Íslenski boltinn

Hólmar Örn: Ætlum ekki að mæta og gera okkur að fíflum
Hinn 37 ára gamli Hólmar Örn Rúnarsson spilar á morgun sinn síðasta leik fyrir Keflavík eftir glæstan feril. Hann fékk ekkert draumatímabil til að kveðja og flestir búast við því að Keflavík fái stóran skell á morgun.

Stuðningsmenn Breiðabliks gáfu Keflvíkingum orkudrykki fyrir laugardaginn
Breiðabik getur staðið uppi sem sigruvegari í Pepsi-deild karla á laugardaginn en til þess þarf allt að ganga upp.

Óli Stefán efstur á blaði hjá KA
KA vill fá Óla Stefán Flóventsson sem næsta þjálfari en þetta staðfesti framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar félagsins í samtali við Morgunblaðið í kvöld.

Jón Rúnar: Hjálpar ekki til að sérsamböndin seilist í sama lækinn
Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, segir að það verði erfiðara með hverju árinu að safna peningum til að reka knattspyrnudeildir landsins á meðan leikmannahóparnir verða dýrari og dýrari.

Kristján hættir með ÍBV
Kristján Guðmundsson verður ekki áfram þjálfari ÍBV í Pepsi-deild karla en þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjamönnum.

Formaður Fjölnis: Mörg félög í rekstarvanda en við hvað hreinskilnastir
Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis, segir að það séu mörg félög á Íslandi í rekstrarvanda en að Fjölnismenn séu einna hreinskilnastir hvað vandann varðar.

Pepsimörkin: Öskubuskuævintýri Víðis frá Garði
Hvert er mesta öskubuskuævintýrið í sögu íslenska fótboltans? Þessari spurningu varpaði Stefán Pálsson fram í Fornspyrnunni í Pepsimörkunum á Stöð 2 Sport.

Hólmar Örn tekur við Víði
Keflvíkingurinn Hólmar Örn Rúnarsson bregður sér í nýtt hlutverk næsta sumar er hann verður þjálfari hjá 2. deildarliði Víðis.

Pepsimörkin: „Ótrúleg ákvörðun“ að dæma mark af Stjörnunni
Stjarnan svo gott sem kastaði frá sér möguleikum sínum á Íslandsmeistaratitlinum með því að tapa fyrir ÍBV á sunnudaginn. Þeir hefðu þó átt að fá stig úr leiknum því Stjarnan skoraði mark sem dæmt var af, ranglega að mati sérfræðinga Pepsimarkanna.

Huginn ætlar ekki að áfrýja en vill afsökunarbeiðni frá KSÍ
Stjórn knattspyrnudeildar Hugins hefur ákveðið að áfrýja ekki úrskurði KSÍ um að úrslit í leik liðsins gegn Völsungi skuli vera 3-0 Völsungi í hag. Liðin mættu á sitt hvorn völlinn er þau áttu að endurspila leik liðanna á dögunum.

Pepsimörkin: Anton Ari aðeins of linur og kostaði Val stigið
Valur hefði getað farið langleiðina með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í Kaplakrika á sunnudaginn en sigurmark FH á loka mínútunum þýðir að enn getur ýmislegt gerst í lokaumferðinni.

Pepsimörkin: „Fannst þetta röng skilaboð inn í leikinn“
Björgvin Stefánsson skoraði mark KR í 1-1 jafnteflinu gegn Fylki á sunnudagskvöldið en var svo tekinn af velli skömmu síðar.

Jeffs ekki áfram með kvennalið ÍBV
Ian Jeffs mun ekki stýra ÍBV áfram í Pepsi-deild kvenna á næstu leiktíð en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í gærkvöldi.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - Stjarnan 2-1 | Stjarnan á veikan séns þrátt fyrir tap
Þrátt fyrir tap í Vestmannaeyjum á Stjarnan enn séns á Íslandsmeistaratitlinum þar sem Valur tapaði á Hlíðarenda. Það þarf þó allt að falla með þeim eftir viku til þess að draumurinn verði að veruleika

