bikarkeppninnar hjá konunum
Dregið var í fyrstu umferðir VÍS bikars karla og kvenna í körfubolta í dag.

Elvar Már átti frábæran leik en það dugði ekki til
Antwerp Giants tapaði með fimm stiga mun fyrir Mechelen í belgísku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 90-85. Elvar Már Friðriksson átti góðan leik í liði Antwerp.

Sú besta í WNBA deildinni kemur frá Bahamaeyjum og spilar fyrir Bosníu
Hún bætti sig mest allra í WNBA deildinni árið 2017, var valin besti sjötti maðurinn árið 2018 og var svo kosin besti leikmaðurinn í ár.

Er aðeins tilbúinn að taka þátt í troðslukeppninni fyrir 129 milljónir
Ja Morant er einn af framtíðarstjörnum NBA deildarinnar í körfubolta en það þarf mikið til þess að hann sé reiðubúinn að taka þátt í troðslukeppni Stjörnuleiksins.

Skagamenn áttu aldrei möguleika gegn Haukum
Haukar unnu ótrúlegan 76 stiga sigur á ÍA í 1. deild karla í körfubolta í kvöld, lokatölur 120-44.

Segir ekkert pláss fyrir óbólusetta leikmenn í NBA
Goðsögnin Kareem Abdul-Jabbar segir að NBA-deildin í körfubolta eigi að setja skýr fyrirmæli varðandi bólusetningar leikmanna og starfmanna félaga deildarinnar.

Nýir erlendir leikmenn KR-inga þekkja vel til í íslensku deildinni
KR-ingar staðfestu í gærkvöldi komu tveggja erlendra leikmanna til liðsins og báðir hafa þeir spilað áður í úrvalsdeildinni á Íslandi.

Óbólusettur Irving gæti misst af öllum heimaleikjum Brooklyn Nets
Kyrie Irving, leikmaður Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfubolta, hættir á að missa af heimaleikjum liðsins í vetur þar sem hann er óbólusettur. New York er ein þeirra borga í Bandaríkjunum þar sem leikmenn í innanhús íþróttum þurfa að vera bólusettir til að mega spila.

Missa heimavöllinn sinn í miðri úrslitakeppni WNBA útaf Disney sýningu
Úrslitakeppni WNBA deildarinnar í körfubolta stendur nú yfir og þó að kvennadeildin sé í sókn þarf hún enn að glíma við ákveðið virðingarleysi.

Álftanes og Sindri með örugga sigra
Tveir leikir fóru fram í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfubolta í kvöld. Álftanes vann sannfærandi sigur gegn Skallagrím 101-67 og Sindri lagði Fjölni 93-75.

„Þá segir bara FIBA að þessi landsleikur verður ekki á Íslandi“
Íslenska körfuboltalandsliðið þarf mögulega að spila heimaleiki sína í undankeppni HM erlendis af því að Ísland getur ekki boðið upp á hús sem stenst kröfur FIBA.

Góður fyrri hálfleikur dugði ekki til fyrir Martin og félaga
Martin Hermansson og félagar hans í Valencia tóku á móti Murcia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Valencia tók forystuna snemma leiks en þurfti að sætta sig við fimm stiga tap, 91-86.

Fyrsta tap Tryggva og félaga
Tryggvi Hlinason og félagar hans í Zaragoza töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Liðið mætti stigalausu liði San Pablo Burgos og þurfti að sætta sig við 21 stigs tap, 75-54.

Elvar Már öflugur er Antwerp Giants byrja á sigri
Antwerp Giants vann níu stiga sigur á Limburg í belgísku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 81-72. Elvar Már Friðriksson átti flottan leik í liði Antwerp.

Martin og félagar komnir á blað
Valencia vann sinn fyrsta sigur í ACB-deildinni í körfubolta á tímabilinu í deildinni. Unnu Martin Hermannsson og félagar 20 stiga útisigur á Manresa, 89-69.

