Körfubolti

Elvar í leit að nýju liði: „Má alveg deila um hvort þetta hafi verið rétt skref“
Þó að Elvar Már Friðriksson sé með hugann við leikinn mikilvæga gegn Hollandi á föstudagskvöld, í undankeppni HM í körfubolta, er hann einnig í leit að nýju liði til að spila fyrir á næstu leiktíð.

Nei eða já: Jokic vinnur ekki titil með Nuggets og Clippers betri á pappír en Warriors
Hinn stórskemmtilegi liður Nei eða já var að sjálfsögðu á sínum stað í seinasta þætti að Lögmál leiksins þar sem stjórnandi þáttarins, Kjartan Atli Kjartansson, fékk sérfæðinga í setti til að svara laufléttum nei eða já spurningum um NBA-deildina í körfubolta.

Shaq vill kaupa Orlando Magic
Shaquille O'Neal kom eins og stormsveipur inn í NBA-deildina þegar Orlando Magic valdi hann í nýliðavalinu 1992. Nú vill kappinn eignast félagið sem gerði hann að stórstjörnu á tíunda áratug síðustu aldar.

Kyrie Irving verður áfram hjá Brooklyn Nets en Wall fer til Clippers
Kyrie Irving var ekki tilbúinn að skilja tæpa fjóra milljarða íslenskra króna eftir á borðinu og ætlar að nýta sinn rétt og taka lokaárið í samningi sínum við Brooklyn Nets. Bandarískir miðlar fengu það staðfest í nótt.

„Sumir eru graðari en aðrir í þessu og vilja fá svör strax“
Landsliðsmaðurinn Ægir Þór Steinarsson gæti verið á heimleið úr atvinnumennsku. Hann gæti spilað í Subway deild karla í körfubolta á næstu leiktíð.

Segir að Irving muni ekki hjálpa Lakers að vinna Golden State
Draymond Green, leikmaður nýkrýndra NBA-meistara Golden State Warriors, segir að Kyrie Irving muni ekki hjálpa Los Angeles Lakers að velta Stríðsmönnunum af stalli sínum.

Slá botninn í NBA-tímabilið með sérstökum aukaþætti
Strákarnir í Lögmáli leiksins ljúka NBA-tímabilinu formlega í kvöld þegar sérstakur aukaþáttur er á dagskrá.

Þessir sextán koma til greina gegn Hollandi
Craig Pedersen, þjálfari karlalandsliðs Íslands í körfubolta, hefur valið sextán leikmenn til æfinga fyrir leikinn gegn Hollandi í undankeppni HM á föstudaginn. Tólf þeirra verða svo valdir í leikinn.

Deildarmeistararnir styrkja sig
Deildarmeistarar Fjölnis hafa samið við austurrísku körfuknattleikskonuna Simone Sill um að leika með liðinu á komandi leiktíð i Subway-deild kvenna í körfubolta.

Callum Lawson að yfirgefa Íslandsmeistarana
Körfuknattleiksmaðurinn Callum Lawson er að yfirgefa Íslandsmeistara Vals og halda til Frakklands þar sem hann mun leika með Jav CM í Pro B deildinni.

Jón Axel vonast til þess að komast að á æfingum hjá NBA-meisturunum
Körfuknattleiksmaðurinn Jón Axel Guðmundsson hefur yfirgefið þýska félagið Crailsheim Merlins og vonast til að komast að á æfingum hjá NBA-meisturum Golden State Warriors í sumar.

ÍR-ingar fá argentínskan Þórsara
Körfuknattleiksdeild ÍR hefur samið við Luciano Massarelli um að leika með liðinu í Subway-deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Massarelli kemur til liðsins frá Þór Þorlákshöfn.

Engin gert fleiri þrennur í WNBA-deildinni
Hin 36 ára gamla Candace Parker skráði sig á spjöld sögunnar er lið hennar Chicago Sky rúllaði yfir Los Angeles Sparks, 82-59. Parker gerði þrefalda tvennu og hefur þar með gert flestar þrennur í sögu deildarinnar.

Kristinn semur við lið í sameiginlegri deild Hollands og Belgíu
Körfuknattleiksmaðurinn Kristinn Pálsson hefur samið við hollenska félagið Aris Leeuwarden um að leika með liðinu á komandi leiktíð í BNXT-deildinni, sameiginlegri úrvalsdeild Hollands og Belgíu, á næstu leiktíð.

Banchero valinn fyrstur í nýliðavali NBA-deildarinnar og Mobley bræður sameinaðir
Nýliðaval NBA-deildarinnar í körfubolta fór fram með pompi og prakt í nótt. Paolo Banchero var valinn fyrstur og mun hann spila fyrir Orlando Magic á komandi tímabili.