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Fylkir 1-1 | Fylkir tryggði sæti sitt í efstu deild
Næst síðasta umferð Pepsi-deildarinnar fór fram í dag. Fylkismenn tryggðu endanlega sæti sitt í Pepsi-deildinni að ári með sterku jafntefli gegn KR á útivelli.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fjölnir - Breiðablik 0-2 | Fjölnismenn spila í Inkasso að ári
Fjölnismenn eru fallnir eftir tap gegn Breiðabliki þar sem Fylkir náði í stig í Vesturbænum. Breiðablik á enn séns á Íslandsmeistaratitlinum eftir önnur úrslit.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KA 4-3 Grindavík | Markasúpa í kveðjuleik Túfa
Það var boðið upp á markasúpu á Greifavellinum á Akureyri í dag þegar KA og Grindavík áttust við í 21.umferð Pepsi-deildar karla.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Víkingur 0-4 | Stórsigur Víkinga í Keflavík
Víkingur verður áfram í efstu deild karla eftir stórsigur á Keflavík. Keflavík á einn leik eftir til þess að reyna að taka sigur á tímabilinu

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Valur 2-1 | Dramatík í uppbótartíma og allt opið á toppnum
FH skoraði sigurmark á síðustu mínútu uppbótartímans í Kaplakrika og galopnaði toppbaráttuna í Pepsi deild karla

Óli Palli: Við mættum ekki klárir og það þýðir bara dauði
Fjölnir er fallinn úr efstu deild karla í fótbolta eftir tap gegn Breiðabliki á heimavelli í dag

Hipólito fær ekki nýjan samning hjá Fram
Pedro Hipólito mun ekki stýra liði Fram í Inkasso deild karla að ári. Knattspyrnudeild Fram ætlar ekki að endurnýja samninga við Portúgalann.

Gunnar Heiðar hættir eftir tímabilið: „Kóngurinn kveður Hásteinsvöll“
Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna að loknu tímabilinu í Pepsi deild karla. ÍBV tilkynnti þetta í dag.

Var komin í landsliðið en sleit krossband í þriðja sinn
Telma Hjaltalín Þrastardóttir, framherji Stjörnunnar, varð fyrir því óláni að slíta krossband í þriðja skiptið á þremur árum.

Sandra best, Alexandra efnilegust og Bríet besti dómarinn
Sandra María Jessen var valin besti leikmaður Pepsi-deildar kvenna 2018 en þetta var tilkynnt eftir lokaumferðina í deildinni sem fór fram í dag.

Krísa í Fram: „Stjórnarmenn sjást ekki nema þegar vel gengur”
Guðmundur Magnússon, fyrirliði og sóknarmaður Fram, var ekki upplitsdjarfur í viðtali við Fótbolta.net eftir síðasta leik liðsins í Inkasso-deildinni í dag.

ÍA meistari í Inkasso-deildinni
ÍA stendur uppi sem sigurvegari í Inkasso-deild karla en lokaumferðin í deildinni fór fram í dag.

Valskonur unnu nýkrýnda Íslandsmeistara │Berglind fær gullskóinn
Nýkrýndir Íslandsmeistarar Breiðabliks enduðu tímabilið í Pepsi deild kvenna á tapi fyrir Val í lokaumferð deildarinnar. Berglind Björg Þorvaldsdóttir tryggði sér gullskóinn með tveimur mörkum.

Afturelding og Grótta upp í Inkasso
Afturelding og Grótta spila í Inkasso-deild karla á næstu leiktíð en þetta varð ljóst eftir að lokaumferðin í annarri deild karla var leikinn í dag.

Magni áfram í Inkasso eftir dramatík í Breiðholti
Magni frá Grenivík mun spila áfram í Inkasso-deild karla á næstu leiktíð eftir 3-2 sigur á ÍR í hreinum úrslitaleik um sæti í Inkasso-deildinni að ári.

Landið að rísa aftur á Skaganum
Hið fornfræga stórveldi ÍA hefur upplifað tímana tvenna síðan gullaldarskeiði félagsins í knattspyrnu karla sem stóð frá 1992 til 2001 lauk. Nú er bjart yfir Skaganum á nýjan leik og framtíðin sveipuð gulum ljóma.