Fimmtán ára með laglega og sögulega körfu í fyrsta Evrópuleiknum
Haukakonur unnu sögulegan sigur á portúgalska liðinu Sportiva í Evrópuleik á Ásvöllum í gærkvöldi. Þetta var ekki aðeins fyrsti sigur íslensk kvennakörfuboltaliðs í Evrópukeppni heldur var ung Haukastúlka að setja nokkru aldursmet.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Sportiva 81-76 | Fimm stiga sigur í langþráðum Evrópuleik
Haukar unnu góðan fimm stiga sigur gegn portúgalska liðinu Club Uniao Sportiva í langþráðum Evrópuleik í Ólafssal í kvöld. Lokatölur 81-76.

Bjarni: Stoltur af fyrsta sigri Hauka í Evrópukeppni
Haukakonur unnu sinni fyrsta sigur í Evrópukeppni. Haukar unnu Sportiva frá Portúgal 81-76. Leikurinn var jafn og spennandi alveg fram að síðustu mínútu. Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var afar kátur í leiks lok.

Tryggvi og félagar með fullt hús eftir tvo leiki
Tryggvi Hlinason og félagar hans í Casademont Zaragoza unnu í dag öruggan stiga sigur gegn Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Lokatölur 76-100, en þetta var annar sigur Zaragoza í jafn mörgum leikjum í upphafi tímabils.

Spilaði Evrópuleik með Haukum fimm dögum áður en liðsfélagi hennar fæddist
Kvennalið Hauka spilar í kvöld fyrsta Evrópuleik íslensks kvennaliðs í körfubolta í næstum því fimmtán ár þegar liðið fær portúgalska liðið Sportiva í heimsókn á Ásvelli.

Fær 4,3 milljarða í laun fyrir tímabilið en neitar að mæta í vinnuna
Bandarískir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að stórstjarnan Ben Simmons sé búinn að ákveða það að spila ekki fleiri leiki með liði Philadelphia 76ers í NBA-deildinni.

Njarðvíkingar ætla að skipta Ljónagryfjunni út fyrir Stapaskóla
Njarðvík er búin að finna leið til að búa til pláss fyrir fleiri áhorfendur á heimaleikjum liðsins í körfunni en það verður þó ekki gert með því að stækka Ljónagryfjuna.

Hætti við Úkraínudvöl og lendir aftur í Keflavík
Keflavík endurheimtir á næstu dögum Bandaríkjamanninn CJ Burks sem mun spila með liðinu í stað Brians Halums í vetur.

Tryggvi og félagar hófu tímabilið á sigri
Tryggvi Hlinason og félagar hans í Zaragoza hófu tímabilið í spænska körfboltanum á góðum sigri gegn Manresa. Lokatölur 98-91.

Erum ekki bestir á landinu þó við höfum unnið VÍS-bikarinn
Njarðvík var bikarmeistari í níunda skiptið eftir fjögurra stiga sigur á ríkjandi bikarmeisturum Stjörnunnar. Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var í skýjunum með bikarmeistaratitilinn.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Njarðvík 93-97 | Sextán ára bikarbið Njarðvíkur lokið
Njarðvík er VÍS bikarmeistari. 16 ára bikarbið Njarðvíkur er lokið. Góður þriðji leikhluti hjá Njarðvík lagði grunninn að níunda bikarmeistaratitil Njarðvíkur.

Martin átti fínan leik í naumu tapi
Martin Hermannsson spilaði nauman hálftíma í fimm stiga tapi Valencia gegn Baskonia í ACB-deildinni, spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, í kvöld. Lokatölur 72-67 Baskonia í vil.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fjölnir - Haukar 89-94 | Haukar bikarmeistari í sjöunda sinn eftir hörkuleik
Haukar eru bikarmeistarar í sjöunda sinn eftir fimm stiga sigur á Fjölni í úrslitaleik VÍS-bikarsins í körfubolta. Leikurinn var æsispennandi og var það ekki fyrr en undir lok leiks sem Haukar náðu upp það góðri forystu að þær gætu andað léttar, lokatölur 94-89.