Grindavík fær Svía
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur samið við sænsku körfuboltakonuna Amöndu Okodugha um að spila með liðinu í Subway-deildinni á næstu leiktíð.

O´Neal yngri í nýliðavalinu: Æfði með Lakers
Shareef O‘Neal, sonur hins goðsagnakennda Shaquille O‘Neal, er meðal þeirra leikmanna sem verða í nýliðavali NBA deildarinnar í körfubolta sem fram fer í nótt. O‘Neal yngri æfði með liðinu sem faðir hans er hvað þekktastur fyrir að spila með.

Fráfarandi formaður körfuknattleiksdeildar KR: „Mætti halda að ég væri deyjandi maður“
„Mér líður bara mjög vel. Það mætti halda að ég væri deyjandi maður eins og þú ert að tala við mig núna,“ sagði Böðvar Guðjónsson fráfarandi formaður körfuknattleiks-deildar KR í viðtali við Stöð 2 og Vísi.

Gætu sameinað krafta sína á nýjan leik í von um að steypa Stríðsmönnunum af stóli
Kyrie Irving, leikstjórnandi Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfubolta, virðist vera að hugsa sér til hreyfings. Hefur Los Angeles Lakers verið nefnt til sögunnar en það þýðir að Kyrie og Lebron James gætu endurtekið söguna og steypt Golden State Warriors af stóli.

Styrmir Snær verður áfram í Bandaríkjunum
Styrmir Snær Þrastarson hefur hafnað gylliboðum á Íslandi og mun leika áfram með Davidson háskólanum í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum á næsta tímabili.

Vestri hættir keppni
Lið Vestra frá Ísafirði mun ekki leika í 1. deild kvenna á komandi leiktímabili í körfuboltanum.

Tryggvi Snær troðið oftast allra í sögu Zaragoza
Körfuknattleiksmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason hefur troðið oftast allra í sögu spænska úrvalsdeildarliðsins Zaragoza. Greindi félagið frá þessu á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Böðvar rifar seglin eftir sautján ár í stjórn
Eftir að hafa verið í stjórn körfuknattleiksdeildar KR í sautján ár, lengst af sem formaður, hefur Böðvar Guðjónsson ákveðið að láta staðar numið.

Draymond með skýr skilaboð: „Sigurvegarar sigra og þegið þið svo“
Draymond Green, leikmaður NBA meistara Golden State Warriors, er ekki allra. Hann er með munninn fyrir neðan nefið og elskar að láta gamminn geisa. Gerði hann nákvæmlega það er Warriors fögnuðu titlinum með stuðningsfólki sínu á mánudag.

Júlíus Orri gengur til liðs við Stjörnuna | Gunnar og Tómas framlengja
Penninn var á lofti í Garðabænum í dag þar sem bakvörðurinn Júlíus Orri Ágústsson samdi við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö ár í Subway-deil karla í körfubolta. Þá framlengdu þeir Gunnar Ólafsson og Tómas Þórður Hilmarsson samningum sínum við félagið.

Álftanes safnar liði: Dúi Þór kynntur til leiks
Leikstjórnandinn Dúi Þór Jónsson er genginn til liðs við Álftanes sem leikur í 1.deild karla í körfubolta á komandi leiktíð. Dúi Þór gengur til liðs við Álftnesinga frá Þór Akureyri sem lék í Subway-deild karla á síðustu leiktíð.

Leikjaniðurröðun fyrir Subway deildirnar klár
Búið er að birta leikjaniðurröðun fyrir næsta körfuknattleikstímabil. Subway deild kvenna fer af stað í september á meðan Subway deild karla fer af stað í byrjun október.

Isabella Ósk með flest fráköst í Ástralíu
Isabella Ósk Sigurðardóttir skoraði fimm stig og tók heil tólf fráköst á 32 mínútum í 20 stiga tapi South Adelaide Panthers gegn Norwood Flames í áströlsku NBL deildinni í körfubolta í nótt.

Ægir Þór: Þarf ekki að vera feluleikur
Ægir Þór Steinarsson, landsliðsmaður í körfubolta, stefnir á að vera áfram í atvinnumennsku en er þó opin fyrir því að koma aftur til Íslands.

Myndir: Öllavöllur vígður við hátíðlega athöfn í Reykjanesbæ í minningu Örlygs Sturlusonar
Öllavöllur var formlega vígður klukkan 18 í dag við Fjörheima í Reykjanesbæ. Völlurinn er hinn glæsilegasti með allri nýjustu tækni og ætlaður öllum sem vilja spila og æfa sig í körfubolta. Öllavöllur er byggður til að heiðra minningu Örlygs Arons Sturlusonar sem lést langt fyrir aldur fram í janúar árið 2000.